Er enn verið að tala um þetta fokkings REI, plís gíf mí a breik

Ég veit að þið hafið öll heyrt eða lesið um þessi fræði áður, en
 ég hef ekki séð neinn útskýra þetta eins vel og hinn alvísa Cliff Calvin í
 Staupasteini.
 

Cliff Calvin var að útskýra Buffala-kenninguna fyrir vini sínum
 Norm og það gekk svona fyrir sig:

 "Sjáðu nú til Norm, þetta virkar svona.... Buffalahjörð getur aðeins farið jafn hratt og hægasti buffalinn í hjörðinni.
       
Og þegar veitt er úr hjörðinni eru það hinir hægustu og veikustu
 aftast í hjörðinni sem eru drepnir fyrst.

 Þetta náttúrulega val er mjög gott fyrir hjörðina í heild sinni
 því að með reglulegum drápum á veikustu og hægustu einstaklingunum batnar
 heilsufar hjarðarinnar og hraði hennar.

 Á sama hátt má segja að mannsheilinn geti aðeins unnið eins hratt
 og hægustu heilasellurnar leyfa. Eins og við öll vitum þá drepur alkohól
 heilasellur en eðlilega drepur það hægustu og veikustu sellurnar fyrst.

 Á þennan hátt veldur regluleg inntaka áfengis því að veikari
 Sellurnar drepast og þar með því að heilinn verður hraðvirkari og
 skilvirkari.

 Þetta er ástæðan fyrir því að maður verður svona klár eftir nokkra
 bjóra!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Assgoti var notalegt að heyra Harry Belafonte syngja Banana Boat sönginn í þættinum hjá þér í gær.  Ég er með þetta lag í tónspilaranum mínum - af því að ég heyri það ekki nógu oft í útvarpinu. 

Jens Guð, 7.11.2007 kl. 18:28

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Sæll, Já, þetta er eitt af þessum lögum sem maður fær aldrei leið á. Einhverjir undarlegir töfrar í einfaldleikanum sem valda þessarri vellíðunartilfinningu sem streymir um mann við hlustunina. Svo er Harry Belafonte hörkusöngvari.

Markús frá Djúpalæk, 7.11.2007 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband