Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Lyfið ekki bannað

dansgolf"Talið er að svefnlyfið Rohypnol, sem einnig er kallað Flunitrazepam, hafi ítrekað verið misnotað í þeim tilgangi að nauðga konum. " segir í frétt á visi.is í dag. Í sömu frétt segir að Lyfjanefnd hafi fjallað um þetta lyf og mæli ekki með að taka lyfið af markaði og sjái enga ástæðu til þess! Lyfið sé eftirritunarskylt og sérstakt eftirlit haft með notkun þess. Einnig er sagt að um tíma hafi verið sett litarefni í lyfið til að koma í veg fyrir að það væri misnotað. Er þetta ekki sama lyfjanefnd og hefur bannað mörg náttúrulyf af einhverju dularfullum ástæðum sem enginn skilur? Lyf sem eru leyfð annars staðar og jafnvel mælt með umfram verksmiðjuframleidd lyf. Á sama tíma er víða verið að banna Rohypnol eða að draga úr notkun þess. Alltaf þurfa íslensk stjórnvöld að vera öðruvísi!

Nú er spurning hvaða rök eru hér að baki, þau koma ekki fram í fréttinni, nema það séu rök að ekki sé sannað að Rohypnol hafi verið notað í vafasömum tilgangi. Ég hefði haldið að það væru til það mörg lyf önnur sem hægt væri að nota sem svefnlyf í stað þessa að sá grunur sem leikur á misnotkun lyfsins dygði til að gripið væri til einhverra úrræða.

Svo er alltaf sú hætta að þeir sem ætluðu sér að komast yfir Rohypnol til að nota það sem nauðgunarlyf gætu nálgast það með öðrum leiðum þó það væri bannað á Íslandi, og þar af leiðandi betra að það væri til sölu í lyfjaverslunum undir ströngu eftirliti.

En ég spyr hvers konar aumingjar og varmenni eru það sem þurfa að koma annarri manneskju út úr heiminum til að eiga séns í hana!?? En meðan þetta lyf er til og önnur svipuð (þó ég þekki það ekki) verður bara að vara fólk virkilega vel við. Gæta þess að enginn komist í drykkinn ykkar á skemmtistöðum, nota flöskur frekar en glös og aldrei þyggja sopa hjá einhverjum sem þið þekkið ekki.

Eins og sagði í gömlum lögguþáttum: Be careful out there.


Þá er ég sko pottþétt hommi!

Afinn og litli afaguttinn voru að ræða saman. Afinn var að segja honum að einhver sem þeir þekktu væri kominn með kærustu. Litli svara að hann hafi nú ekki vitað af því "Nei ég bara vissi það ekkert" segir sá stutti og bætir svo við "En afi, þegar ég fæ kærustu og hun er strákur þá er ég sko hommi"


Einn er nógu erfitt

Væri ekki skynsamlegt að foreldrar sem hafa þetta svona létu hagsmuni barnsins síns ganga fyrir og það sem býr ekki í hverfi skólans aki því til skóla á morgnana? Ég held að það sé ekki gott fyrir börn að hafa ástandið með þessum hætti. Ég er sannfærður um að svona fyrirkomulag hefði skemmt fyrir mér sem barni. Börn þurfa stöðugleika.

 


mbl.is Ganga í tvo skóla vegna skilnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigrún Vala

sigrúnvala...söngkonan unga var gestur í Síðdegisútvarpinu. Hún er bara 18 ára en hefur verið að syngja frá því hún man eftir sér. Vilmundur Sigurðsson uppeldisfaðir hennar og umboðsmaður kom með henni og sagði frá hvernig hún væri raunverulega aðal hobbý fjölskyldunnar sem hefur gert sitt ýtrasta til að koma henni á framfæri. Sennilega er verið að uppskera laun erfiðisins um þessar mundir.

Við heyrðum upptöku með Sigrúnu síðan hún var 11 ára og söng "Á kránni" gamla sorglega lagið um hann Villa litla. Dapurlegt og krúttlegt í senn að heyra þessa litlu rödd syngja. Við frumfluttum nýjasta lagið hennar "Til í hvað sem er", Íslandsfrumflutningur á fínu lagi.

Sigrún Vala er söngkona sem við eigum eftir að heyra mikið meira í á komandi árum. Hlustið!

http://www.youtube.com/watch?v=7s0CCoBfjgk

 


Þetta jaðrar við að vera ógeðslegt...

...en hrikalega vel gert.

http://www.youtube.com/watch?v=qu9O0-xkjxA


Gult spjald

tryggvi_gudmundssonStolin örfrétt af íþróttavef moggans. Mér fannst þetta fyndið.

Tryggvi Guðmundsson, framherji FH , er grínisti mikill. Þegar Sævar Jónsson dómari leiks HK og FH gaf Sverri Garðarssyni , félaga Tryggva í FH gult spjald á 84. mínútu missti hann gula spjaldið í völlinn en tók ekki eftir því. Tryggvi sá það, náði í spjaldið og hljóp brosandi með það til Sævars og hélt því á lofti.

Vona að það verði ekki lokað á mig fyrir ritstuld.


Úbs

Það er nú kannski meira mál að týna úrani en segjum úrinu sínu.
mbl.is Kínverjar leita að átta kílóum af „týndu“ úrani
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndband dagsins

Myndband dagsins er með liði sem ég veit nákvæmlega ekkert um. Kallaði sig Hollywood beyond og satt að segja man ég ekki hvort eitthvað annað kom frá þeim. Ef ég man rétt er þetta lag frá 1986 og er svosem ekkert týpiskt "eydís" dæmi. Það sem mér finnst flottast er sviðsetningin, þarna fara þessir félagar um öll helstu listaverk Gaudís í Barcelona, eins og Sagrada familia kirkjuna, Park Guell og Casa Milá (sem flestir þekkja sem La Pedrera).  Enjoy!

http://www.youtube.com/watch?v=p4kdh2IcbJc


Baráttan gegn nauðgunarlyfjunum

Bloggarinn Heiða hefur verið að berjast hatrammi baráttu gegn nauðgunarlyfjum þeim sem óprúttnir menn hafa verið að lauma í drykki fólks á skemmtistöðum með hræðilegum afleiðingum fyrir fórnarlambið! Hún hefur farið þess á leit við bloggara að styðja hana í baráttunni og geri ég það með glöðu geði því öllu góðu fólki hlýtur að hrjósa hugur við þessarri skelfilegu hegðun. Hér er texti Heiðu óbreyttur:

Eins og nokkur ykkar hafa kannski tekið eftir, hef ég verið að kynna mér svefnlyfið Flunitrazepam  undanfarið. Flunitrazepam er sama lyf og Rohypnol, engu breytt nema nafninu, og hefur verið þekkt sem nauðgunarlyf í mörg ár. Ég hef leitað eftir svörum og almennum upplýsingum um lyfið undanfarið og niðurstöðurnar eru sláandi.

Þetta tiltekna svefnlyf hefur enga sérstöðu sem er til bóta fyrir þá sjúklinga sem þurfa á svefnlyfi að halda. Á markaðnum eru tugir svefnlyfja sem gagnast sjúklingum alveg jafn vel  og sem ekki hafa þá "kosti" sem nauðgarar sækjast í, þ.e. minnisleysi og almennt rænuleysi til að veita nauðgara mótspyrnu.

Augljósasti kostur lyfsins er að sjálfsögðu sá að nauðgarar geta verið nokkuð vissir um að  fórnarlambinu er nánast ómögulegt að kæra eða framfylgja kæru vegna þessa minnisleysis. Lyfið er stundum notað við dáleyðslu vegna þess að það er nánast hægt að fá fólk til að gera hvað sem er undir áhrifum þess.

Hérna koma linkar á fyrri skrif mín um lyfið og svör Landlæknis. En óvísindaleg könnun mín á því hversu algengt það er að lyfinu sé laumað í drykki kvenna á skemmtistöðum borgarinnar kom mér á óvart.. þrátt fyrir að ég hafi verið nokkuð viss um að þetta sé miklu algengara en fólki grunar svona almennt.
Rohypnol 1

Rohypnol 2

Svör Landlæknisembættisins

Sem konu og móðir tveggja dætra er mér mikið í mun að þessum óþverra sé hent út af lyfjaskrá hér á landi. Á árinu 2006 var rúmlega 11.000 skömmtum ávísað af lyfinu. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Lyfjastofnunnar er best að koma svona málum á framfæri til Lyfjastofnunar, sem síðan leggur þau fyrir Lyfjanefnd.

Læt fylgja póstinn sem ég sendi í dag á netfangið lyfjastofnun@lyfjastofnun.is

Ég vona að sem flestir láti heyra frá sér, karlmenn og konur. Því fleiri sem senda þeim beiðni/kröfu um að lyfið sé tekið af skrá því betra!

 

Lyfjastofnun Ríkisins

Svefnlyfið Flunitrazepam hefur enga jákvæða virkni fyrir þá sjúklinga sem neyta þess fram yfir þá tugi annara svefnlyfja sem eru á lyfjaskrá.

Virka efnið í lyfinu hefur þó þau neikvæðu áhrif að af því skapast algjört minnisleysi og getuleysi til að greina umhverfi sitt. Þessi atriði hafa valdið því að lyfið hefur þann vafasama heiður að vera þekkt sem "nauðgunarlyf" (Date-Rape). Lengi hefur tíðkast, hér á landi sem annars staðar, að lauma því í drykki kvenfólks til að ná fram áðurnefndu minnis- og getuleysi og ef allt fer samkvæmt áætlun fylgir nauðgun í kjölfarið. Það er nánast ógerlegt fyrir fórnarlamb þessa að kæra til lögreglu sökum minnisleysis.

Árið 2006 var Flunitazepam ávísað í ríflega 11.000 skömmtum. Þar sem lyfið hefur enga sérstöðu til bóta fyrir þá sjúklinga sem nota það fer ég þess á leit að Flunitrazepam verði tekið af lyfjaskrá hér á landi hið snarasta.

Öryggi stúlkna/kvenna hlýtur að vega þyngra en svo að nauðsyn teljist til að hafa þetta hættulega lyf í umferð.

Svo bætir Heiða við:

Vil taka það skýrt fram fyrir þá sem nenna ekki að lesa allt sem er að finna þarna í linknum, að ég kynnti mér málið mjög vel á sínum tíma
Allir fagaðilar sem ég talaði við, þ.m.t. Landlæknir og aðst.Landlæknir sögðu að það væru mörg svefnlyf á markaði sem gætu komið í stað Flunitrazipam.
Það væri nauðsynlegt að það væri til á sjúkrahúsum þar sem þetta er notað sem "kæruleysislyf" þegar fólk gengst undir svæfingar. En það er töluvert af lyfjum sem eingöngu eru notuð á sjúkrahúsum og eru þá bara merkt sem slík og ekki hægt að ávísa þeim utan sjúkrahúsa.

Auk þess ræddi ég við yfirlækna nokkurra deilda Háskólasjúkrahúsa og allir sem ég ræddi við voru sammála um að þetta lyf væri ekki nauðsynlegt.

Ég ræddi líka við nokkra starfsmenn Slysamóttöku, lögreglunnar og Stígamóta. Allir þessir aðilar voru sammála um að það væri töluvert um dæmi þar sem greinilegt væri að lyfinu hefði verið notað við nauðganir. En augljóslega lítið um að nauðganir með Flunitrazipam séu kærðar... fórnarlambið man ekki neitt til að kæra.

 

 

 


Hlakka skelfing til

Astropia_veggspjaldLeikstjóri og annar handritshöfunda Astrópíu voru í viðtali hjá mér á dögunum og það sem ég heyrði hjá þeim lofar meira en góðu. Stóru atriðin tekin í cinemascopa, hasar og grín. Hvað meira er hægt að biðja um í einni bíómynd? Æ jú örugglega margt, en þið vitið hvað ég meina. Það á bara að vera gaman að fara í bíó, maður á að gleyma sér í einhverjar 90 mínútur og fara út úr myrkvuðum salnum með sálina í aðeins betra skapi en hún fór inn. Og poppmylsnu í tönnunum.
mbl.is Astrópía vel lukkuð að mati gagnrýnanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband