Ljóđ dagsins

VEĐURVÍSUR  - Jónas Hallgrímsson

Hart vor

 

Hóla bítur hörkubál,
hrafnar éta goriđ,
tittlingarnir týna sál.
Tarna er ljóta voriđ!


Vornćđingur

 

Út um móinn enn er hér
engin gróin hola.
Fífiltóin fölnuđ er -
farđu í sjóinn, gola!


Sunnanvindur

 

Sunnanvindur sólu frá
sveipar linda skýja.
Fannatinda, björgin blá,
björk og rinda ljómar á.


Sumarhret

 

Nú er sumar í Köldukinn, -
kveđ ég á millum vita.
Fyrr má nú vera, fađir minn,
en flugurnar springi af hita!


Molla

 

Veđriđ er hvorki vont né gott,
varla kalt og ekki heitt.
Ţađ er hvorki ţurrt né vott,
ţađ er svo sem ekki neitt.


Niđaţoka

 

Búđarloka úti ein
er ađ gera á ferđum stanz, -
úđaţoka, hvergi hrein,
hún er úr nösum rćkallans.


Rigning

 

Skuggabaldur úti einn
öli daufu rennir.
Skrugguvaldur, hvergi hreinn,
himinraufar glennir.


Útsynningur

 

Útsynningur yglir sig,
eilífa veđriđ skekur mig.
Ég skjögra eins og skorinn kálfur, -
skyldi ég vera ţetta sjálfur!

Bloggfćrslan er alfariđ á ábyrgđ skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skođanir eđa afstöđu mbl.is, og Morgunblađsins.


 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guđrún Eiríksdóttir

Viđ ţetta er fátt ađ bćta, nema kannski fallegri vísu eftir Egil Jónasson:

Blessuđ jörđin vill bćta og laga
blómin vaxa og sólin skín.
Fyrir svona dýrđardaga
drottinn ţarf ekki ađ skammast sín.

Helga Guđrún Eiríksdóttir, 26.4.2008 kl. 10:12

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband