Skrjillón Kazilljarðar

..ég ætla ekki að reyna að skilja þessar tölur og hvað þær gera fyrir eigendur bankanna. Vona bara að þeim líði betur í dag en í gær og betur á morgun en í dag.
mbl.is Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna 89,6 milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Spurningin er hvað borga fjármálafyrirtækin í skatta. Mér skilst að þau geti frestað skattlagningu á hagnað um einhvern tíma. Það væri svo sem ágætt að fá slatta af milljörðum inn í félagslega kerfið.

Hreinn Hreinsson (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 10:26

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Fyndin fyrirsögn! Betra er að skilja stórar upphæðir með því að brjóta þær niður í tímaeiningar. Þetta eru um 491 milljón á dag, 20 milljónir á klst., 341 þúsund á mínútu og 5.682 kr á sekúndu, dag og nótt. Eftir átta tíma nætursvefninn hafa því bæst um 160 milljónir við hagnað bankanna, sem ætti að gleðja marga á hverjum morgni.

Ívar Pálsson, 1.8.2007 kl. 10:48

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þetta er auðvitað voða fínt. Mér reiknast til að næturhagnaður bankanna sé svipaður og maður sem hefði 3,5 milljónir á mánuði næði að aura sér inn á 47 árum.  Þá á reyndar eftir að draga af honum fullan skatt og allar skyldur. Er von að maður svitni?

Markús frá Djúpalæk, 1.8.2007 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband