Kúl að vera tölvunarfræðingur - sem á frosk

froskur Einu sinni var strákur að fara yfir götu þegar hann heyrði frosk kalla á sig, " Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu" Strákurinn beygði sig niður og tók froskinn og stakk honum í vasann.
Froskurinn sagði aftur við hann: " Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu þá skal ég vera hjá þér í eina viku."
Strákurinn tók froskinn úr vasanum, brosti framan í hann og stakk honum aftur í vasann.
Froskurinn ræskti sig og sagði hátt: " Ef þú kyssir mig þá breytist ég í forkunarfagra prinsessu þá skal ég vera hjá þér í eina viku og gera ALLT sem þú vilt." Aftur tók strákurinn froskinn upp úr vasanum, brosti framan í hann og stakk honum síðan í vasann. Þá
sagði froskurinn við strákinn: "Hvað er að??? Ég sagði þér að ég er forkunarfögur prinsessa, mun vera hjá þér og gera allt sem þú vilt. Af hverju viltu ekki kyssa mig ?"
Strákurinn svaraði: "Sko sjáðu til, ég er tölvunarfræðing ur. Ég hef ekki tíma fyrir kærustur en talandi froskur er alveg ótrúlega kúl"

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skattborgari

Þetta sýnir vel hvað sumir eru vitlausir. Annars vildi ég frekar eiga froskinn en að vera með prinsessu í eina viku. Minna um vandamál.

Kveðja Skattborgari

Skattborgari, 30.9.2008 kl. 18:51

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Markús frá Djúpalæk, 30.9.2008 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband