Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Hefndarþorsti
9.8.2007 | 16:20
Það er ekki á hverjum degi sem maður lætur vita hvað aðrir bloggarar eru að bralla en ég mæli með að þið lesið söguna hennar Jónu. Þetta er spennandi hrollur, mannlegur og sorglegur. Passið ykkur bara á að lesa ekki óvart síðasta hlutann fyrst.
Hér er slóðin að síðasta hlutanum: http://jonaa.blog.is/blog/jonaa/entry/282482
Njótið vel og lengi. Það gerði ég allavega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sokkur breytist í Gönguhraðal
9.8.2007 | 13:43
Svona hvísluleikir eru alltaf svo skemmtilegir. Þetta var nú eitthvað sem var stundað í æsku og þótti gríðarfyndið hvernig orð gátu breyst gersamlega eyrna á milli.
Það er fróðlegt að vita hvernig tæplega 1100 manns fara með eitt sakleysislegt orð og hvernig það getur umbreyst á þessarri leið.
Kannski fer bara fyrir því eins og kjaftasögunum - ein fjöður verður að mörgum hænum.
![]() |
Vilja setja heimsmet í hvísluleik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Raki í lofti
8.8.2007 | 15:04
..í Reykjavík. Allavega er óskaplega blautt út að líta. Og grátt. En hér er ekki hætta á skýstrokkum, enginn tefst í jarðlestagöngum og flugvélar komast flestra sinna ferða. Flestallir komast þangað sem þeir þurfa eða ætla sér, að minnsta kosti í vinnuna. Ergó, það er gott að búa í Reykjavík. Og Kópavogi. En það samt ekkert voðalega gaman þegar rignir.
Ég vona að Veðurstofan hætti þessu einelti á okkur borgarbúa og útvegi okkur betra veður eigi síðar en í fyrramálið.
![]() |
Úrhelli og hitasvækja í New York |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Gay Pride Astropia
8.8.2007 | 14:14
Mig langar að minna á síðdegisútvarpið á Útvarpi Sögu í dag kl. 16. Þangað mætir fulltrúi Gay Pride og Hinsegin daga sem einmitt hefjast á morgun. Einnig koma Gunnar Guðmundsson leikstjóri og Ottó Geir Borg handritshöfundur kvikmyndarinnar Astrópía sem verður frumsýnd á næstunni.
Það verður spennandi að fá þetta fólk í heimsókn. Það hefur alltaf verið mikið fjör í kringum Hinsegin daga og Astrópía er er með athyglisverðari íslenzkum myndum hin síðari ár.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Risaslagur
8.8.2007 | 10:23
Ég vil bara minna alla Valsara á að það fer fram risaslagur í L********deild karla í kvöld. Þar mætast reykvízku stórveldin, KR og Valur. Eins og þeir sem fylgjast með fótbolta vita er Valur í næstefsta sæti deildarinnar en KR kúrir sem fyrr á botninum. Nú eru þeir komnir með nýjan þjálfara og kannski hefur mentalitetið innanborðs breyst eitthvað við það. Valsmenn verða allavega að gera sér grein fyrir að KR-ingar eru sýnd veiði en alls ekki gefin.
Nú er bara að fjölmenna í vesturbæinn í kvöld og gefa ekki tommu eftir, hvorki innan né utan vallar. Áfram Valur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Geir Ólafz...
7.8.2007 | 17:56
...var gestur í síðdegisviðtalinu í dag.
Geir er einn af þessum náttúrutalentum sem alltaf er gaman að fá í heimsókn. Hann er bara hann sjálfur og segir það sem hann meinar og meinar það sem hann segir. Í þættinum í dag ræddum við um hvernig hann byrjaði að syngja, fyrstu plötuna sem hann eignaðist og fyrstu hljómsveitina.
Geir Ólafs sagði okkur frá því að hann væri að vinna að nýrri plötu með stórri hljómsveit, 22 manna band takk fyrir. Sú er væntanleg á haustdögum og verður fyrsta plata kappans í 6 ár.
Hann sagði okkur sögur af Frank og Nancy Sinatra og að hún væri fyrsta kvenkyns rokkstjarnan, í framhaldi af því spiluðum við lagið These Boots are made for walking og það var ekki laust við að ég væri sammála Geir um hve töff manneskjan er. Það er ekki síður gleðiefni að vita til þess að hugsanlega sé hún væntanleg til landsins.
Geir hefur verið í söngnámi og tók eina létta aríu meðan á auglýsingum stóð. Það er nokkuð ljóst að kallinn er að verða stórsöngvari.
Við ætlum að fá hann í heimsókn aftur þegar nálgast útgáfu nýju plötunnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Transformers
7.8.2007 | 15:38
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rosalega varð ég pirraður
7.8.2007 | 15:12
Ég var nefnilega í miðjum klíðum að semja færsluna um Lee og Nancy þegar allt sló út, en bara í sekúndubrot. Samt var það nóg til þess að allt sem ég hafði skrifað hvarf og eyddist út. Sem að sjálfsögðu veldur því að það sem þarna stendur er varla svipur hjá sjón. Og ekki svipur á Sjón. Pirrandi þegar svona gerist. Ég hefði haldið að rafmagn væri alveg til friðs nú til dags, að ég tali nú ekki um um hásumar í blíðskaparveðri. En hvað veit ég? Hef ekki minnsta vit á rafmagni. Veit bara að ég þarf á því að halda.
Samt er svolítil nostalgía í því að rifja upp rafmagnsleysisstundir í gamla daga. Þegar allt varð rafmagnslaust kannski í nokkrar klukkustundir. Þá myndaðist einhver stemmning sem ekki er auðvelt að lýsa með orðum - og þó. Gæti kannski heitið baðstofustemmning. Það var kveikt á kertum (ef þau fundust í myrkrinu) og sest niður og spilað eða lesið við bjarmann frá ljósinu.
Mér fannst alltaf pínuleiðinlegt þegar öll rafmagnsljósin kviknuðu aftur og allt varð skjannabjart. Svona getur maður verið skrýtinn.
![]() |
Rafmagnslaust víða um land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta eru göngubomsur
7.8.2007 | 14:55
Á sjöunda áratugnum sló dóttir Franks, hún Nancy rækilega í gegn í tónlistarheiminum með lagi eftir ungan mann að nafni Lee Hazlewood. Allir sem eru komnir til vits og ára muna eftir þessu lagi og sem betur fer heyrist það af og til, ýmist með Nancy eða öðrum minni spámönnum. Þetta er auðvitað lagið These boots are made for walking, djassskotið popplag í göngutakti. Eða eitthvað.
Allavega. Ástæðan fyrir þessarri pælingu er sú að höfundur lagsins hvarf til feðra sinna núna um verzlunarmannahelgina, sennilega saddur lífdaga. Líklega búinn að fá nóg af baráttunni við krabbameinið.
En örugglega ekki búinn að fá nóg af hljómplötugerð og tónsmíðum. Síðasta plata kappans kom út í fyrra og hét Cake or death. Hvað svosem það ný þýðir. Sú plata var sennilega hin 28. í röðinni hjá honum. Þar af voru þrjár þar sem hann vann með Nancy.
Tónsmíðar Lee Hazlewoods hafa verið gefnar út af hinum ýmsu, ólíku listamönnum auk Nancyar Sinatradóttur, meðal annarra Dean Martin, Nick Cave, Primal Scream, Einztursende Neaubauten og Megadeth. Óneitanlega mjög margvíslegur hópur að taka lög eftir gamlan kántrýbolta.
En á meðan fólk hlustar á tónlist, hvaða tæki svosem verða notuð, verður Hazlewood heitins minnst, þó ekki sé nema fyrir þetta eina lag. These boots are made for walking.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sæt frétt
7.8.2007 | 11:48
Einu sinni langaði mig svona rosalega mikið í sælgæti. Ég varð bara gríðarlega illa haldinn og fann hvernig ég gat varla hamið mig. Fyrir hugskotssjónum dönsuðu lakkrísdraumar og hlaupkallar og ég varð að fá sætindi strax, núna, þegar í stað! Ég sá mig fyrir mér fylla alla vasa af gómsætu namminu og verja svo unaðsstundum í sófanum fyrir framan sjónvarpið gúffandi þessu himneska súkkulaði, konfekti og lakkrís í mig......
En....
Svo gekk framhjá mér afskaplega þybbinn maður með lakkríspoka í annarri og dietkók í hinni. Eftir því sem dansandi rasskinnarnar og skoppandi mjaðmaspikið fjarlægðist dró úr sælgætislönguninni og löngun til að smella mér í líkamsrækt og sund fór að gera vart við sig.
Sem betur fer hvarf hún líka.
![]() |
Yfirþyrmandi löngun í sætindi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)