Pierce Brosnan þykir enginn stórsöngvari

Mammamia2 

Reyndar þykir Brosnan svo lítill söngvari að salurinn skellti upp úr um leið og hann hóf upp raust sína til söngs í laginu SOS. Kannski var ástæðan í og með sú að við erum vanari þessum heillandi írska leikara í hlutverki njósnara hennar hátignar eða hörkutóla af öðrum uppruna sem dytti ekki til hugar að syngja í sturtu, hvað þá við önnur tækifæri.

Mammamia1 

Ég hafði ljómandi gaman af Mamma Mia, hún er þeirrar náttúru að kalla fram hlátur og grátur á sama tíma. Enda hefur mig langað lengi að sjá söngleikinn. Söguþráðurinn er í sjálfu sér ekki merkilegur, sagan er um tvítuga stúlku sem býr ásamt einstæðri móður sinni, hótelrekanda, á grískri eyju. Meðan verið er að undirbúa brúðkaup stúlkunnar kemst hún yfir rúmlega tuttugu ára gamla dagbók móður sinnar sem leiðir í ljós að þrír menn gætu hugsanlega verið faðir hennar. Hún grípur til sinna ráða og ákveður að bjóða þeim öllum til brúðkaupsins, sem þeir þiggja.

Glens og gleði ræður ríkjum í myndinni borið uppi af hinni frábæru tónlist ABBA flokksins. Allir leikarar myndarinnar skila sínu með prýði, ungir sem aldnir. Það var sérstaklega gaman að sjá hvað Meryl Streep sem verður sextug á næsta ári lítur vel út. En tónlistin er auðvitað snilldin sem límir myndina saman.

Mammamia3 

Eitt stakk svolítið í augun, myndin gerist greinilega í nútímanum en þegar gamlar myndir birtast af hinum hugsanlegu feðrum eru tveir þeirra hippar og sá þriðji pönkari. Fyrir rúmum tuttugu árum voru flestir almennilegir töffarar með blásið hár og sítt að aftan í snjóþvegnum gallabuxum, reyndar var kannski einn og einn pönkari eftir. Hippar voru aflóga grín á seinni hluta níunda áratugarins, þannig að vonbiðlarnir hefðu verið óttalegir lúðar á þeim tíma. Mig grunar að ástæðan fyrir þessu sé sú að söngleikurinn var frumsýndur á sviði 1999 sem gerir síðhærða hippa og leðurklædda pönkara örlítið eðlilegri tuttugu árum fyrr. En þetta er nú bara smámunasemi og tuð.

Ég mæli eindregið með að fólk flykkist á myndina Mamma Mia sér til yndis og ánægju!

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

 


mbl.is Mamma mía! Íslendingar flykkjast á ABBA-mynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Þetta er sæt og skemmtileg mynd en hljóðið mætti vera betra. Pínu svona eins og það sé sungið ofan í dós.

Pierce Brosnan er algjört augnakonfekt og myndin í heild flott með fullt af gömlum góðum Abbalögum sem passa skemmtilega við söguþráðinn.

Sigríður Þórarinsdóttir, 15.7.2008 kl. 18:37

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Augnakonfekt já.... og eyrna ...

Markús frá Djúpalæk, 15.7.2008 kl. 18:47

3 Smámynd: Beturvitringur

Heyrði sagt um PB í MM: "Held'ann ætt'að halda sig við Bondinn!"  Þarf samt að sjá hana. Heyrði að Kungfu Panda væri frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa, - hver kynslóð sér sína útgáfu

Beturvitringur, 15.7.2008 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband