Madonna

Madonna....á afmæli í dag. Hún er orðin 49 vetra þessi hörkukona sem skaust upp á stjörnuhimininn með látum snemma á níunda áratugnum og situr þar enn, skærust stjarna.

Í upphafi ferilsins gaf hún út dansskotnar dægurperlur sem enn lifa, hún vakti mikla athygli fyrir óheflaða sviðsframkomu og gerði mikið út á kynþokka sinn. Madonna hefur reynt fyrir sér í kvikmyndaleik með misjöfnum árangri, best finnst mér hún vera í hlutverki Evítu í samnefndum söngleik frá árinu 1997.

Hin síðari ár hefur hún nú róast aðeins, blessunin en það örlar nú alltaf á gömlu Madonnu sem tryllti lýðinn, tónlistin alltaf jafnflott og söngkonan glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Hún er mikil móðir og hefur hneigst til kaballa trúar og er örugglega bara nokkuð ánægð með lífið og tilveruna. Til hamingju með daginn Madonna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband