Ár bloggsins

jonagislajensgudÞað má með sanni segja að árið 2007 hafi verið árið sem bloggið blómstraði á Íslandi. Með sínum kostum og göllum að sjálfsögðu, og bloggið var tekið sömu tökum og allt sem við íslendingar tökum okkur fyrir hendur, það var bloggað af fítonskrafti í sveit og í borg.  Stundum meira af kappi en forsjá, en oft svo vel og skemmtilega að unun er að.

Tveir  bloggarar sem vakið hafa eftirtekt og umtal verða í viðtali hjá mér í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu á eftir, Jens Guð og Jóna Á Gísladóttir. Ég hlakka til að hitta þau og fara með þeim yfir atburði liðins árs og ég veit að þar kem ég ekki að tómum kofunum, það verður líka gaman að heyra hvað þeim finnst almennt um bloggið og hver framtíð þess er í þeirra augum.

Ég hvet fólk til að stilla á Sögu milli klukkan 16 og 17 og hlusta á þetta skemmtilega fólk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Var bara að sjá þetta núna og ætla sko sannarlega að hlusta. Þetta eru einir af mínum uppáhalds bloggvinum. Einnig hlakka ég til að setja rödd við skrif hennar Jónu.

...Gleðilegt nýtt ár  

Halla Rut , 2.1.2008 kl. 15:41

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þau voru bæði alveg bráðskemmtileg.

Markús frá Djúpalæk, 2.1.2008 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband