Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Stórhættulegur glæpamaður
21.5.2008 | 19:25
Það er aldrei að vita hvaða súpu þessi maður ræðst á næst og slafrar í sig þannig að ég hvet til að honum verið haldið frá súpuskálum landsins sem lengst!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Stal súpu og fer í fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Verður Sigmund þá bannaður?
20.5.2008 | 10:46
Maður spyr sig. Ætli Sigmund fái einhvers konar svona bréf í tölvupósti
''Ágæti teiknari.
Vegna endurtekinna kvartana og gagnrýni hefur verið tekið fyrir að þú getir teiknað um fréttir í mogganum.
Kveðja,
Mogginn"
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Myndasaga Sigmunds gagnrýnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ó misskilningur
17.5.2008 | 10:02
Ég hélt þetta væri frétt um íslenzku þjóðarskútuna. Afsakið.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Skipstjórinn fullur í brúnni og skipið strandaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ótrúlega kaldranaleg fyrirsögn
12.5.2008 | 11:42
Hvað finnst ykkur?
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
900 nemendur grafnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gestur Síðdegisútvarpsins - Rakel Árnadóttir
9.5.2008 | 18:38
Rakel Árnadóttir er fædd á Landspítalanum í Reykjavík 11.júní árið 1980. Hún fæddist alheilbrigð 10 vikum fyrir tímann en fékk heilahimnubólgu þegar hún var 10 daga gömul. Það varð til þess að hún fékk heilalömun CP. Heilalömun veldur því að ákveðnar stöðvar heilans virka ekki sem skyldi. Rakel þarf mikla aðstoð við allar daglegar þarfir, allt það sem við teljum sjálfsagt eins fara í bað, klæðast, fara í bað og ganga til hvílu. Hún er elst systkina sinna, hún tvær systur og tvo bræður.
Á sínum yngri árum flutti hún mjög oft milli staða, en bjó alltaf við góðar aðstæður þannig að hún gat farið um allt á hjólastólnum sínum. Rakel fór í leikskóla og grunnskóla. Hún missti mikið úr einu ári í skólanum í kjölfar skurðaðgerðar sem olli því að hún varð að taka það að nýju. Rakel kláraði grunnskólann og fór í Menntaskólann við Hamrahlíð en hætti þar vegna kennaraverkfalls.
Rakel flutti að heiman árið 2001 í íbúðakjarna í Breiðholti þar sem henni leið ágætlega enda komin í sér íbúð. Þó íbúðin væri þröng fannst Rakel gott að standa á eigin fótum. Árið 2007 var henni boðið að flytja í svipaðan íbúðakjarna í Grafarvogi og hún sér ekki eftir að hafa ákveðið að slá til með það. Sá kjarni er á góðum stað, þar búa þrjár stelpur auk hennar. Rakel líður ótrúlega vel á nýja staðnum, er mun sjálfstæðari en áður. Hún ber armband með takka sem hún ýtir á þegar hana vantar þjónustu. Eins og skilja má er hún svolítið einangruð en á sín áhugamál sem hún unir sér vel við. Hún á rosalega fína tölvu og notar msn mikið til að tala við vini og kunningja sem margir búa í útlöndum. Tölvan hennar er líka full af myndum af dönsku konungsfjölskyldunni, einkum af Friðriki krónprins og fjölskyldu hans.
Rakel ber miklar tilfinningar til Danmerkur sem byrjaði um árið 1995 þegar Jóakim, yngri bróðir Friðriks kvæntist Alexöndru. Hún fylgist vel með og les fréttir af konungsfjölskyldunni og á margar myndir af þeim, upp á vegg og í tölvunni sinni. Henni finnst þau æðisleg. Jóakim skildi við Alexöndru og er nú trúlofaður konu að nafni Marie, en þau ætla að gifta sig 24. maí, sama dag og Eurovision söngvakeppnin fer fram. Það þýðir að sá dagur verður erfiður fyrir Rakel vegna þess að hún er mikill aðdáandi söngvakeppninnar. Hana langar bæði að horfa á brúðkaupið og keppnina, en það kemur í ljós hvort hún velur. Rakel er búin að fara sex sinnum til Danmerkur , á hverju ári undanfarin 5 ár. Henni finnst alltaf jafn gott og skemmtilegt að koma þangað. Það er dýrt fyrir hana að komast til útlanda því hún þarf að borg fyrir sjálfa sig og einn eða jafnvel tvo starfsmenn sem hún þarf að hafa sér til halds og trausts. Stundum þarf hún líka að greiða þeim laun. Það þýðir að hún gæti þurft að borga hátt í hálfa milljón fyrir nokkurra daga ferð, ef ekki meira, með öllu sem til þarf.
Hún lifir aðeins á örorkubótum en reyndar er til styrktarsjóður þar sem hún getur sótt um styrk til að borga aðstoðarfólki sínu en það má ekki gera það ár eftir ár. Þess vegna væri gaman að fólk gæti látið örlítið fé af hendi rakna til að gera henni kleift að upplifa draumana sína um heimsóknir til Danmerkur.
Henni líður mjög vel þar sem hún býr núna er miklu sjálfstæðari en áður. Það angrar hana svolítið að hafa ekki liðveislu því það er svo margt sem hana langar að gera, eins og að fara á kaffihús eða í Kringluna.Það sem styttir Rakel stundirnar er tölvan hennar, svo er hún með fjöldann allan af dönskum sjónvarpsrásum. Rakel langar að læra meira, jafnvel fara í skóla en að minnsta kosti bæta við sig dönsku og ensku. Hún veit ekkert frekar en við hvað framtíðin ber í skauti sér en vonandi verður hún henni hamingjurík.
Reikningurinn hennar er: 515-14-611114 og
kennitalan er: 110680-5629
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Auðvitað ...
8.5.2008 | 12:46
...er þetta erfitt mál. Fyrir alla sem að því koma. Mig langar að hvetja fólk til að gæta sín í yfirlýsingagleðinni og dæma engan í þessu máli fyrr en öll kurl eru komin til grafar. Aðgát skal höfð í nærveru allra sálna.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Erfitt mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mönnum sem hegða sér svona...
7.5.2008 | 12:43
...væri nær að versla í þessarri búð.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Hafði lítið upp úr krafsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vonandi finnst þrjóturinn
7.5.2008 | 12:36
Ætli geti verið að hann hafi flúið til Færeyja?
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Þyrla notuð við ræningjaleit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hjákátlegt
5.5.2008 | 13:21
Var aðeins búinn að skrifa um þetta þannig að þið fáið bara skemmtisögu úr kvikmyndaheiminum í staðinn:
Helen Hunt og Colin Firth lentu í ansi skoplega atviki þegar þau voru að leika í kynlífssenu í myndinni Then She Found Me.
Þarna lágu þau nakin í faðmi hvors annars þegar einn myndatökumaðurinn prumpaði.
Helen stoppaði og sagði:Hver var þetta eiginlega og þá rétti einn myndatökumaðurinn vandræðilega upp hendina og allir sprungu úr hlátri.
Colin sagði:Það var ómögulegt að halda áfram eftir þetta, það var algjörlega búið að drepa stemminguna. Þetta var ekkert smá prump, heldur gríðarlega hátt og fnykurinn lagðist yfir allt. Við neyddumst til að hætta tökum á atriðinu og taka það aftur upp seinna.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Fólk haldi að sér höndum í fjárfestingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ráð hins græna forsætisráðherra
5.5.2008 | 09:50
Geir H Haarde, forsætisráðherra, segir að fólk eigi að minnka við sig, ekki taka lán nema brýna nauðsyn beri til og spara við sig bensín ef það getur.
Það er nauðsynlegt að allir fari varlega við þessar aðstæður, það hef ég margítrekað. Fólk á helst ekki að taka lán nema það hafi mjög brýna þörf fyrir það. Fólk á að reyna að minnka aðeins við sig, draga úr bensíneyðslu ef það er hægt og sýna bara almenn skynsemisviðbrögð við þessu óvænta og óþægilega ástandi sem upp hefur komið. " sagði Geir og bætti við að ekki hafi komið til tals að afnema olíugjaldið heldur hafi verið uppi hugmyndir um að lækka það. Olíugjaldið hafi ekki hækkað í ein 4 ár og því megi ekki rekja hækkun eldsneytisverðs til þess. ,,Þannig að hækkunin á þessu, bæði olíu og bensíni, er öll aðflutt og þá eru náttúrulega ekki helstu og bestu viðbrögðin sú að lækka innlendu gjaldtökuna heldur verða menn að laga sig að þessu með því að stýra sinni notkun, draga úr henni."
Ætli megi treysta á að stjórnvöld sýni sama aðhald og Geir hvetur einstaklinga til að gera? Sjáum til.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.