Huh!

 

Guðbjörg farin, greinilega búin að fá nóg af vinkonum sínum

Fregnir herma að Guðbjörg Jónsdóttir framhaldsskólanemi hafi húðskammað Aðalheiði Pálsdóttur, sem vogaði sér að tala við vinkonu Guðbjargar á skólaballi um daginn.

Eins og fram hefur komið gengur sú saga nú fjöllum hærra að Guðbjörg sé dottin í súkkulaðið, aftur.

Heimildamaður sagði mér að vinkona Guðbjargar, Sigríður Árnadóttir, hafi vakið mikla athygli sem barnapía og það hafi Guðbjörgu ekki líkað.

Þegar svo Heiða kastaði kveðju á Siggu á skólaballinu virtist Guðbjörgu nóg boðið og jós Heiðu svívirðingum og rak hana burt frá vinkonu sinni.

Skapstjórn Guðbjargar var lítið skárri strax næsta kvöld, þegar hún lenti í hávaðarifrildi við Siggu og sakaði hana um að sýna sér ekki næga athygli.

Fregnir herma að Guðbjörg hafi reyndar breytt nafni sínu á Facebook í Gugga Heita, og er hún var í meðferð í fyrra mun hún hafa skrifað Siggu ástarbréf og sagst vilja giftast henni og eignast börn með henni.


mbl.is Lohan missir stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehehehe þú ert frábær

Hrönn Sigurðardóttir, 23.4.2008 kl. 12:59

2 identicon

 alltaf jafn fyndinn þessi elska...ég hló eins og hýena þegar ég las þetta...gullkornin þín eru nauðsynleg bætiefni í dagsins önn

kv,Linda Agnars

Linda Agnars (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband