Hvar er þessi LaugaRvegur?

...blaðamenn á mbl.is þekkja ekki einu sinni nöfn helstu gatna í Reykjavík. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Laugavegur verður að Laugarvegi.

En það er gott að enginn slasaðist þarna, förum varlega í umferðinni, alltaf. Og munum að aka eftir aðstæðum. Mesta ábyrgðin liggur hjá hverju og einu okkar sem sest undir stýri, en ekki eingöngu í hálkunni, í umferðarmannvirkjunum, lélegu merkingunum og veðrinu.

Akstur er alvara. Alveg dauðans alvara stundum.


mbl.is Bílvelta á gatnamótum Laugavegar og Mjölnisholts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Beturvitringur

Æi, þakka þér fyrir að vekja athygli á málvitleysunni sem ríður yfir allt.

Það er svo erfitt að vera hjá læknirurunum sem eru á Lauga(R)veg(g)num. Skiljanlegt er Barónsstígurinn héti Laugarvegur, það stendur þó ekki nema ein laug þar.

Eins og þú veist er Laugavegarnafnið dregið af þvottalaugunum gömlu.

Beturvitringur, 13.4.2008 kl. 23:35

2 Smámynd: Beturvitringur

hurru? búið að leiðrétta þetta í fréttinni?

Annað sem mjög oft er vitlaust hugsað:  Mánaðamót.  Þau verða ansi oft mánaðarmót.

Auðvitað eru þetta mót TVEGGJA mánaða = mánaða-.  Bulluorðið mánaðarmót hljómar eins og einn mánuður hitti sjálfan sig fyrir!?

DánarBEÐUR, sjúkraBEÐUR.  Aftur á móti blómaBEÐ.

Það sem ég held að aftri fólki að festa þetta í huga er að í þolfalli er mynd orðanna eins (dánarbeð - blómabeð)

Afsakaðu sóun á síðunni.

Beturvitringur, 13.4.2008 kl. 23:42

3 Smámynd: Linda litla

Ég hélt að hann héti "Laugarvegur" en ef að það er ekki rétt, þá er ég löglega afsökuð, ég er ekki reykvíkingur.

En já, það urðu engins slys á fólki þarna sem betur fer, það er nóg af slysum fyrir.

Farið bara varlega í umferðinni.

Linda litla, 14.4.2008 kl. 00:07

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Takk fyrir innleggin báðar tvær og haldið uppteknum hætti

Markús frá Djúpalæk, 14.4.2008 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband