Gestur Síðdegisútvarpsins - Rakel Árnadóttir

RakelogFridrik 

Rakel Árnadóttir er fædd á Landspítalanum í Reykjavík 11.júní árið 1980. Hún fæddist alheilbrigð 10 vikum fyrir tímann en fékk heilahimnubólgu þegar hún var 10 daga gömul. Það varð til þess að hún fékk heilalömun CP. Heilalömun veldur því að ákveðnar stöðvar heilans virka ekki sem skyldi. Rakel þarf mikla aðstoð við allar daglegar þarfir, allt það sem við teljum sjálfsagt eins fara í bað, klæðast, fara í bað og ganga til hvílu.  Hún er elst systkina sinna, hún tvær systur og tvo bræður.

Á sínum yngri árum flutti hún mjög oft milli staða, en bjó alltaf við góðar aðstæður þannig að hún gat farið um allt á hjólastólnum sínum.  Rakel fór í leikskóla og grunnskóla. Hún missti mikið úr einu ári í skólanum í kjölfar skurðaðgerðar sem olli því að hún varð að taka það að nýju. Rakel kláraði grunnskólann og fór í Menntaskólann við Hamrahlíð en hætti þar vegna kennaraverkfalls. 

Rakel flutti að heiman árið 2001 í íbúðakjarna í Breiðholti þar sem henni leið ágætlega enda komin í sér íbúð. Þó íbúðin væri þröng fannst Rakel gott að standa á eigin fótum. Árið 2007 var henni boðið að flytja í svipaðan íbúðakjarna í Grafarvogi og hún sér ekki eftir að hafa ákveðið að slá til með það. Sá kjarni er á góðum stað, þar búa þrjár stelpur auk hennar. Rakel líður ótrúlega vel á nýja staðnum, er mun sjálfstæðari en áður.  Hún ber armband með takka sem hún ýtir á þegar hana vantar þjónustu. Eins og skilja má er  hún svolítið einangruð en á sín áhugamál sem hún unir sér vel við. Hún á rosalega fína tölvu og notar msn mikið til að tala við vini og kunningja sem margir búa í útlöndum. Tölvan hennar er líka full af myndum af dönsku konungsfjölskyldunni, einkum af Friðriki krónprins og fjölskyldu hans.  

Rakel ber miklar tilfinningar til Danmerkur sem byrjaði um árið 1995 þegar Jóakim, yngri bróðir Friðriks kvæntist Alexöndru. Hún fylgist vel með og les fréttir af konungsfjölskyldunni og á margar myndir af þeim, upp á vegg og í tölvunni sinni. Henni finnst þau æðisleg. Jóakim skildi við Alexöndru og er nú trúlofaður konu að nafni Marie, en þau ætla að gifta sig 24. maí, sama dag og Eurovision söngvakeppnin fer fram. Það þýðir að sá dagur verður erfiður fyrir Rakel vegna þess að hún er mikill aðdáandi söngvakeppninnar. Hana langar bæði að horfa á brúðkaupið og keppnina, en það kemur í ljós hvort hún velur.  Rakel er búin að fara sex sinnum til Danmerkur , á hverju ári undanfarin 5 ár. Henni finnst alltaf jafn gott og skemmtilegt að koma þangað. Það er dýrt fyrir hana að komast til útlanda því hún þarf að borg fyrir sjálfa sig og einn eða jafnvel tvo starfsmenn sem hún þarf að hafa sér til halds og trausts. Stundum þarf hún líka að greiða þeim laun. Það þýðir að hún gæti þurft að borga hátt í hálfa milljón fyrir nokkurra daga ferð, ef ekki meira, með öllu sem til þarf. 

Hún lifir aðeins á örorkubótum en reyndar er  til styrktarsjóður þar sem hún getur sótt um styrk til að borga aðstoðarfólki sínu en það má ekki gera það ár eftir ár. Þess vegna væri gaman að fólk gæti látið örlítið fé af hendi rakna til að gera henni kleift að upplifa draumana sína um heimsóknir til Danmerkur.  

Henni líður mjög vel þar sem hún býr núna – er miklu sjálfstæðari en áður. Það angrar hana svolítið að hafa ekki liðveislu því það er svo margt sem hana langar að gera, eins og að fara  á kaffihús eða í Kringluna.Það sem styttir Rakel stundirnar er tölvan hennar, svo er hún með fjöldann allan af dönskum sjónvarpsrásum. Rakel langar að læra meira, jafnvel fara í skóla en að minnsta kosti bæta við sig dönsku og ensku. Hún veit ekkert frekar en við hvað framtíðin ber í skauti sér en vonandi verður hún henni hamingjurík.

Reikningurinn hennar er: 515-14-611114 og
kennitalan er: 110680-5629

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Flott stelpa og hugrökk, ég heyrði viðtalið við hana. Gangi henni allt í haginn! want to be brave like you

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 9.5.2008 kl. 19:36

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gott að það eru fleiri en ég með ólæknandi áhuga á dönum Vona að henni gangi vel!

Hrönn Sigurðardóttir, 9.5.2008 kl. 22:41

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Hún er líka mikill áhugamaður um Eurovision...

Markús frá Djúpalæk, 9.5.2008 kl. 23:00

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 10.5.2008 kl. 00:20

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Euro-vision.. isn´t quite 20-20.. but at least it´s some kind of vision...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 10.5.2008 kl. 00:43

6 identicon

Takk fyrir hjálpina Markús

Rakel (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband