Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Einföld skýring

emirates-palce03Orkuveita Reykjavíkur er eitthvað að reyna að minnka stuðið í Kópavogi!
mbl.is Rafmagnslaust í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferlega Hræðilegt

Það er hræðilega spælandi að fylgjast spenntur með sínum mönnum í 90 mínútur og fá svo mark á sig á lokasekúndunum. Óréttlátt og hundfúlt. Leikurinn var jafn og spennandi og hefði getað farið á hvorn veginn sem var. En svona er þetta í boltanum, maður verður bara að taka því sem að höndum ber og gera eins og forfeður okkar gerðu: bíta í skjaldarrendur, safna liði og láta ganga betur næst.

Það er ekkert annað hægt. Til hamingju Fimleikafélag.


mbl.is Ásgeir Gunnar tryggði FH nauman sigur á Val
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilegt!

anoseMér hefði þótt það meiri frétt ef Lindsay Lohan hefði EKKI verið látin þrífa klósett, vaska upp og þvo þvott. Hitt á ekki að vera frétt, hún hlýtur að eiga að fá sömu meðferð á meðferðarheimilinu og allir aðrir.
mbl.is Lindsay Lohan þrífur klósettið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ást og Elvis

ElvisÍ síðdegisútvarpinu var ástin allsráðandi. Við heyrðum í Grími Atlasyni bæjarstjóra í Bolungarvík og ræddum um ástarvikuna þar.  Ástarvikan er mjög skemmtilegt fyrirbæri og eins og Grímur sagði, ætti fólk auðvitað alltaf að vera gott hvert við annað. Grímur er að fá Kim Larsen til landsins og komum við aðeins inn á það. Kim ætlar að spila fyrir landann í Vodafone höllinni síðar í haust og að sögn Gríms er uppselt í sæti en eitthvað eftir í stæðum. Kim Larsen er náttúrulega snillingur sem kann að trylla lýðinn.

Í seinni hluta þáttarins fengum við Elvis í heimsókn. Steinn Ármann Magnússon kíkti inn og við töluðum um Elvis Presley sem að sögn lést þann 16.ágúst árið 1977. Steinn kann margar skemmtilegar sögur af kónginum og fór á kostum í sögusögnunum. Ein besta sagan var af endurkomutónleikum Elvisar árið 1968. Þar kom hann fram í níðþröngum leðurgalla sem var næstum eins og teiknaður utan á hann. Að sögn Steins var Elvis nakinn undir gallanum og svitnaði auðvitað svakalega. Það varð auðvitað til þess að þegar hann ætlaði að afklæðast var það lífsins ómögulegt. Þannig að til þess að Elvis Presley þyrfti ekki að vera í sama leðurgallanum til æviloka tóku nokkrir ráðagóðir menn á það ráð að hreinlega klippa gallann utan af honum. Auðvitað synd því núna er þessi flotti galli hvergi til. Nema kannski í henglum, leðurhenglum.

Matarlyst kóngsins bar einnig á góma og Steinn Ármann nefndi nokkra rétt úr bókinni góður "Are you hungry tonight?". Ég verð að viðurkenna að fátt af því kveikti græðgi hjá mér.

Tónlistin var ekki fjarri og spiluðum við nokkra góða Elvis slagara í þættinum. Fyrir þá sem misstu af verður endurtekning í nótt kl. 1 og svo aftur næstu helgi.

Enda svo á að minna á þáttinn á morgun kl. 16:00. Þá kemur góður gestur sem að eigin sögn er mini-celeb en ætlar að breyta því með viðkomu í síðdegisþættinum á Útvarpi Sögu.


Klúður...

..þá er engin elsta manneskja í heimi lengur. Allavega ekki um stundarsakir. Ég skal taka það að mér þangað til sú rétta finnst.
mbl.is Elsta manneskja í heimi látin - úr elli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það vantar eitt

HRC...í Kringluna sem var þar í árdaga. Ég man þá tíð þegar ungt fólk flykktist þangað til að fá sér hamborgara, stórsteik, klúbbsamloku eða annað í stærðarflokki sem aldrei hafði sést áður á Íslandi. Undir dúndrandi rokktónlist sátum við vinirnir, eða ég og Sigga sæta, á þessum stað og röðuðum í okkur kræsingunum á leið í bíó eða úr því. Bíó sem nota bene voru ekki í verzlunarmiðstöðvum. Á veggjunum hengu minningarbrotin úr rokkheimum, plötuumslög, gítarar og heilu glamúrgallarnir. Líka hlutir sem sjaldan höfðu sést á Íslandi áður. Um beina gengu ungar stúlkur (sem núna eru orðnar virðulegar mömmur, og sumar kannski ömmur) í afskaplega stuttum einkennisbúningum, allt að því of stuttum. En einhver í hópnum slysaðist til að eiga afmæli var því laumað að þjóninum sem sá til að afmælisbarnið fékk óvæntan glaðning í lok máltíðar og afmælissöng frá staffinu. Það var gaman að koma á Hard Rock Café.

Smám saman hnignaði þessum frábæra stað og undir lokin var hann orðinn eins og þriðjaflokks hamborgarabúlla í Hull.

Mér finnst þrátt fyrir það vanta Hard Rock Café í Kringluna.


mbl.is 98 milljónir gesta á tuttugu árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Danmörk

Ég ætla biðja dani að vera snögga að eignast Norðurpólinn. Ástæðan? Jú, íslendingar eru að eignast Danmörku smám saman, þannig að ef danir eignast Pólinn þá gerist það innan skamms að hann verður okkar, olían og hvaðeina!

Smá pæling bara.


mbl.is Danir vonast til þess að geta slegið eign sinni á Norðurpólinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meistaraslagur

Valur2Í kvöld mætast topplið L******* deildarinnar í fótbolta í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar. Valur og FH. Leikur sem flestir hefðu kannski viljað sjá sem úrslitaleik í bikarnum en það gerist víst ekki þetta árið.

Ég hvet alla stuðningsmenn Vals að mæta á völlinn og styðja sína menn. FH laut í gras síðast, eins og Bjarni Fel myndi orða það! Það er alveg hægt að láta þá gera það aftur!

Áfram Valur!


Fljótið

MenamEða Menam heitir lítill veitingastaður á Selfossi. Hann gerir mest út á að selja fólki tælenskan mat með ýmsu bragði. Þennan stað erum við búin að heimsækja tvisvar í sumar og það er alltaf sama sagan.

Það fyrsta sem maður kynnist er alúðleg og mjög hress þjónusta. Það er eins og allir þjónarnir eigi staðinn sjálfir svo vel er tekið á móti manni. Kvenkyns þjónarnir eru íklæddir einhverjum aðsniðnum Asíubúningum en karlkynsþjónarnir eru nú vestrænni að sjá. Það væri nú gaman að klæða þá upp eins og mandarína með mjótt yfirvararskegg og hökutopp. En maður getur nú ekki fengið allt.

Maturinn er líka mjög góður á þessum stað. Og er það ekki aðalmálið þegar maður fer út að borða? Það er sama hvort á diskum er BBQ hamborgari, lambasteik, núðlur eða tælenskir kjúklingaréttir. Allt er fallega fram borið, vel útilátið og bragðast ljómandi vel. Verðið er mjög hóflegt líka, sem er kostur. Það er orðið svo stutt að bregða sér austur fyrir fjall þannig að ég mæli með að þeir sem ætla sér að skella sér út að borða hafi þennan litla stað sem kúrir bak við risavaxið Hótel Selfoss í huga. Ég gæti trúað að það væri skynsamlegt að panta borð því það virtist fullt út úr dyrum þarna í gærkvöldi.

En enn og aftur Menam er snilldarstaður til að fara með fjölskylduna eða ástina sína að borða í huggulegu umhverfi.


Tvennt

Hið fyrra: Það er leiðinlegt hvað er búið að búa til mikla skrípamynd úr Elvis heitnum. Maðurinn var svosem stórstjarna á sínum tíma, en nú er búið að búa til úr honum eitthvað stórfurðulegt skurðgoð sem er tilbeðið um allan heim. Núna ætlar dánarbúið að taka þátt í því með því að hleypa þessum stórfurðulegu fyrirbærum sem flestar Elvis-eftirhermurnar eru inni í minningu gamla mannsins. Sem var þó ekki svo gamall þegar hann dó, aðeins 42 vetra. Ég skil ekki hvers vegna er ekki hægt að minnast hann bara sem rokkstjörnu - það hefur ekki farið svona hrikalega illa fyrir minningu nokkurrar annarrar slíkrar sem ég man eftir í fljótu bragði.

Hið síðara: Hvar lærði greinarhöfundur að skrifa? Það var skelfilega óþægilegt að lesa þessa grein fyrir ambögum og stafsetningarvillum.  Sök sér með slíkt hjá bloggurum og öðrum sem skrifa sér til ánægju í áhugamennsku, en þeir sem fá borgað fyrir að skrifa greinar í blöð og á vefinn ættu nú aðeins að skila af sér betra verki.


mbl.is Elvis-vika í fullum undirbúningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband