Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Misskilningur
12.8.2007 | 10:23
Innrás víkinganna á breskan fjármálamarkað er hvergi nærri lokið. Þeir hafa bara ákveðið að beita nýjum aðferðum. Eða reyndar eldgömlum. Eins og sést í fréttinni sem var hérna neðar á forsíðu mbl.is:
Hópur fornleifafræðinga og sagnfræðinga siglir nú eftirlíkingu af víkingaskipi frá Hróarskeldu til Írlands.
Málið er bara að þetta eru ekki fornleifafræðingar og sagnfræðingar heldur nýr hópur fjárfesta og yfirtökumanna. Þeir ætla að laumast inn í Bretland gegnum Írland eins og forfeður þeirra gerðu fyrir 1000 árum.
Nú fyrst mega bretarnir fara að vara sig!
![]() |
Vangaveltur í Bretlandi um hvort víkingainnrás sé lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stolt siglir fleyið mitt
12.8.2007 | 01:06
..Þetta hefur nú verið hrikalega gaman. Svona þegar upp var staðið og enginn drukknaður, enginn búinn að týna fötunum sínum og allir bara svona rosalega góðir vinir. Og bíllinn meira að segja á leiðinni upp á land aftur.
![]() |
Bjargað af þaki bíls í Gilsá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sóðar!
11.8.2007 | 18:53
Nú ætla ég að gerast neikvæður. Eða kannski ekki. Veit það eiginlega ekki. Allavega. Það var gott veður í Reykjavík í dag. Eins og lög gera ráð fyrir fórum við út í þetta góða veður. Og sömu lög gera ráð fyrir því að maður fái sér ís. Þess vegna hélt sá hluti fjölskyldunnar sem er heima, í Laugardalinn og sprangaði þar um í góða veðrinu. Dolli fékk gríðarlega athygli hjá öllu kvenkyns sem var á ferli á sömu slóðum og einnig nokkrum karlmönnum. Fyrir þá sem ekki vita er Dolli 8 ára gamall Pomeranian hundur sem heldur stundum að hann sé hvolpur. Heiðdís og dúkkan hennar fengu líka svipaða athygli, en við Sigga öllu minni.
En að aðalmálinu. Við fórum í löngu biðröðina í Ísbúðinni í Álfheimum, þar sem fæst bara dáyndisgóður ís í allskyns útfærslum. Við fengum nú bara afgreiðslu nokkuð fljótt og settumst á bekk á litlu torgi sem er rétt fyrir ofan ísbúðina, sem skartar afskaplega ljótu rauðu listaverki sem ég gleymdi að athuga hvað héti.
Þegar við höfðum gætt okkur á ísunum og bragðarefunum, við náðum meira að segja að klára áður en allt gumsið bráðnaði, gengum við af stað til baka. Þá sá ég hvar ungur maður sem hafði verið að sötra í sig mjólkurhristingi úr ísbúðinni grýtti tómri (eða næstum tómri) dollunni utan af honum út í loftið eitthvað. Ég reyndi að kalla á eftir honum en hann skeytti því engu og töffaraðist í farþegasætið á gulum Honda S2000 sportbíl sem brunaði svo í burtu. Ég er með skráningarnúmerið skrifað hjá mér ef einhver hefur áhuga.
Það er ekki nema von að borgin okkar sé ekki snyrtilegri en raun ber vitni, eins og í þessu tilfelli var ruslatunna í tveggja skrefa fjarlægð en það þótti eitthvað gæjalegra að grýta burtu umbúðunum, og sóða þannig út tilveru annars fólks.
Það er bara ekkert töffaralegra. Þetta er hallærislegt og ber vott um slóðahátt. Og hananú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hverskonar...
11.8.2007 | 15:04
...illmennska fengi nokkurn mann til að myrða saklaust lítið barn. Eða nokkra aðra manneskju ef út í það er farið.
Ég ætla að leyfa mér að óska þess heitt og innilega að Madeleine sé á lífi og vel haldin hvar sem hún er.
![]() |
Lögreglan segir mögulegt að Madeleine McCann sé látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hrikalega getu maður verið klikk
10.8.2007 | 22:17
Og ástæðan? Jú, nú er klukkan að ganga 11 eða 23 á föstudagskvöldi og kvöldmaturinn er í ofninum. Mexikanskt lasagna.... vona bara að það setjist ekki of fast á aukakílóafesturnar í líkamanum.
Langaði bara að deila þessarri bilun með einhverjum. Verði ykkur að góðu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dragdrottningin
10.8.2007 | 17:35
..komst því miður ekki í síðdegisútvarpið. Öðrum starfsmönnum Útvarps Sögu til mikilla vonbrigða, en Steini Díva kemur bara seinna í staðinn. Brynjar, okkar maður á Akureyri fræddi okkur um Fiskidaginn mikla á Dalvík. Sem er magnað fyrirbæri þar sem þessi litli bær fyrir norðan margfaldast í íbúafjölda, öllum er boðið upp á fisk í allskonar formi, þar á meðal sem vöfflur. Hljómar ekki kræsilega en Brynjar sagði það vera herramannsmat.
Felix Bergsson sagði frá göngunni um söguslóðir samkynhneigðra, sem hann og Baldur Þórhallsson stóðu fyrir í gærkvöldi og aftur í kvöld. Þær voru víst margar og kyngimagnaðar sögurnar af baráttu samkynhneigðra sem yfir 100 manns fengu að heyra af vörum þeirra félaga í göngunni.
Ég fletti Séð & heyrt þar sem laun stjarnanna á Íslandi voru til umræðu, og nokkuð er ljóst að misjafnt er mannanna lánið þar. Fræga og fallega fólkið er með allt frá 21.000 krónum í mánaðarlaun upp í nokkrar milljónir.
Björn Berg tók við kl. 17 með fótboltaþáttinn og var honum kippt inn í útsendingu rétt fyrir fimm - og hvað haldiði að hann hafi talað um? Jú, mikið rétt. Fótbolta. Hann er voða spenntur fyrir enska boltanum og 1.deildinni íslensku - og eiginlega öllu þar sem fótbolti kemur við sögu.
Stillið á Útvarp Sögu kl. 16:00 á mánudaginn. Þá verður mikið um að vera.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Drepum...
10.8.2007 | 12:36
![]() |
16 ára réttindalaus á mótorhjóli mömmu sinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ómægod
10.8.2007 | 10:44
![]() |
Gengi krónu og hlutabréfa lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hláturskast blaðamannsins...
10.8.2007 | 10:12
...eða konunnar.
Í Blaðinu í gær birtist grein eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur þar sem hún lýsir hláturskasti sem hún fékk eftir að hafa fengið tíðindi af því að jafnréttisráðherra Noregs hefði ákveðið að setja á fót sérstaka karlanefnd til að rétta stöðu karla. Mér finnst yfirleitt gaman að lesa pistla Kolbrúnar en að þessu sinni þykir mér hún hafa skotið sig í fótinn.
Kolbrúnu þótti þessi ákvörðun jafnréttisráðherrans svona afskaplega fyndin vegna þess að "frá aldaöðli hafa karlar haft völd og áhrif í þessum heimi." Og vegna þess að einhverjir karlmenn hafa haft þessi völd og áhrif finnst Kolbrúnu það sprenghlægilegt að huga að hinum körlunum sem aldrei hafa haft þessi völd og áhrif. Mikið rétt, karlar hafa ráðið miklu, en það hafa líka verið til valdakonur, kannski ekki eins margar en alltaf einhverjar. En það er bara ekki málið.
Því má nefnilega ekki gleyma að þrátt fyrir að karlar hafi haft svona mikil völd í gegnum tíðina hefur það langt í frá verið ALLIR karlmenn sem þau völd hafa haft. Það hefur barasta á hverjum tíma, verið stærstur hluti karla sem engu ráða, hafa engin ítök og eiga enga peninga. Menn sem mæta bara í vinnuna sína á morgnana, skila sínu og hverfa svo aftur heim án þess að hafa traðkað á einum eða neinum.
Það má ekki gleyma því að það er eðli valdsins að halda því hjá sér og hver sem hefur völdin er ekkert að láta þau af hendi eitthvað annað. Út um gjörvallan heim eru stórir hópar fólks af báðum kynjum sem hafa ekki þessi völd og ítök sem Kolbrúnu finnst svo mikilvæg. Lífið snýst um svo mikið meira en að hafa slíkt. Á undanförnum áratugum hefur það svo gerst að sá hópur karla sem ekki hefur þessi mikilvægu völd hefur horfið sjónum og misst fótanna. Það eru þeir sem norski jafnréttisráðherrann hefur áhyggjur af.
Það sem er mikilvægast í jafnréttisumræðunni og -framkvæmdinni að mínu viti er einmitt þetta sem norski jafnréttisráðherrann virðist skilja, að ALLIR hvernig sem þeir eru í laginu, hvernig sem þeir eru á litinn, hvaða kynhneigð, trú, stjórnmálaskoðanir eða hvað annað þeir hafi, þurfa að hafa sama rétt til hvers sem er í þjóðfélaginu. Það er varla hægt að fá hláturskast yfir því, eða hvað?
Það er að sjálfsögðu mikilvægt að jafna skarðan rétt kvenna, það er líka mikilvægt að jafna rétt barna, samkynhneigðra, geðsjúkra, útlendinga, gyðinga, múslíma, og svo má lengi telja. Það er ekki hægt að taka einn hóp út og gera gys að því að rétta eigi hlut hans, eingöngu vegna þess að einhverjir af sömu tegund ráði svo miklu.
Mér finnst það heimskulegt.
Jafnrétti næst ekki nema við stöndum öll saman og berum virðingu hvert fyrir öðru, á meðan við hlæjum að misréttinu breytist það ekkert!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Aumingja Johnson
9.8.2007 | 16:33
Þetta held ég að sé frekar kjánaleg ákvörðun hjá Hr. Johnson og hr. Johnson sem búa til barnapúður. Til hvers er farið af stað að hamast í einu af jákvæðari merkjum veraldar með þessum hætti? Ég held að þegar maður sér rauðakrossinn á einhverri vöru gerir maður ráð fyrir að hún sé ætluð til nota til að hlú að manni.
Það er allavega nokkuð öruggt að í mínum huga auka þeir Johnson bræður ekki hróður sinn með þessu.
![]() |
Rauði krossinn kærður fyrir að nota rauða krossinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)