Enginn aldur

En hvað veldur því að fólki dettur til hugar að tala við rígfullorðna konu eins og hún sé frekar illa gefið smábarn? Ég heyrði viðtal við Torfhildi í útvarpsfréttum og stúlkan sem tók það talaði eins og hlandauli við gömlu konuna... "Mér er sagt að þú sért dugleg að spila..?" var ein snilldarspurningin... Guð minn góður, það væri nú hægt að spyrja konu sem hefur lifað alla 20. öldina, í basli og velgengni, komið upp nokkrum börnum og séð á eftir vinum og ættingjum í gröfina, skárri spurningar en þú myndir spyrja sæmilega talandi þriggja ári barn.

En aumingja spyrillinn var náttúrulega sennilega meira en 80 árum yngri en viðfangsefnið... Við hverju er að búast?

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is 104 ára í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er einhver lenska að tala við vel fullorðið fólk eins og smábörn eða það sem verra er, hálfvita.

Ætli þetta sé ekki sama fólkið sem talar hátt við blinda?

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.5.2008 kl. 07:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband