Færsluflokkur: Kjaramál

Yndislegt...

...mikið er það nú stórkostlegt að fólk hafi svona fínar tekjur. Reyndar að miklu leyti fjármagnstekjur eins og í tilfelli Þorsteins Más, sem borgar hlutfallslega minna í útsvar en matráðskonan í leikskólanum og stelpan á kassanum hjá Jóhannesi. Annars bara allir glaðir með sitt!

Held ég fari bara og fái mér þjassamaul með frakkneskum jarðeplastönglum í hádegisverð og þambi sylgjarskál með. Gæti jafnvel hugsað mér rindarrifflur með þyrilrjóma og berjamauki sem þægðarbragð.

Sæl að sinni!


 


mbl.is Þorsteinn Már greiðir mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband