Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Hættuleg heimilistæki

Ég hef alltaf haft þessa tilfinningu fyrir ostaskerum, að þeir væru skaðræðistól. Það er oftast þannig að maður ætlar aldrei að komast í gegnum ostinn og svo skyndilega æðir allt af stað. Ég skil vel að puttinn á Lars hafi lent fyrir ferlíkinu.

Ég sendi honum samúðar- og batakveðjur og vona að hann hafi vit á að kaupa niðursneyddan ost í framtíðinni.


mbl.is Ostaskeri eyðilagði Íslandsför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósanngjarnt

Að ég og dagdrykkjufélagar mínir getum kannski ekki nálgast okkar kalda öl í Austurstrætinu lengur. Ósanngirni veraldarinnar ríður ekki við einteyming.
mbl.is Vill vínbúðina burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta...

..hefur verið hræðilegur tími. Hugsa sér hugmyndaflugið samt, að ætla að myrða einhvern með að eitra nærbuxurnar hans.
mbl.is Áhrifamenn í S-Afríku dæmdir í skilorðsbundið fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með afmælið - á morgun

hallgrimsReykjavík ó Reykjavík, þú yndislega borg, orti ungskáldið forðum og mærði mjög fegurð höfuðborgarinnar okkar, á sinn hátt.  Hún hefur verið uppspretta rómantískra þanka skálda og rithöfunda í 221 ár.  En auðvitað hefur hún líka valdið fólki hugarangri og sorg, depurð og leiða og ómældum áhyggjum – alltaf virðist það þó gleymast jafnóðum. 

Ég var kominn vel til vits og ára þegar Reykjavíkurborg hélt með heilmiklu pompi og prakt upp á tvöhundruð ára afmælið sitt árið 1986, sama ár og við buðum Reagan og Gorbachev til okkar að leysa heimsmálin og sama ár og við lentum í fyrsta skipti í 16. sæti í Júrovísjón.

Þennan afmælisdag skein sól í heiði og allir fóru í sitt fínasta púss úr satíni með herðapúðum og litadýrðin í miðbænum var ótrúleg.   Afmælisgestum var boðið upp á lengstu tertu veraldarinnar (að sögn) enda náði hún enda á milli í  Lækjargötu. Borgarbúar og nærsveitungar flykktust að til að bragða á kræsingunum.  Ég man nú ekki hvort ég bragðaði á kökunni enda of upptekinn af kærustunni minni til að hugsa mikið um einhverja köku þó hún væri 200 metra löng.  Kærastan var sko miklu flottari og án efa margfalt betri á bragðið. 

En ég man hvað ég var stoltur af að vera reykvíkingur þennan dag, mér fannst borgin svo ótrúlega fín eitthvað...þó hún væri lágreist og lítil miðað við heimsborgir veraldarinnar.  Allavega skartar engin önnur borg Tjörninni og Hallgrímskirku, Laugardalnum, Heiðmörkinni og öllum þessum stórkostlegu útivistarsvæðum allt umhverfis.  Það rennur heldur ekki laxveiðiá í gegnum aðra höfuðborg, svo ég viti. 

Reykjavík hefur vaxið og dafnað síðan á afmælinu góða og verður æ meiri heimsborg með hverjum deginum sem líður.  Það er að sögn verið að reisa okkar eigin Manhattan og glerhýsunum fjölgar með hverjum deginum víðs vegar. Stjörnur veraldarinnar heimsækja hana iðulega og hafa jafnvel búið sér heimili í Reykjavík, það þykir varla tiltökumál að sjá Damon Albarn, Madonnu eða Quintin Tarantino á vappi á Austurvelli eða að fá Yoko Ono í heimsókn til að reisa friðarsúlu í út Viðey – allt bara mjög eðlilegt. Borgin er líka orðin heimsborg að því leiti að fólkið lítur ekki allt eins út...þegar ég fór í fyrsta skipti á ævinni til London, ári eftir afmælið mikla, lá við að ég sneri mig úr hálsliðnum við að horfa á kirtlaklædda araba eða indverja með túrbana.  Fólk af allskonar uppruna er bara orðið jafnmikill hluti af Reykjavíkurmenningunni og  einhver sem hefur búið í Háaleitinu eða Breiðholtinu alla sína ævi. Nú, svo eru allir orðnir svo miklu ríkari, sumir reyndar ríkari en aðrir.

Það úir og grúir af matsölustöðum og veitingahúsum og maður þarf ekki til útlanda til að bragða á allskyns exótískum réttum....þeir bragðast líka miklu betur hérna heima. 

Það verður rosalega gaman að sjá hvernig borgin okkar lítur út eftir önnur 20 ár. Ég vona að höfum við  rænu á að gera bara ennþá betur og gera Reykjavík að enn glæsilegri og betri heimsborg sem hlúir vel að öllu sínu fólki.... Það verður spennandi að sjá!

Ó þú yndislega borg......til hamingju með afmælið!


Hvernig

Getur staðið á því að benzínverðið hækkar um leið og krónan veikist en þó hún styrkist upp úr öllu valdi breytist verðið ekkert? Þá er aðeins fundin einhver önnur leið til að útskýra endalausa hækkun á eldsneyti. Við íslendingar erum hænur og látum koma fram við okkur sem slíkar. Hættum að láta bjóða okkur þessa vitleysu endalaust, stöndum upp og verum menn!!!!
mbl.is Bensínverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja konan

Það er ekki alltaf sama gæfa og gjörvileiki.
mbl.is Britney sögð borga fólki fyrir að vera vinir sínir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsið ykkur

Við búum í einu ríkasta þjóðfélagi veraldar, samt er fjöldi barna sem líður líkamlegar og andlegar kvalir því það er ekki til nóg af peningum til að hjúkra þeim, til að annast þau, til að lina þjáningar þeirra. Nýlegt dæmi af litlu fötluðu stelpunni sem hafði ekki fengið viðeigandi tannlæknaaðstoð svo mánuðum skipti snerti við flestum sem heyrðu. Smáskammtalækningar hafa engu bjargað, það þarf bara að grípa til róttækra aðgerða og ef ekki er nóg til af peningum er ekkert að gera annað en það sem allar fjölskyldur gera við slíkar aðstæður; skera niður í óþarfa bruðlinu.

Það er samt ekki víst að stjórnmálamenn kunni að skera niður eyðslu þessarra ósýnilegu peninga sem eru auðvitað bara til að eyða í nýja bíla, flottari sendiráð og veisluhöld.


mbl.is Eru 150 milljónir nóg?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Madonna

Madonna....á afmæli í dag. Hún er orðin 49 vetra þessi hörkukona sem skaust upp á stjörnuhimininn með látum snemma á níunda áratugnum og situr þar enn, skærust stjarna.

Í upphafi ferilsins gaf hún út dansskotnar dægurperlur sem enn lifa, hún vakti mikla athygli fyrir óheflaða sviðsframkomu og gerði mikið út á kynþokka sinn. Madonna hefur reynt fyrir sér í kvikmyndaleik með misjöfnum árangri, best finnst mér hún vera í hlutverki Evítu í samnefndum söngleik frá árinu 1997.

Hin síðari ár hefur hún nú róast aðeins, blessunin en það örlar nú alltaf á gömlu Madonnu sem tryllti lýðinn, tónlistin alltaf jafnflott og söngkonan glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Hún er mikil móðir og hefur hneigst til kaballa trúar og er örugglega bara nokkuð ánægð með lífið og tilveruna. Til hamingju með daginn Madonna.


Auðvitað

á að borga þeim sem kenna börnunum okkar eins há laun og unnt er! Það er allavega löngu kominn tími á að rétta hlut þeirra sem lægst hafa launin!
mbl.is Eiga laun leikskólakennara að vera hærri?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frítt á völlinn!

Þessu stal ég af heimasíðu Vals, en í góðum tilgangi að sjálfsögðu:

Í kvöld mætu við Valsmenn Breiðablik úr Kópavogi. Það er nokkkuð ljóst að við verðum að vinna þennan leik ætlum við okkur að berjast við FH um titilinn. Blikar hafa verið að spila fanta fínan bolta undanfarið og því eru allar líkur á að leikurinn verði í hæsta gæðaflokki.


Við Valsmenn höfum hinsvegar ákveðið að blása til sóknar og gefa aðeins í á lokasprettinum. Ekki einungis inni á vellinum heldur einnig í stúkunni. Við ætlum að hittast á Ölstofunni klukkan 18:00 en leikurinn hefst klukkan 19:15.


50 fyrstu Valsararnir sem láta sjá sig á Ölstofunni fá miða á leikinn.


Við ætlum aðeins að hrista okkur saman, æfa nokkra söngva og gíra okkur upp fyrir leik kvöldsins.


Nú er um að gera að drífa alla “sófa-valsara” með sér á Ölstofuna og síðan í Laugardalinn.


Áfram Valur!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband