Rosalega er gott...

rubiks...að einhverjir séu svona svakalega klárir. Ég samgleðst þessum frönsku feðgum mjög. Sjálfur hef ég ekki náð að leysa leyndardóma kubbsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í rúm 20 ár. Ég held ég hljóti að hafa sett einhvers konar met í að vera lengi að klára dæmið. Hvar er heimsmetabók Guinness þegar maður þarf á henni að halda?

Myndin sýnir þá gerð Rubik-kubbsins sem ég hef átt auðveldast með að leysa.


mbl.is 5 ára Rubik snillingur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég ákvað fljótlega að þessi tengingur væri ekkert að gera sig.......

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 15:46

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

...þú ert líka svo skynsöm kona.

Markús frá Djúpalæk, 13.4.2008 kl. 15:48

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Minn var gallaður. Ég get næstum svarið það! 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 13.4.2008 kl. 17:18

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Minn er grænn, sá hvíti var of erfiður fyrir mig

Sporðdrekinn, 13.4.2008 kl. 17:45

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Mikið er gott að vera ekki einn um þetta skemmtilega vandamál...

Markús frá Djúpalæk, 13.4.2008 kl. 19:20

6 Smámynd: Sölvi Arnar Arnórsson

Það fóru víst margir yfirum(Klikkuðust) á sínum tíma, þegar að þessi teningur var vinsælastur. menn voru ekki einu sinni að koma einum lit saman.

Þetta er ótrúlegt að 5 ára gutti skuli leysa þessa erfiðu þraut á innan við 3 mínútur.

Sölvi Arnar Arnórsson, 13.4.2008 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband