Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Ódýrasta auglýsingin

hudson36Flest fyrirtæki sem hafa náð ákveðinni stærð merkja bíla sem notaðir eru til að sendast með og útrétta. Hinir og þessir starfsmenn fyrirtækjanna grípa oft til þessarra bíla sem vel merktir geta verið fínasta auglýsing á götum borga og bæja.

Stundum snýst þessi auglýsing upp í andhverfu sína þegar þeir sem aka hegða sér eins og bavíanar í umferðinni. Halda bara að þeir geti gert hvað sem þeim dettur í hug því þeir eru á fyrirtækisbílnum. Það er bara ekki þannig. Um leið og fólk sér bíl merktan í bak og fyrir svína, gefa ekki stefnuljós, fara yfir á rauðu og allt hitt sem menn gera af sér í umferðinni myndast ósjálfrátt neikvæðni í garð fyrirtækisins sem á viðkomandi bíl.

Sem betur fer eru flestir til fyrirmyndar og ég ók einmitt á eftir einum slíkum áðan. Ökumaður stórrar sendibifreiðar frá Íslofti ók upp Ártúnsbrekkuna á löglegum hraða, gaf alltaf stefnuljós, stoppaði á stöðvunarskyldu og hegðaði sér með afbrigðum vel í umferðinni.

Það er gaman að sjá svona.


Gæti það verið??

rollaMaður á besta aldri, rauðgóandi af reiði, með nýsteikt lambalæri í hendinni vindur sér inn í
Nóatúnsverslun, stormar beint að kjötborðinu og þrumar að unga
afgreiðslumanninnum:
"ÉG VAR AÐ STEIKJA ÞETTA LÆRI SEM ÉG KEYPTI HÉR Í DAG OG ÞAÐ VARÐ EKKI AÐ NEINU,
ÉG ER MEÐ MATARBOÐ OG ÞETTA DUGAR EKKI!"

Afgreiðslumaðurinn ungi horfði skelkaður á þann reiða og sagði svo með hægð:
"Jááá, veistu hvað ? ég keypti mér lopapeysu um daginn, svo varð hún skítug, ég
henti henni í þvottavél og síðan í þurrkara og hún bara hvarf !!"
...bætti svo við rólyndislega  "heldur þú að þetta gæti verið af sömu rollunni ?? "


Kallinn alltaf kúnstugur

Það hefði kannski verið allt í lagi að gera vart við sig áður en áritunin hófst. En hann veit sem er að allir vita hver hann er, allir þekkja stjörnuna. King er greinilega þekktari en Rigoberta Menchu, friðarverðlaunahafi Nóbels og frambjóðandi í forsetakosningum í Gvatemala. Hún gekk inn í anddyri lúxushótels í Mexikó fyrir skemmstu, íklædd skræpóttum indiánafötum. Dyraverðir brugðu skjótt við ætluðu að vísa þessarri sölukonu á dyr með látum, en sem betur fer kannaðist eitthvað fólk við konuna, þannig að allir sluppu með skrekkinn.


mbl.is Stephen King álitinn vera skemmdarvargur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki bara málið?

fiat-500-2big

Skelfing

Ætli maður þori nokkuð í bæinn á menningarnótt? Eða Ó-menningarnótt eins og Megas vildi kalla fyrirbærið.  Ætli það sé ekki bara hætta á að verða barinn, eyrnbitinn, kýldur, brenndur eða misþyrmt á annan hátt? Æ maður verður að láta sig hafa það.
mbl.is Mikill viðbúnaður á Menningarnótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna???

BjörgvinGHvers vegna fara menn sem fá opinbert embætti, eins og ráðherraembætti, borgarstjórastöðu eða annað slíkt alltaf að tala um sjálfa sig í fleirtölu? Í dag bárust þau tíðindi að ráðherrabifreið þess mikla jafnaðarmanns, Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra væri ekki alveg af vistvænasta tagi. Hver voru viðbrögðin? Jú, eyða fjármunum okkar í að kaupa nýjan vistvænni bíl undir jafnaðarmanninn. „Við höfum hafnað því að nota þennan bíl til frambúðar og höfum verið að reynsluaka öðrum bílum." sagði jafnaðarmaðurinn í viðtali við Vísi. Enda getum við ekki ekið um á einhverjum gömlum Benz, það er bara hneysa!


If I can dream

Elvis2Það verður gaman að sjá útkomuna úr þessu. Mig grunar að Elvis eigi eftir að lifa um ókomna tíð sem konungur alls þess sem heitir rokk og ról. Einkum ef endurútgáfur með honum verða vandaðar og gerðar af alúð þeirra sem bera virðingu fyrir viðfangsefni sínu.

Það er svo djúpur brunnur tónlistar að sækja í.


mbl.is Lisa Marie Presley syngur með föður sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bannaður og réttdræpur í Kína

laddiLaddi og fyndnasti maður Íslands, Þórhallur sonur hans voru gestir í Síðdegisútvarpinu í dag. Það má óhikað segja að öðrum ólöstuðum að þarna fara einhverjir skemmtilegustu menn landsins.

Þeir fóru á kostum og sá eldri bauð meira að segja nokkrum úr persónuflóru sinni í heimsókn. Við fórum um víðan völl, rifjuðum um æskuár beggja, bransann og hve mikilvægt það er að hefja ferilinn í Kassagerðinni, helst með kúst í hendi.

Þórhallur yngri sagði frá örhlutverki sínu í Astrópíu og sá eldri hvernig grínverjinn varð til þess að hann þykir réttdræpur í Kína.

Laddi talaði um skemmtunina sína sem átti bara að vera ein helgi til að halda upp á sextugsafmælið en hefur heldur betur tútnað út. Það mun vera uppselt á tvær aukasýningar í lok ágúst og rétt byrjað að selja á enn eina aukasýningu þann 25. ágúst. Mig langar að fara ekki spurning.

Það má ekki gleyma að það verður endurtekning í kvöld og um helgina, stillið á Útvarp Sögu 99,4 og hlustið!


Flottar stelpur

Og landi og þjóð til sóma. Ég veit að þær fengu höfðinglegar móttökur í Valsheimilinu í dag. Ég er á því að öll íslenska þjóðin ætti að klappa og taka ofan (samt ekki samtímis) fyrir þessum stelpum.
mbl.is Valskonur unnu stórsigur í síðasta leiknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég kjáni?

... hvað eru AFLÞYNNUR?
mbl.is 90 ný störf með nýrri aflþynnuverksmiðju í Eyjafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband