Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Aldrei

ætla ég að hlaupa með Glitni! Aldrei.
mbl.is Yfir 5 þúsund skráðir í Reykjavíkurmaraþonið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dásamlegt!

barcelona1Barcelona er einhver mest heillandi staður sem ég hef komið til! Það er sama hvort horft er til mannfólksins, bygginganna, verslana, skemmtistaða, safna eða hvers sem er. Hvarvetna eru töfrar. Jafnt á römblunni sem í gamla hverfinu, Park Guell, Olympiuþorpinu, töfrahúsum Gaudis eða bara úti á götum og  torgum. Andrúmsloftið er ótrúlegt og ég hvet alla sem hafa möguleika á að heimsækja Barcelona að gera það að minnsta kosti einu sinni!
mbl.is Iceland Express bætir við áætlunarflugi til Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hremmingar bifhjólamanna

MotorhjólHún er bæði ótrúleg og hræðileg sagan af bifhjólamanninum sem missti fótinn og tók ekki eftir því fyrr en  talsverðu eftir slysið. Fyrir þá sem ekki hafa heyrt eða lesið hana þá var þetta þannig að mótorhjólamaður ók utan í vegrið og fann til nístandi sársauka. Hann gerði ekkert með það fyrr en á næstu ljósum þar sem hann nam staðar og tók þá eftir að fótinn vantaði neðan við hné. Félagar hans brunuðu til baka og fundu fótinn sem var sendur í skyndi, ásamt eiganda sínum á sjúkrahús. Því miður var stubburinn svo illa farinn að ekki var hægt að græða hann á manninn. Það er svo sannarlega margt skrýtið í kýrhausnum.

Ég heyrði aðra sögu af íslenskum vélhjólamanni sem lenti í því á gatnamótum að ökumaður á skærbleikri Hondu með töffaramerkingum gerði sér leik að því að láta bílinn ítrekað snerta mótorhjólið með ógnandi hætti. Ökumanni vélhjólsins var ekki orðið um sel enda nýstiginn úr meiðslum eftir umferðarslys. Mér skilst að hegðun bílstjórans hafi verið með þeim hætti að bifhjólamaðurinn var farinn að óttast um líf sitt og limi. Hann komst þó óslasaður frá þessu, líkamlega en leið víst ekkert of vel á sálinni þegar heim var komið.

Svona hegðun í umferðinni er auðvitað með öllu ólíðandi og við eigum öll að standa saman um að láta svona ekki henda og gera okkar besta til að stöðva það ef við verðum vitni að einhverju svona í umferðinni. Lögreglan er ekki alls staðar, en rétt að láta hana vita ef svona nokkuð ber fyrir augu.


Hvernig í skrambanum

Fer maðurinn að þessu????

http://www.youtube.com/watch?v=YczjHBUMiLQ


Óréttlæti

Laun heimsins eru óréttlæti. Þegar saklaus eldri kona ætlar að láta vita af svikinni vöru er hún bara handtekin fyrir vikið. Það er greinilegt að það borgar sig ekki að vera heiðarlegur í Ameríku!
mbl.is Hringdi í lögregluna til að kvarta yfir kókaíninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Garðar Örn

GardarornHinriksson fótboltadómari, tónlistarmaður, bloggari, lífskúnstner og faðir kom í síðdegisútvarpið á Sögu í dag. Við töluðum um fótboltann, tónlistina, lífið og tilveruna.

Garðar er maður sem liggur ekki á skoðunum sínum og talaði tæpitungulaust um menn og málefni. Hann spilaði fyrir okkur uppáhaldstónlistina og tvö lög úr eigin smiðju. Flott lög, annað sungið frá sjónarhóli deyjandi hermanns og hitt ástarsöngur í anda Tom Waits.

Einu sinni var Garðar í hljómsveitinni Url ásamt Heiðu Ólafs og við heyrðum í henni um miðbik þáttar, Garðari að óvörum. Það var gaman að heyra í henni og greinilegt að hún er voða ánægð með lagasmiðinn og textasmiðinn Garðar. Og greinilegt að þau eru fínir vinir.

Eins og venjulega var klukkutími ekki nærri nóg þannig að ég fer að huga að lengingu þáttarins.


Kominn tími á breytingar

Mér finnst Flossie ekki hljóma neitt rosalega hættulega. Ég er viss um að ef fellibylur að nafni Flossie væri að nálgast Ísland myndi enginn gera neitt til að verjast ágangi veðursins. Víkingarnir myndu bara hlæja upp í vindinn og afgreiða þetta sem eitthvað grín.

Það þarf að breyta nöfnunum á þessum fellibyljum í eitthvað verulega krassandi!


mbl.is Fellibylurinn Flossie stefnir á Hawaii
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski alveg tími til kominn?

Að einhver stofnun taki athugasemdir við starfsemi sína alvarlega? Það eru auðvitað tíðindi þegar einhver stjóri í ríkinu stendur upp og segist taka þær alvarlega, athugasemdirnar sem gerðar eru við stofnun hans. Svo er bara að gera það á borði jafnt sem orði.
mbl.is Vegamálastjóri segir að taka verði aðfinnslur Ríkisendurskoðunar alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð minn góður!

Þá er bara kominn tími á að losa sig við vömb og undirhöku svo maður verði ekki steindauður eða þaðan af verra langt fyrir aldur fram.

Ekkert að gera nema hafa samband við Ívar og fá einkaþjálfun. Sixpack here I come.


mbl.is Kúluvömbin óholl hjartanu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtið

DavidLeeRothAlveg magnað að rokkararnir geta aldrei þagnað! Það verður gaman að sjá og heyra hvernig Van Halen hljómar á 21. öldinni. Ég man vel eftir smellinum sem David Lee Roth gaulaði árið 1985. Það var gamall slagari sem hét og heitir auðvitað Just A Gigolo. Það lag varð gríðarlega vinsælt þannig að sjúkraliðinn ætti að geta lifað sæmilega á laununum af því. Svo má nú ekki gleyma því að fram að brotthvarfi Davids hafði Van Halen verið að gera það gott, heldur betur.

Þó veit maður aldrei. En þetta er skemmtilegt.


mbl.is Van Halen saman á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband