Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

shooting_the-computer 

Þessi athugasemd er fyrir neðan síðustu færslu.

Einhverjir hafa ekki haft húmor fyrir því að blanda saman frétt um uppgerð á gamalli brú og brandara um uppgerð á konu. Nema að þeim hafi mislíkað að Guði almáttugum væri blandað í skensið. Ég skal svosem ekkert um það segja og get alveg þolað hvað sem er í því efni.  Það væri aftur á móti rosalega gaman að vita hversu margir þurfa að benda á óviðeigandi tengingu við frétt, til að mbl.is loki á tenginguna og  líka hvort lokunin verði sjálfkrafa eftir ákveðinn fjölda fýlubomba eða hvort mbl.is skoði hverju sinni, hvort réttlætanlegt sé að loka á tenginguna. Það væri líka forvitnilegt að vita hvort hægt sé að fýlupokast oft úr sömu tölvu eða hvort menn hafi bara tækifæri til að vera fúlir einu sinni, hver úr sinni vél.

Annars er ég bara kátur, enda skín sólin og andvarinn leikur um það sem eftir er af hárinu...

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Húmorsleysi er heilsufarsvandamál.  Ég næ ekki upp í svona fólk.  Vona að viðkomandi hafi liðið betur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.7.2008 kl. 11:43

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Jenný, ég efast ekki um það. Og það gleður mig mjög

Markús frá Djúpalæk, 9.7.2008 kl. 11:56

3 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Æji Markús minn ertu orðin það"vitur"að höðuðið er farið að vaxa uppúr, þinni meðfæddu úlpu. Hins vegaar tel ég líklegra að ef"rétta"fólkið kvartar yfir fréttatengingu, þá loki þeir á ALMENNING.

Eiríkur Harðarson, 9.7.2008 kl. 13:21

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Æjá... armæða og böl

Markús frá Djúpalæk, 9.7.2008 kl. 13:39

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

.....ertu nokkuð að missa þig í paranoju? Tengingin hefur ekkert verið rofin! Allavega tengist ég fréttinni ef ég smelli......

Hrönn Sigurðardóttir, 9.7.2008 kl. 13:49

6 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Aaaaaarrrghhhh ...they´re out to get me ....

Markús frá Djúpalæk, 9.7.2008 kl. 13:55

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 9.7.2008 kl. 14:13

8 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Sá Loki að sér?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 9.7.2008 kl. 14:17

9 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

ONei - ekki aldeilis - enda býzt enginn við því. Klagar samt ekkert uppá mig

Markús frá Djúpalæk, 9.7.2008 kl. 14:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband