Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008
Húrra...
16.7.2008 | 10:22
..eða þannig. Ætla samt ekki að taka til baka það sem ég sagði áðan.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
N1 lækkar verðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Skammist þeir sín
16.7.2008 | 10:19
Stóru olíufélögin, Olís, Skeljungur og N1 íhuga nú hvort lækka skuli verð á eldsneyti í dag. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um 6 dollara tunnan í gær sem er ein mesta lækkun í 17 ár, og stendur í stað í morgun ef marka má þessa frétt. Fulltrúar stóru olíufélaganna sögðu í dag að þróun gengismarkaða myndi ráða miklu um það hvort lækkunin skili sér til neytenda.
Þeir þurfa nú ekki að setjast niður, íhugulir á svip til að ákveða hvort hækkun verði í kjölfar hækkana á heimsmarkaðnum. Neinei, hækkunin kemur til áhrifa í skyndingu því ekki mega félögin neinu tapa. Hverskonar afglapar eru það sem stjórna þessum félögum? Ruddamennskan, yfirgangurinn og fíflskan í þessu viðmóti er svo svakaleg að mér finndist réttast að fara allra sinna ferða gangandi, hjólandi eða ríðandi næstu daga í mótmælaskyni. Ég meina það, held að það væri meira að segja reynandi að nota ekki almenningsamöngurnar því þær nota eldsneyti sem keypt er af þessum snillingum. Ég held nefnilega að við ættum ekki að gera ráð fyrir neinni lækkun því krónan hefur veikst örlítið í morgun. Blessuð sé minning hennar.
Í Guðs friði.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Engar breytingar á olíuverði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fljúgðu hátt!
15.7.2008 | 20:52
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Söngur villiandarinnar
15.7.2008 | 19:04
Í vor kom ég sunnan með sólskin í hjarta,
hún seiddi mig dýrðin á landinu bjarta.
Ó íslenska byggð, þú átt ein mína tryggð.
Ó íslenska byggð, þú átt ein mína tryggð.
Ég byggði mér hreiður við bakkana lágu
og bjó þar með ungunum, fallegu, smáu.
Í friði og ást sem að aldreigi brást.
Og bóndinn minn prúður á bakkanum undi.
Hann brosti við ungunum léttum á sundi.
Þeir léku sér dátt, og þeir döfnuðu brátt.
En dag nokkurn glumdi við gjallandi seiður,
Það glampaði eldur, ég flúði mitt hreiður.
Og bóndinn minn dó, þá var brostin mín ró.
Og annar minn vængur var brotinn og blóðið
með brennandi sársauka litaði flóðið.
Ég hrópaði hátt út í heiðloftið blátt:
"Ó flýið þið börn mín til framandi stranda,
með fögnuði leitið þið öruggra landa."
Svo hvarf hún mér sýn ljúfust hamingjan mín.
Við íslensku vötnin er fegurð og friður
og fagnandi ríkir þar vornæturkliður.
Ef gefið þið grið, öllum fuglunum frið.
Ef gefið þið grið, öllum fuglunum frið.
Jakob V. Hafstein
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Hreindýraveiðin hafin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þetta verður töff
15.7.2008 | 14:39
Gangi ykkur vel strákar!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Byrjunarlið Vals sem leikur gegn BATE Borisov | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pierce Brosnan þykir enginn stórsöngvari
15.7.2008 | 11:51
Reyndar þykir Brosnan svo lítill söngvari að salurinn skellti upp úr um leið og hann hóf upp raust sína til söngs í laginu SOS. Kannski var ástæðan í og með sú að við erum vanari þessum heillandi írska leikara í hlutverki njósnara hennar hátignar eða hörkutóla af öðrum uppruna sem dytti ekki til hugar að syngja í sturtu, hvað þá við önnur tækifæri.
Ég hafði ljómandi gaman af Mamma Mia, hún er þeirrar náttúru að kalla fram hlátur og grátur á sama tíma. Enda hefur mig langað lengi að sjá söngleikinn. Söguþráðurinn er í sjálfu sér ekki merkilegur, sagan er um tvítuga stúlku sem býr ásamt einstæðri móður sinni, hótelrekanda, á grískri eyju. Meðan verið er að undirbúa brúðkaup stúlkunnar kemst hún yfir rúmlega tuttugu ára gamla dagbók móður sinnar sem leiðir í ljós að þrír menn gætu hugsanlega verið faðir hennar. Hún grípur til sinna ráða og ákveður að bjóða þeim öllum til brúðkaupsins, sem þeir þiggja.
Glens og gleði ræður ríkjum í myndinni borið uppi af hinni frábæru tónlist ABBA flokksins. Allir leikarar myndarinnar skila sínu með prýði, ungir sem aldnir. Það var sérstaklega gaman að sjá hvað Meryl Streep sem verður sextug á næsta ári lítur vel út. En tónlistin er auðvitað snilldin sem límir myndina saman.
Eitt stakk svolítið í augun, myndin gerist greinilega í nútímanum en þegar gamlar myndir birtast af hinum hugsanlegu feðrum eru tveir þeirra hippar og sá þriðji pönkari. Fyrir rúmum tuttugu árum voru flestir almennilegir töffarar með blásið hár og sítt að aftan í snjóþvegnum gallabuxum, reyndar var kannski einn og einn pönkari eftir. Hippar voru aflóga grín á seinni hluta níunda áratugarins, þannig að vonbiðlarnir hefðu verið óttalegir lúðar á þeim tíma. Mig grunar að ástæðan fyrir þessu sé sú að söngleikurinn var frumsýndur á sviði 1999 sem gerir síðhærða hippa og leðurklædda pönkara örlítið eðlilegri tuttugu árum fyrr. En þetta er nú bara smámunasemi og tuð.
Ég mæli eindregið með að fólk flykkist á myndina Mamma Mia sér til yndis og ánægju!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Mamma mía! Íslendingar flykkjast á ABBA-mynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Manhattan Pylsuhagfræðin
15.7.2008 | 10:21
Maður nokkur ákvað að opna pylsuvagn á Manhattan, þar sem átti nú að vera aldeilis bisniss í slíkum rekstri. Það gekk nú ekkert sérlega vel, þannig að gæinn lagði hausinn í bleyti og velti fyrir sér hvað hann ætti að gera til að rétta reksturinn við. Hann fékk snilldarhugmynd, fór að bjóða tvær pylsur á verði einnar en smurði aðeins ofan á verðið á meðlætinu og gosinu. Skyndilega tók reksturinn við sér, allt blómstraði og gekk pylsusalanum í hag. Það gekk svo vel að hann gat sett upp nokkur auglýsingaskilti víða um borgina og enn jókst hagsæld pylsuvagnseigandans. Hann hafði meira að segja efni á að kosta son sinn til háskólanáms í frábærum skóla. Guttinn valdi hagfræði og gekk bara vel í náminu.
Í einu jólafríinu kom strákur heim og ræddi við föður sinn pylsusalann, um hvernig reksturinn gengi. Sá gamli bar sig vel, enda gekk ljómandi vel hjá honum sem fyrr. En strákurinn, orðinn nærri fullnuma í hagfræði vildi föður sínum vel og varaði hann við að kreppa væri framundan. Það yrði aldeilis að gæta aðhalds og sparnaðar á næstu árum og hvatti hagfræðistúdentinn föður sinn eindregið til að fylgja þeim ráðum.
Vitandi að sonurinn væri að verða sprenglærður hagfræðingur fór sá gamli að ráðum hans, hætti að bjóða tvær fyrir eina og lækkaði verðið á meðlætinu. Að því búnu slökkti hann á auglýsingaskiltunum og hætti við fyrirætlanir um að opna nýjan pylsuvagn.
Að nokkrum vikum liðnum hringdi hann í son sinn og þakkaði honum ráðin; "Þú hafðir alveg rétt fyrir þér sonur sæll, það er skollin á kreppa. Það hefur barasta dregið verulega saman í pylsusölunni síðustu vikurnar. Mikið var gott að ég fór að ráðum þínum."
Mórall sögunnar: Borgar sig alltaf að hlusta á hagfræðingana?
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Deila um stöðu íslenskra efnahagsmála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þarf ég að segja meira?
12.7.2008 | 09:14
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Vondu strákarnir sigra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Granada á Spáni
11.7.2008 | 18:31
Alhambra höllin í Granada - þangað langar mig - aftur!
Spánskt orðtak segir, "Sá hefur ekkert séð, sem eigi hefur séð Granada". Það eru menjarnar frá tímum Mára sem gera borgina svo forvitnilega. Á sínum tíma var þessi borg á Suður-Spáni einstæð í Evrópu. Háskólinn í Kordóba var meðal frægustu háskóla í víðri veröld og sóttu hann stúdentar þúsundum saman víðsvegar að - einnig frá Norðurlöndum.
Í borg eins og Granada voru 70 opinber bókasöfn. Göturnar voru steinlagðar og jafnvel lýstar upp. Enn ber Granada sterkan svip frá þessum tíma, en það er einkum tvennt sem áhugavert er að skoða í borginni, Alhambra höllin og Dómkirkjan þar sem Ferdinand og Isabella eru jarðsett. Alhambra stendur uppi á fjallsrana en fyrir neðan breiðir úr sér hinn frjósami dalur umhverfis fljótið Darro. Vegurinn liggur í kröppum beygjum upp brattar brekkurnar að höllinni. Undir þykku laufskrúði álmsins má leita hælis fyrir brennandi geislum sólarinnar.
Það prýðir smágerð og yndisleg fegurð höllina að innan og þungir hrjúfir múrarnir að utanverðu eru í einkennilegu ósamræmi við hana. Inni í hallargarðinum og höllinni eru salir, súlnagöng, trjágöng og skrautgarðar. Við erum stödd í einhvers konar draumahöll.
Frægasti staðurinn í Alhambra er Ljónagarðurinn, þar standa 128 marmarasúlur sem eru tengdar fíngerðum bogum. Í miðjum salnum er gosbrunnur úr alabasti sem 12 ljón úr marmara halda uppi. Úr munni ljónanna rennur vatnsbuna niður í kyrra laug. Appelsínutré standa í hverju horni garðsins.
Það er líka áhugavert að skoða böðin þar sem kalt og heitt vatn er leitt í tveimur rennum úr hitunarherbergi inn á sjálft baðið. Veggirnir eru skreyttir fagurlega í allskyns litum en þakið er rofið til að hleypa inn fersku lofti.
Ég hef ekki komið til Granada síðan árið 1988 en dulmögn staðarins eru enn í fersku minni og mér þykir kominn tími til að heimsækja þessa töfrandi borg, fyrr en síðar.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Skelfing
10.7.2008 | 17:16
Ég held að ég verði að reyna að gleyma þessum fréttum eins hratt og ég mögulega get. Nú greip um sig hinn gamalkunni flugbeygur. Sem betur fer er ekkert útlit fyrir að ég sé að fara í flug alveg á næstunni, þannig að kannski verð ég búinn að jafna mig áður en ég fer næst.
Mér dettur samt helst í hug að þarna hafi flugmennirnir bara verið að sýna og sanna stjórn Icelandair hversu heimskulegt það væri af félaginu að segja fjölda hæfra íslenzkra flugmanna upp....
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Lendingin gekk vel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)