Paul Simon

paulsimon 

Paul Frederic Simon er fćddur 13 október 1941 sonur gyđingahjóna af ungverskum ćttum, Bellu og Lúđvíks sem bćđi eru látin. Hann byrjađi snemma ađ glingra viđ tónlist en hann og vinur hans Art Garfunkel tróđu upp á skólaböllum í Forest Hill skólanum. Ţeir kölluđu sig Tomma og Jenna ţegar ţeir gáfu út fyrstu smásmáskífuna sína “Hey Schoolgirl” áriđ 1957. Ţeir héldu báđir áfram námi og Paul er međ gráđu í enskum bókmenntum.

Hann er ţríkvćntur ţessi 155 cm hái tónlistarmađur, núverandi eiginkona hans er Edie Brickel sem er fćdd um ţađ leyti sem Simon og Garfunkel voru ađ slá í gegn. Áđur var hann kvćntur Lilju prinsessu, leikkonunni Carrie Fisher.

 

Rokk og ról, ţér gefiđ hef ég öll mín bestu ár… 

Hann hóf nám í lögfrćđi en rokkiđ og róliđ átti samt hug hans allan og á árunum milli 1957 og 1964 gaf hann út slćđing af lögum ýmist međ Garfunkel eđa án. Hann kom fram undir ýmsum dulnefnum, eins og Jerry Landis, Paul Kane og  í hljómsveitinn Tico & the Triumphs.

Á ţessum tíma kynntist hann Carole King og tók upp nokkur lög međ henni, sem ekki hafa veriđ gefin út, einnig fór hann ađ hafa áhuga á ţjóđlagatónlist sem hefur litađ feril hans talsvert síđan, og gaf út nokkur lög af ţeim toga ţar á međal “He was my brother” tileinkađ skólabróđur hans sem hafđi veriđ myrtur í Mississippi áriđ 1964. Snemma ţađ ár fengu ţeir skólabrćđur og vinir, Simon og Garfunkel samning viđ Columbia  hljómplöturisann sem ákvađ ađ nota ćttarnöfn félagana sem nafn á bandiđ, nokkuđ sem aldrei hafđi veriđ reynt áđur, eftir ţví sem Paul hélt fram í viđtali áriđ 2003. Fyrsta platan ţeirra, Wednesday morning, 3.a.m.  kom út í október 1964 og innihélt 12 lög, ţar af fimm eftir Paul Simon. Platan seldist ekki vel í upphafi en útvarpsstöđvar á austurströnd Bandaríkjanna féllu ţó fyrir einu lagi sem var mikiđ spilađ. Ţađ heitir “The sound of silence”. Ađ endingu komst ţađ á topp Bandaríska popplistans .

Simon&Garfunkel 

Ađ slá í gegn

Eftir ađ ţađ leit út fyrir ađ fyrstu plötunnar biđi ekkert nema hrakfarir hélt Simon til Englands ţar sem hann hélt sólóferli sínum áfram, og gaf út The Paul Simon Song Book  í Bretlandi áriđ 1965. Ţegar hann frétti af velgengni lagsins “the sound of silence” sigldi hann vestur á ný og ţeir félagar Art Garfunkel og hann hófu glćstan feril, gáfu út margar merkilegar plötur ţar á međal  Sounds of silence áriđ 1966, Bookends, 1968 og Bridge over troubled water.Söngur ţeirra félega setti líka sterkan svip á kvikmyndina The Graduate sem Mike Nicols leikstýrđi áriđ 1967, um eldri konu sem táldregur ungan háskólastúdent. Paul Simon hafđi hugsađ sér ađ láta lagiđ heita Mrs Roosevelt en ţegar leikstjórinn frétti ţađ sagđi hann: “Láttu ekki eins og bjáni, viđ erum ađ búa til bíómynd hérna, konan heitir Mrs. Robinson!” Eftir útgáfu hinnar ofurvinsćlu  Bridge over Troubled Water lauk samstarfi ţeirra félaga, og Paul hóf sólóferil en ţeir félagar komu alloft saman, gáfu út “My little town” á smáskífu 1975, sem einnig kom út á sólplötunum ţeirra  Still Crazy after all those years  og  Breakaway.  Áriđ 1981 héldu Simon og Garfunkel eftirminnilega tónleika í Miđgarđi í New York, sem var upphafiđ ađ heimsreisu ţeirra sem vakti gífurlega athygli. Í kjölfariđ kom út tónleikaplata sem margir eiga á vinyl í plötuskápnum sínum.  Ţeir félagar voru teknir inn í Rock´n´Roll Hall of fame áriđ 1990 og komu svo saman aftur áriđ 2003 til ađ taka viđ Grammy verđlaunum fyrir frábćrt ćvistarf. Í framhaldinu brugđu ţeir undir sig betri fćtinum og fóru á túr sem átti hámark sitt í 600.000 manna konsert í Kolosseum í Róm.  

Sólóferill

Á 8. áratugnum hófst farsćll sólóferill Paul Simon fyrir alvöru, hann gaf út plötuna Paul Simon ţar sem hann gćldi í fyrsta skipti viđ heimstónlist. Lögin frá ţessum tíma eru mörg og margvísleg en mörg ţeirra mjög kunnugleg, Kodacrome, American Tune og Loves me like a rock, svo einhver séu nefnd. Ţau tvö síđarnefndu beindu sjónum hlustenda ađ Watergate hneykslinu. Áriđ 1975 gaf hann út hina frábćru plötu  Still Crazy after all those years, sem er álitin eitt af hans bestu verkum. Nćstu árin dundađi hann sér viđ eitt og annađ, samdi kvikmyndatónlist og lék meira ađ segja í bíómyndum. Hann gaf út nokkrar plötur međ fínu efni sem ţrátt fyrir ágćta sölu náđi ekki sömu hćđum í vinsćldum og útgáfur áranna á undan.

PaulSimon_300 

Graceland til nútímans

Áriđ 1986 gaf Paul Simon út ţá gríđarvinsćlu plötu Graceland ţar sem hann fékk til liđs viđ sig Afríska rythmasveit og hljóđfćraleikara ţar á međal Ladysmith Black Mambazo. Platan seldist rosalega vel og skaut Paul Simon beinustu leiđ upp á stjörnuhimininn á ný. Fjórum árum síđar leitađi hann til Brasilíu, gaf út  The rhythm of the saints  sem fólki fannst ofuređlilegt framhald af Graceland plötunni. Paul Simon hafđi tekist ađ koma heimstónlistinni á kortiđ.Tćpum tíu árum eftir konsertinn frćga í Central Park mćtti Paul Simon ţangađ aftur međ hóp  afrískra og suđur Amerískra tónlistarmanna sér til fulltingis. Enn varđ til glćsileg hljómleikaplata og sjónvarpsţáttur sem sópađi ađ sér verđlaunum. Nýjasta plata Pauls Simon kom út áriđ 2006, unnin af honum og Brian Eno undir áhrifum af hćkkandi aldri tónlistarmannsins og atburđum ţeim sem urđu 11. september 2001, og eins ţví sem gerst hefur í kjölfar árásanna. Platan ţykir fín, örlítiđ tormeltari en eldri verk meistarans. Menn mega nú ţroskast.

Nú er ţessi snillingur staddur á Íslandi og ćtlar ađ halda stórtónleika sem hefjast eftir örfáa klukkutíma í Laugardalshöll. Ég hlakka óskaplega til ađ heyra hvađ hann hefur upp á ađ bjóđa ţar.

 

Bloggfćrslan er alfariđ á ábyrgđ skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skođanir eđa afstöđu mbl.is, og Morgunblađsins.

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guđrún Eiríksdóttir

Frábćr fćrsla!  

-Hvern fékkstu til ađ skrifa hana fyrir ţig?  

PS. Ţú veizzt ég elzkađig!  Fer bara vel međđa!

Helga Guđrún Eiríksdóttir, 1.7.2008 kl. 12:54

2 Smámynd: Eiríkur Harđarson

Mig vantar einhvern til ađ ná í mig, reyndar er ég líka miđalaus ţó verđur ţví auđveldlega bjargađ.

Eiríkur Harđarson, 1.7.2008 kl. 12:57

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Flott upprúlluđ sagnfrćđi hjá ţér, eiginlega međ betri ritjúölum sem ég hef enn lesiđ af ţví sem ađ ~mannz finnzt mar vita betur um~, en mátađir & bast fyrir međ stílnum.

Ţinn heiđur & heilsan fyrir..

Steingrímur Helgason, 1.7.2008 kl. 22:05

4 Smámynd: Markús frá Djúpalćk

Og ekki sveik hann sćmoninn. Ţetta voru hreint út sagt stórkostlegir tónleikar.

Markús frá Djúpalćk, 1.7.2008 kl. 23:26

5 Smámynd: Markús frá Djúpalćk

Og Steingrímur, ég ţakka ţér fagurlega orđađ hrós. Vona ađ ég nái ađ gleđja ţig aftur síđar

Markús frá Djúpalćk, 2.7.2008 kl. 15:33

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband