Granada á Spáni
11.7.2008 | 18:31
Alhambra höllin í Granada - þangað langar mig - aftur!
Spánskt orðtak segir, "Sá hefur ekkert séð, sem eigi hefur séð Granada". Það eru menjarnar frá tímum Mára sem gera borgina svo forvitnilega. Á sínum tíma var þessi borg á Suður-Spáni einstæð í Evrópu. Háskólinn í Kordóba var meðal frægustu háskóla í víðri veröld og sóttu hann stúdentar þúsundum saman víðsvegar að - einnig frá Norðurlöndum.
Í borg eins og Granada voru 70 opinber bókasöfn. Göturnar voru steinlagðar og jafnvel lýstar upp. Enn ber Granada sterkan svip frá þessum tíma, en það er einkum tvennt sem áhugavert er að skoða í borginni, Alhambra höllin og Dómkirkjan þar sem Ferdinand og Isabella eru jarðsett. Alhambra stendur uppi á fjallsrana en fyrir neðan breiðir úr sér hinn frjósami dalur umhverfis fljótið Darro. Vegurinn liggur í kröppum beygjum upp brattar brekkurnar að höllinni. Undir þykku laufskrúði álmsins má leita hælis fyrir brennandi geislum sólarinnar.
Það prýðir smágerð og yndisleg fegurð höllina að innan og þungir hrjúfir múrarnir að utanverðu eru í einkennilegu ósamræmi við hana. Inni í hallargarðinum og höllinni eru salir, súlnagöng, trjágöng og skrautgarðar. Við erum stödd í einhvers konar draumahöll.
Frægasti staðurinn í Alhambra er Ljónagarðurinn, þar standa 128 marmarasúlur sem eru tengdar fíngerðum bogum. Í miðjum salnum er gosbrunnur úr alabasti sem 12 ljón úr marmara halda uppi. Úr munni ljónanna rennur vatnsbuna niður í kyrra laug. Appelsínutré standa í hverju horni garðsins.
Það er líka áhugavert að skoða böðin þar sem kalt og heitt vatn er leitt í tveimur rennum úr hitunarherbergi inn á sjálft baðið. Veggirnir eru skreyttir fagurlega í allskyns litum en þakið er rofið til að hleypa inn fersku lofti.
Ég hef ekki komið til Granada síðan árið 1988 en dulmögn staðarins eru enn í fersku minni og mér þykir kominn tími til að heimsækja þessa töfrandi borg, fyrr en síðar.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Skelfing
10.7.2008 | 17:16
Ég held að ég verði að reyna að gleyma þessum fréttum eins hratt og ég mögulega get. Nú greip um sig hinn gamalkunni flugbeygur. Sem betur fer er ekkert útlit fyrir að ég sé að fara í flug alveg á næstunni, þannig að kannski verð ég búinn að jafna mig áður en ég fer næst.
Mér dettur samt helst í hug að þarna hafi flugmennirnir bara verið að sýna og sanna stjórn Icelandair hversu heimskulegt það væri af félaginu að segja fjölda hæfra íslenzkra flugmanna upp....
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Lendingin gekk vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Eftirlýstur
10.7.2008 | 14:49
Doktor Dauði (einn af mörgum) fæddur 28.júní 1914 og heitir réttu nafni Aribert Heim. Hann er Austurríkismaður, lærði til læknis og notaði kunnáttuna í heldur betur vafasömum tilgangi í Mauthausen búðunum í Austurríki á tímum Síðari Heimsstyrjaldarinnar. Það er talið að hann búi í Chile en ef einhver rekst á hann á Laugaveginum eða í Kringlunni er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að reyna ekki að nálgast hann því hann á það til að sprauta í fólk bensíni eða appelsínulímonaði. Öruggara er að hringja í Símon Wiesenthal stofnunina og láta vita af þessum landafjanda á ferð.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Himinlifandi...
9.7.2008 | 18:06
...það er svo æðislegt að eitthvað almennilegt fólk skuli vera að koma sér fyrir á Þingvöllum. Fólk með þyrlur, fjórhjól og glæsijeppa. Og fólk sem getur byggt sér almennileg hús í þjóðgarðinum í staðinn fyrir þessa endemiskofa sem þarna hefur verið dritað út um allt. Ég er loksins orðinn stoltur af því að vera Íslendingur.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Þyrlur sveima yfir þjóðgarði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Abu Dhabi
9.7.2008 | 17:51
Er höfuðborg Sameinuðu Arabísku furstadæmanna og er á eyju í Persaflóa. Þar búa um milljón manns og lifa á olíuauði landsins og borgarinna þó borgarbúar hafi á síðustu árum byggt afkomu sína æ meira á ferðamannaiðnaði og svo auðvitað fjárfestingum um víða veröld.
Borgin er ævagömul en auðvitað orðin einhver sú nýtízkulegasta í heiminum eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Chrysler byggingin seld á 60,7 milljarða króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þetta gerist stundum hjá mér...
9.7.2008 | 13:56
Sporðdreki: Þú munt eiga í hrókasamræðum, m.a. við fólk sem þú þekkir ekki neitt. Þú beislar þinn persónulega styrk með því að pæla í hvað þú vilt fá út úr samtölunum.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.
9.7.2008 | 11:28
Þessi athugasemd er fyrir neðan síðustu færslu.
Einhverjir hafa ekki haft húmor fyrir því að blanda saman frétt um uppgerð á gamalli brú og brandara um uppgerð á konu. Nema að þeim hafi mislíkað að Guði almáttugum væri blandað í skensið. Ég skal svosem ekkert um það segja og get alveg þolað hvað sem er í því efni. Það væri aftur á móti rosalega gaman að vita hversu margir þurfa að benda á óviðeigandi tengingu við frétt, til að mbl.is loki á tenginguna og líka hvort lokunin verði sjálfkrafa eftir ákveðinn fjölda fýlubomba eða hvort mbl.is skoði hverju sinni, hvort réttlætanlegt sé að loka á tenginguna. Það væri líka forvitnilegt að vita hvort hægt sé að fýlupokast oft úr sömu tölvu eða hvort menn hafi bara tækifæri til að vera fúlir einu sinni, hver úr sinni vél.
Annars er ég bara kátur, enda skín sólin og andvarinn leikur um það sem eftir er af hárinu...
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Of miklar viðgerðir geta verið stórhættulegar
7.7.2008 | 20:54
45 ára gömul kona fékk hjartaáfall og var flutt á sjúkrahús.
Þegar hún var á skurðarborðinu sá hún ljósið
Þegar hún hitti Guð, spurði hún: Er minn tími kominn?
Guð svaraði: Nei, elskan mín góða, þú átt ennþá eftir 43 ár, 2 mánuði og 8 daga ólifaða
Á vöknun eftir aðgerðina ákvað konan að vera lengur á sjúkrahúsinu og láta gera á sér andlitslyftingu, fitusog, brjóstastækkun og svuntuaðgerð.
Hún meira að segja lét kalla eftir fólki til að lita á sér hárið og hvítta tennurnar.
Fyrst hún átti svona langt eftir ólifað var alveg eins gott að gera sem mest úr því.
Eftir síðustu aðgerðina var hún útskrifuð og mátti fara heim.
Þegar hún var að fara yfir götuna á leið heim, varð vesalings konan fyrir rútu og steindó.
Þegar hún hitti Guð aftur varð hún fojj og hnussaði: Ég hélt þú hefðir sagt að ég ætti rúmlega 43 ár eftir ólifuð ..af hverju vísaðiru mér ekki veginn frá sjúkrabílnum?!
Guð svaraði: Já en ég þekkti þig bara ekki aftur "
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Örnólfsdalsbrú gerð upp |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Merkilegt réttarfar.
6.7.2008 | 12:03
Svo virðist sem fimm útlendir karlmenn hafi ráðist inn á Íslending sem býr í einu af leiguherbergjum í húsnæðinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hann varðist árásinni með hnífum og særði einn. Sá var fluttur á slysadeild með áverka á brjósti. Hnífamaðurinn íslenski var handtekinn og gistir fangageymslur.
En ég spyr, voru árásarmennirnir sendir heim í te og skonsur á meðan sá sem fyrir árásinni varð var settur í járn og stungið í steininn? Þetta er auðvitað fáránlegt, en hefur þó skírskotun í lög.
Til eru lög um neyðarvörn sem oft er kölluð sjálfsvörn í daglegu tali. Í 12.gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 segir svo:
12. gr. Það verk er refsilaust, sem menn vinna af neyðarvörn, að því leyti sem það hefur verið nauðsynlegt til þess að verjast eða afstýra ólögmætri árás, sem byrjuð er eða vofir yfir, enda hafi ekki verið beitt vörnum, sem séu augsýnilega hættulegri en árásin og tjón það, sem af henni mátti vænta, gaf ástæðu til.
Hafi maður farið út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar, og ástæðan til þess er sú, að hann hefur orðið svo skelfdur eða forviða, að hann gat ekki fullkomlega gætt sín, skal honum ekki refsað.
Samkvæmt 12. grein er neyðarvörn lögmæt réttarvörsluathöfn manns, sem felur í sér nauðsynlega beina valdbeitingu gegn öðrum manni eða mönnum, til þess að verjast eða afstýra ólögmætri árás á þann, sem neyðarvörninni beitir, eða einhvern annan. Í 2. málsgreininni felst þó greinilega að handtaka má þann sem beitir meira afli sem er hættulegra en árásin getur talist. Í þessu tilfelli átti maðurinn sem ráðist var á af fjölda manns sem sagt að spyrja þá kurteislega hvort þeir væru með hnífa áður en hann tók sinn upp og fór að reyna að verjast með honum. Það hefur greinilega gleymst þegar lagagreinin var samin í rólegheitunum á Alþingi, að fólki bregður hroðalega við árás og býst til varnar af miklum krafti og án þess að velta sérstaklega fyrir sér hvort varnirnar séu "hættulegri" en árásin. Svo má heldur ekki gleyma því að oft þarf vörnin að vera hættulegri en árásin til að henni ljúki.
Dæmi ef karlmaður ræðst að konu og dregur hana með sér í húsasund og heldur henni fastri meðan hann reynir að koma fram vilja sínum við hana, og konan sparkar af alefli í punginn á manninum, er þá vörn konunnar orðin hættulegri en árásin? Það mætti halda því fram með þeim rökum að það sé hættulegra að sparka en að halda manneskju fastri með handafli, en afleiðingar árásarinnar hefðu orðið mun alvarlegri fyrir konuna hefði hún ekki beitt þessu afli. Því þyrfti að sjálfsögðu að horfa til hugsanlegra afleiðinga, niðurstöðu árásarinnar þegar metið er hvort varnaraflið teljist of mikið ekki. Árás hóps manna á einn mann getur orðið skelfileg fyrir hann, ef hann grípur ekki til annars fulltingis, eins og t.d. að draga upp hníf. Með þessu er ég ekki að hvetja til hnífanotkunar almennt til annars en að matast með og kannski tálga einstaka spýtukall, en hvað í ósköpunum átti maðurinn annað að gera? Hvað hefðum við öll gert? Varist með offorsi eða boðið upp á appelsín?
Mig langar bara að vita hvort það sé rétt eins og skín í gegn í fréttinni, að þeir sem réðust að hinum handtekna hafi ekki verið teknir höndum og ef svo er, hvers vegna í ósköpunum það var ekki gert?
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Líkamsárásir og eftirför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ljóð dagsins
5.7.2008 | 18:45
Bell bottomed tear - The Beautiful South
http://www.youtube.com/watch?v=E9G2LQ31Cnw&NR=1
This is the dinner prepared
This is the dress that I made
This is the child I brought up
And this is the woman you laid
This is the woman you laid
This is the perfume I wore
This is the hotel we stayed
This is the way that I lay
And this is the woman you laid
This is the woman you laid
We promise ourselves this is no one-night stand
Let us draw all the curtains and strike up the band
And Im thrilled by gentlest touch of your hand we pretend
Theres a tear, theres a tear
Not through confusion through fear, through fear
This is the smile that I wore
This is the song that we played
This is the way that I lay
And this is the woman you laid, this is the woman you laid
Next morning our eyes filled with sleepy regret
A kiss and goodbye and a long cigarette
But the pillow I lay on is cold and its wet
Cant pretend
Its a tear, its a tear
Not through confusion, through fear, through fear
And knowing at least that love came so near
Just adds to the weight of this bell bottomed tear
Roll out the red carpets and unplug the phone
Root out the photos youve already shown
Cos this is one night you wont sleep alone
Just one night
Theres a tear theres a tear
Not through confusion through fear, through fear
And knowing at least that love came so near
Just adds to the weight of this bell bottomed tear
Theres a tear, theres a tear
Not through confusion, through fear
Not through confusion, through fear.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)