Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Óprúttnir???
23.8.2007 | 18:45
![]() |
Varað við óprútnum skartgripaþjófum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nei
23.8.2007 | 18:24
![]() |
Barnslík finnast á heimili í Frakklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Önnur hugmynd
23.8.2007 | 16:22

![]() |
Borgarstjóri: Mín vegna má setja kælinn upp aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að falla í vinsældum
23.8.2007 | 16:13
Það eru hræðileg örlög að hafa verið kominn í 18. sætið á þessum undursamlega blogg-vinsældalista og hrapa svo lóðbeint niður í það 28. Ég er gráti næst. Hvað þarf að gera til að verða alveg hrikalega, ægilega, ofsalega vinsæll hér?
Vera með flotta mynd í persónupplýsingunum? Reyndi það í gær og var kallaður Móses. Reyndar ekki leiðum að líkjast. Blogga örstutt um hverja frétt? Nenni því ekki alveg, hef ekki svo víðfemar skoðanir. Og þó. Semja skáldsögu eða örsögur um kynlíf vinafólks míns, nágranna og samstarfsfólks? Gæti virkað. Vera með sætar og krúttlegar lýsingar á atferli konu, barna, páfagauks og hunds? Hugsanlega. Búa mér til gríðarlega ofsafengnar stjórnmálaskoðanir og standa fastar á þeim en gangstétt og vera jafn þver og húsveggur? Já!!!
Eða....
Held samt að ég haldi bara áfram á svipuðum nótum og sjái bara til. Svona vinsældir eru bara aukaatriði hvort eð er.
Takk fyrir að lesa, þeir sem nenna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hugmynd
23.8.2007 | 13:31
![]() |
Bar eld að viðkvæmum stað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tinni vinur minn
23.8.2007 | 13:17
Þegar ég var gutti var Tinni einn besti vinur minn. Ég eignaðist allar bækurnar um leið og þær komu út og sökkti mér í ævintýraheim þessa knáa blaðamanns. Ég var ekkert að spá í hvort hann þyrfti að vera í vinnunni né af hverju hann ætti ekki kærustu. Það skipti engu máli. Ævintýrið var aðalmálið. Mér fannst Svaðilför í Surtsey einhvern veginn skemmtilegasta bókin alltaf. Kannski af því hún gerðist að miklu leyti á Bretlandseyjum sem hafa heillað mig frá unga aldri. Veit ekki af hverju. Mér fannst fyrstu - eða elstu - bækurnar samt alltaf fremur hallærislegar. Ekki eins vandað til persónusköpunar og teikningar allar einfaldari. Börn síns tíma. Tinni í Kongó er einmitt ein af elstu bókunum. Ég held samt að ég hafi ekki beðið einhverja sálarhnekki af að lesa þessar bækur, í mínum huga voru þetta bara ævintýri og áttu ekkert með raunveruleikann að gera. Þó þær væru vel teiknaðar.
Það að halda að svona bækur ýti undir kynþáttafordóma einar og sér er auðvitað bara fordómar í sjálfu sér. Það þarf svo miklu meira til. Ef ég lít í eigin barm tel ég mig einmitt frekar víðsýnan og fordómalítinn mann og þakka það mikið til öllum þeim aragrúa bóka sem ég las í æsku, Tinni þar með talinn.
Látið Tinna vin minn í friði. Hann er orðinn svo gamall!
![]() |
Tinni sleppur við bann í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Um að gera
23.8.2007 | 11:53
![]() |
Vilja að Reykjavikurborg kaupi Laugaveg 4-6 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Landkönnuður óskast
23.8.2007 | 11:45
....til að fara í dimma og drungalega neðanjarðardýflissu, hátt uppi í fjalli. Hér reynir á hugrekki, manndóm og útsjónasemi. Innandyra úir og grúir af fornum munum sem hafa hlaðist upp gegnum aldirnar, fylla dýflissuna svo að hvorki sést til lofts né til gólfs. Það er ekki einu sinni víst að slíkt sé að finna þarna á þessum voðalega stað.
Þarna er myrkur og meinlegir skuggar hvarvetna. Eina lýsingin er af ljósgjafa sem horfinn er í ryk og skít og svo vel falinn að enginn hefur komist að honum í áraraðir. Það er ekki vitað hvort innandyra leynist einhverjar óvættir sem gætu bitið og klórað jafnvel hina hugrökkustu af þeim hugrökku.
Hlutverk landkönnuðarins er að ráðast til inngöngu, moka út öllu hinu forna drasli og finna út af hyggjuviti sínu hvað sé hægt að nýta og hvað sé til þess eins að valda mönnum skaða og tjóni. Sumt af þessu sem þarna liggur er þeirrar náttúru að eigendur dýflissunnar vilja halda því, eiga það til framtíðarnota í hinum illu framtíðaráætlunum sínum.
Hér þarf djarfhuga einstakling sem lætur sér ekki bregða við að mæta hræðilegum óvættum, ókennilegum hlutum og ógnvænlegum atburðum.
Efist eigi. Það þarf alveg einstaklega hugrakkan einstakling til að taka til í geymslunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndband dagsins
23.8.2007 | 09:12
Árið 1983 birtist skyndilega á sjónarsviðinu mjög sérstök skosk hljómsveit sem hét Big Country. Þeir blönduðu á meistaralegan hátt saman þjóðlegum hljóðfærum og hljóðfærum rokkhljómsveitarinnar. Myndbandið sem hér birtist er við eitt af þeirra flottari lögum sem heitir In a big country. Heyrið hvernig þeim tekst að láta gítarinn hljóma eins og sekkjapípa. Ég hafði hugsað mér að segja ykkur sögu Stuart Adamsson, aðalsprautu sveitarinnar, en hún er sennilega of þunglyndisleg. Njótið bara lagsins.
http://www.youtube.com/watch?v=wTqwaTXdPPQ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Líður okkur betur?
22.8.2007 | 19:01
Núna, en fyrir 25 árum þegar það var miklu erfiðara að fá lán? Þegar fólk mætti í sínu fínasta pússi til bankastjórans og bað um milljón þegar það vantaði fimmhundruðþúsund og beið svo dögum saman eftir svarinu?
Núna getur maður fengið lán hvar sem er, þeim er otað í andlitið á okkur hvar sem við komum, og söngurinn byrjar strax við fermingu, heldur áfram gegnum menntaskólann og út úr honum skríður fólk sem skuldar meira en foreldrar okkar skulduðu kannski alla ævina. Það þarf að eignast allt og það þarf allt að vera svo flottast og fínast. Og besta leiðin. Fá lánað fyrir því.
Ef okkur gengur svo eitthvað brösulega að borga af þessu, þá hverfur fallega sölumannsbrosið af andliti bankans, fagurlega orðuðu frösunum um velgengni viðskiptavinarins er stungið undir stól og allt sent beinustu leið í innheimtu.
Þá verður lítið gaman að öllu fallega glingrinu og dótinu. Stundum er minna bara meira.
![]() |
Yfirdráttarlán í sögulegu hámarki og gengisbundin lán heimila vaxa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)