Sálin hans Jóns míns

Einu sinni bjuggu saman karl og kerling; var karlinn heldur ódæll og illa þokkaður og þar að auki latur og ónýtur á heimili sínu; líkaði kerlingu hans það mjög illa, og ámælti hún honum oftlega og kvað hann eigi duga til annars en sóa því út, er hún drægi að, því sjálf var hún síúðrandi og hafði alla króka í frammi til þess að afla þess, er þurfti, og kunni jafnan að koma ár sinni fyrir borð við hvern, sem um var að eiga. En þótt þeim kæmi eigi vel saman í sumu, unni þó kerling karli sínum mikið og lét hann ekkert skorta. Fór nú svo fram lengi.

En eitt sinn tók karl sótt og var þungt haldinn. Kerling vakti yfir honum; og er draga tók af karli, kemur henni til hugar, að eigi muni hann svo vel búinn undir dauða sinn, að eigi sé vafamál, hvort hann nái inngöngu í himnaríki. Hún hugsar því með sér, að það sé ráðlegast hún reyni sjálf að koma sál bónda síns á framfæri. Hún tók þá skjóðu og hélt henni fyrir vitin á karli, og er hann gefur upp öndina, fer hún í skjóðuna, en kerling bindur þegar fyrir. Síðan fer hún til himna og hefur skjóðuna í svuntu sinni, kemur að hliðum himnaríkis og drepur á dyr. Þá kom Sankti Pétur út og spyr, hvað erindi hennar sé. "Sælir nú," segir kerling, "ég kom hingað með sálina hans Jóns míns; þér hafið líklega heyrt hans getið, ætla ég nú að biðja yður að koma honum hérna inn." "Jájá," segir Pétur; "en því er verr, að það get ég ekki; reyndar hef ég heyrt getið um hann Jón þinn, en aldrei að góðu." Þá mælti kerling: "Það hélt ég ekki, Sankti Pétur, að þú værir svona harðbrjóstaður, og búinn ertu nú að gleyma, hvernig fór fyrir þér forðum, þegar þú afneitaðir meistara þínum." Pétur fór við það inn og læsti; en kerling stóð stynjandi úti fyrir.

En er lítil stund er liðin, drepur hún aftur á dyrnar, og þá kemur Sankti Páll út. Hún heilsar honum og spyr hann að heiti; en hann segir til sín. Hún biður hann þá fyrir sálina hans Jóns síns; en hann kvaðst eigi vilja vita af henni að segja og kvað Jón hennar engrar náðar verðan. Þá reiddist kerling og mælti: "Þér má það, Páll; ég vænti þú hafir verið verðari fyrir náðina, þegar þú forðum varst að ofsækja guð og góða menn. Ég held það sé best, að ég hætti að biðja þig." Páll læsir nú sem skjótast.

En er kerling ber í þriðja sinn að dyrum, kemur María mey út. "Sælar verið þér, heillin góð," segir kerling, "ég vona þér lofið honum Jóni mínum inn, þótt hann Pétur og hann Páll vilji eigi lofa það." "Því er miður, góðin mín," segir María, "ég þori það ekki, af því hann var þvílíkt ótæti, hann Jón þinn." "Og ég skal ekki lá þér það," segir kerling, "ég hélt samt þú vissir það, að aðrir gæti verið breyskir, eins og þú; eða manstu það nú ekki, að þú áttir eitt barnið og gast ekki feðrað það?" María vildi ekki heyra meira, heldur læsti sem skjótast.

Í fjórða sinn knýr kerling á dyrnar. Þá kom út Kristur sjálfur og spyr, hvað hún sé að fara. Hún mælti þá auðmjúk: "Ég ætlaði að biðja þig, lausnari minn góður, að lofa vesalings sálinni þeirri arna inn fyrir dyrnar." Kristur svaraði: "Það er hann Jón, - nei, kona; hann trúði ekki á mig." Í sama bili er hann að láta hurðina aftur, en kerla var þá eigi sein á sér, heldur snaraði hún skjóðunni með sálinni í inn hjá honum, svo hún fauk langt inn í himnaríkishöll, en hurðin skall í lás. Létti þá steini af hjarta kerlingar, er Jón var eigi að síður kominn í himnaríki, og fór hún við það glöð heim aftur, og kunnum vér eigi meira frá henni að segja né heldur, hvernig sál Jóns reiddi af eftir það.

En við vitum allt um það:

http://www.youtube.com/watch?v=wPOhyAEN0J8


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Er gigtin fór að jafna um Jón, fannst Jóni komið nóg, hann nennti ekki að lifa lengur, lagði sig og dó. En af því hann hafði ýmsum verið, til ama og jafnvel tjóns, var ekkjan satt að segja hrædd um sálina hans Jóns.

Hún átti fáa að, því afréð kerling það, að troða henni í tóma skjóðu, og tölta svo af stað.

Pikkað upp eftir lélegu minni..rifjaðist upp þegar ég var að læra skólaljóðin í gamla,gamla daga og eitthvað greinilega sat eftir..í heilagrautnum..

Brynja Hjaltadóttir, 22.3.2008 kl. 03:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband