Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Bankarnir eru reknir á viðskiptalegum forsendum - gömul sannindi og ný
29.11.2008 | 10:41
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins
Stórviðskipti borin undir bankaráð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Code name Sleeping beauty
26.11.2008 | 17:38
Enn ein nefndin, sem á að gera hvað? Jú fjalla á sinn hátt um ástæður bankahrunsins. Má ekki alveg búast við að þetta verði til þess að málið sofni endanlega svefni hinna ranglátu? Að nefndin sjái til þess að þvæla og þvarga það lengi um málið að það gleymist, týnist eða hverfi?
Hver er REI málið, hvar er olíusamráðsmálið, hvar eru öll hin skítamálin sem við vitum um en munum ekki hvað heita? Sofnuð ... horfin... dáin.
Ráðherraræðið á Íslandi gat ekki brugðist okkur, auðvitað var stofnuð enn ein svefnnefndin...
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Víðtækar rannsóknarheimildir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jólagjöfin í ár
24.11.2008 | 15:24
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Stjórn og stjórnarandstaða snúi bökum saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Af gáfnafari ráðherra
22.11.2008 | 12:04
Davíð Oddsson er í Washington hjá George Bush. Eftir að þeir hafa
lokið við að borða kvöldmat segir Bush: Well David, I dontt know
what you think of the members of your Cabinet, but mine are all bright
and brilliant. How do you know? Spyr Davið. Oh well, its simple,
segir Bush. They all have to take special tests before they can be a
minister. Wait a second. Hann veifar til Colin Powell og segir við
hann: Tell me Colin, who is the child of your father and of your
mother who is not your brother and is not your sister? Ah, thats
simple Mr. President, segir Colin, it is me! Well done, Colin,
segir Bush og Davið er alveg heillaður!
Eftir að viðræðum þeirra er lokið sest Davíð upp í flugvél og heldur
aftur heim til Íslands. Á leiðinni heim leiðir Davíð hugann að því
hver sé í raun greindarvísitölustaða hinna ráðherranna í ríkistjórn
hans. Þegar hann mætir aftur á skrifstofuna hringir hann í Guðna
Ágústsson og biður hann að kíkja við hjá sér. Guðni kemur til hans að
vörmu spori og Davíð segir þá við hann um leið: Guðni, segðu mér nú,
hvert er barn þíns föður og móður sem hvorki er þinn bróðir né
systir? Guðni hugsar sig um vel og lengi án þess að geta svarað. Ja
hérna, þessi var flókin! Má ég ekki fá að hugsa mig um dálitla stund?
Davíð vill ekki leggja óþarfa pressu á Guðna svo hann segir: Jú allt
í lagi, þú færð 24 stunda umhugsunarfrest. Guðni snýr aftur til
skrifstofu sinnar og hugsar nú svo stíft að það brakar í
heilaberkinum. Eftir að hafa setið og hugsað um hríð ákveður hann að
kalla saman starfsfólk sitt í landbúnaðarráðaneytinu og leggja
spurninguna fyrir þau. Allt kemur fyrir ekki. Enginn hefur svarið við
þessari gestaþraut Davíðs. Eftir 20 stundir hefur Guðni enn enga lausn
fundið.
Hann verður nú afar áhyggjufullur því hann skilur þó það að svarið við
þessari spurningu getur þýtt af eða á fyrir hann sem ráðherra í
ríkistjórn Davíðs og nú eru bara 4 tímar eftir af frestinum. Þá dettur
honum ráð í hug!: Ég spyr bara Geir H. Haarde! Hann er bæði
talnaglöggur og útsjónarsamur, ef einhver veit það, þá er það hann!
Guðni drífur sig yfir til Geirs og segir: Geir, þú verður að hjálpa
mér, Davíð fól mér að leysa þraut þar sem ég held að það ráðist hvort
ég held ráðherrastöðu minni eftir því hvort mér tekst að svara rétt
eður ei. Hver er þrautin? spyr Geir. Hlustaðu nú, segir Guðni.
Hvert er barn þíns föður og móður sem hvorki er þinn bróðir né
systir? Þetta er einfalt, segir Geir. Þetta er ég! Að
sjálfsöðgu!, segir Guðni og hleypur yfir til að segja Davíð svarið.
Davíð, Davíð, nú hef ég svarið! Þetta er Geir H. Haarde! Davíð lítur
upp á Guðna raunamæddum augum og segir: Mér þykir það leitt Guðni
minn en það er ekki rétt. Rétt svar er Colin Powell
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Tveir bankar í greiðslustöðvun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Volaða land
12.11.2008 | 19:11
Ég slysaðist út í myrkrið og hraglandann og hugsaði allt í einu með mér hvað maður væri eiginlega að hanga hér á hjara veraldar í kulda og vosbúð, fátækur, hrakinn og smáður. Um það bil að verða skuldsettur næstu 200 árin, hið minnsta. Mér varð hugsað um að það eru lönd þar sem sólin skín, fuglarnir syngja í trjánum og hitastigið fer sjaldan niður fyrir 20 gráður. Lönd þar sem mér skilst að maturinn nánast vaxi á trjánum. Hvað er svona merkilegt við Ísland?
Nú ætla ég að leyfa þjóðskáldinu Matthíasi Jochumsyni sem þrátt fyrir allt, var nú oftar ansi kátur með Ísland, að eiga orðið, hann var frekar pirraður þarna kallinn:
Volaða land,
horsælu hérvistar-slóðir,
húsgangsins trúfasta móðir,
volaða land!
Tröllriðna land,
spjallað og sprungið af eldi,
spéskorið Ránar af veldi,
tröllriðna land!
Hraunelda land,
hrákasmíð hrynjandi skánar,
hordregið örverpi Ránar,
hraunelda land!
Hafísa land,
ískrandi illviðrum marið,
eilífum hörmungum barið,
hafísa land!
Stórslysa land,
fóstrað af feiknum og raunum,
fóðrað með logandi kaunum,
stórslysa land!
Blóðrisa land,
mölvað af knútum og köglum,
klórað af hrímþursa nöglum,
blóðrisa land!
Vandræða land,
skakt eins og skothendu kvæði
skapaði Guð þig í bræði,
vandræða land!
Drepandi land,
búið með kjark vorn og kjarna,
kúgandi merg þinna barna,
drepandi land!
Drepandi land,
hvað er það helzt sem þú safnar?
Sult vorn og örbirgð þú jafnar,
drepandi land!
Vesæla land!
Setið er nú meðan sætt er,
senn er nú étið hvað ætt er,
vesæla land!
Hrafnfundna land,
munt þú ei hentugast hröfnum?
Héðan er bent vorum stöfnum,
hrafnfundna land!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Lenti hlaðin sprengiefni á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Bóksali kveður þingsali
11.11.2008 | 10:51
Ég hef alltaf kunnað vel við Bjarna Harðarson, sem manneskju og sem þingmann. Hann hefur virzt sannur maður, trúr eigin sannfæringu og hefur að mínu mati æ staðið vel fyrir sínu máli. Nú segir hann okkur að pólítízkt kapp hafi hlaupið sér í kinn, sem varð til þess að hann ákvað að vega að varaformanni Framsóknarflokksins, úr launsátri. Annað er því miður ekki hægt að kalla það sem gerðizt í gærkveldi. Bjarni kann að hafa sínar ástæður til að fara svona að, og auðvitað er það hans að útskýra það. Mezta klúðrið var auðvitað að fleiri fengu skeytið en lagt var upp með í upphafi.
Það sem kemur upp í hugann þegar svona "slys" verða er hversu margvíslegt og mikið baktjaldamakk á sér stað í þingheimi og í öðrum valdastofnunum allt í kringum okkur. Mál sem við komumst aldrei á snoðir um, því fæstir eru jafn óheppnir og Bjarni Harðarson. Pukur og leynimakk virðist nefnilega vera alfa og omega þeirra sem völdin hafa. Hvað ætli sé til dæmis langt síðan Geir Haarde sagði okkur alveg satt?
Það hefur verið að renna upp ljós. Ljós sem kastað hefur verið á hvernig veröld valdanna gengur fyrir sig. Mig grunar að nú nálgist óðfluga sú stund að flestir gömlu íslenzku stjórnmálaflokkarnir liðist í sundur, hverfi jafnvel alveg, og til verði kraftmiklar hreyfingar fólksins í landinu. Fólks sem er löngu búið að gefast upp á því hvernig landinu er stjórnað með undirferli og bakstungum. Leyndarhjúpurinn er svo ægilega gamaldags.
En Bjarni Harðarson er maður að meiri vegna afsagnar sinnar. Nú er komið að öllum hinum, taki þeir til sín sem eiga.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Bjarni segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.11.2008 kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Höfum við það svo skítt?
7.11.2008 | 14:33
Ég fékk þessa frásögn, eins og svo margt annað, senda með tölvupósti og finnst hún þurfa að komast á framfæri.
Íslensk kona hefur verið að styrkja námsmann í Uganda sem "óvænt varð á vegi hennar" eins og hún orðaði það. Hann var búinn að lofa að senda henni einkunnirnar sínar sem hann og gerði þegar þar að kom. Þar kom fram að hann hafði fengið A í öllum fögum og góða umsögn að auki. Það var nefnilega búið að gera honum ljóst að góður árangur væri lykillinn
að því að hann fengi áframhaldandi styrk.
Hún var að velta því fyrir sér hvort rétt væri að reyna að segja honum frá gangi mála hér á landi, og að það gæti því miður reynst nauðsynlegt að skera eitthvað niður styrkinn vegna hins breytta ástands hérna megin.
En ef reynt væri að útskýra hið Íslenskakreppuástand fyrir honum gæti það samtal orðið áeftirfarandi nótum.
*Heyrðu félagi, það er úr vöndu að ráða. Íslenska þjóðin er gjaldþrota!
Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra, eigið þið þá ekki fyrir baunum og maís?
*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og enginn vöruskortur.
Hvað segirðu, þið eigið þá mat. Það er gott. En eigið þið þá ekki þak yfir höfuðið lengur!
*Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir og það eru fáirheimilislausir á Íslandi.
En hvað segirðu mér þá? Gengur plága yfir landið, eru allir veikir og heilbrigðiskerfið lamað?
*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum með ágætt heilbrigðiskerfi.
Nú jæja. Það var gott að heyra. En eru þá skólarnir að loka og fá kannski ekki allir tækifæri til að læra að lesa lengur og sérstaklega þá ekki konur.
*Jú reyndar er 99,9% læsi á Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður og konur ekki síður en karlar.
Það er nú gott, en þið verðið þá að passa er að lenda ekki í stríði við nágrannaþjóðir ykkar.
*Uuuu við erum reyndar ekki með her og teljumst nú frekar friðsæl þjóð. En við þurfum bara að hlusta á bullið og stríðsyfirlýsingarnar í fíflinu honum Gordon Brown. Það er það sem við munum líklega komst næst því að fara í stríð.
Ok. Segðu mér nú samt ekki að þið komist ekki í hreint vatn.
*Við eigum reyndar besta vatn í heimi.
Nú, er vegakerfið þá ónýtt? Hérna í Afríku ganga allir eða nota asna og stundum reiðhjól. Það eru líka til strætisvagnar hérna, en þeir eru alltaf yfirfullir.
Eru kannski strætóarnir hjá ykkur hættir að ganga?
*Neeee... Það er verið að ræða um hvort almenningssamgöngur hér eigi að vera ókeypis, en það eru flestallir vegir malbikaðir og næstum allir eru
á nýlegum bílum.
Eigið þið þá enga peninga til að gera ykkur glaðan dag? Ég meina, þú sagðir að þjóðin væri gjaldþrota.
*Flestir eiga reyndar einhvern sparnað á bókum þó sumir hafi tapað honum eða hluta hans síðustu daga. Það verður alla vega erfitt að kaupa stærri flatskjái og utanlandsferðunum verður að fækka.
Já, ég á kannski einhvern tíma eftir að fara til útlanda, en ég er nú líka frá Uganda. Hefur kannski enginn vinnu og þurfið þið núna öll að betla?
*Neiiij...! Atvinnuleysið er um 2% en við verðum að flytja Pólverjana aftur heim og fara sjálf að vinna vinnuna sem þeir unnu.
Hmmm... Svo þið hafið peninga, mat, húsaskjól, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, búið við frið, eigið nóg hreint vatn og samgöngur eru góðar.
Segðu mér, hvert var vandamálið aftur?
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Klanið burt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Geir Haarde gleðst
5.11.2008 | 13:05
Ég óska Barack Obama til hamingju með sögulegan sigur hans í bandarísku forsetakosningunum. Þátttakan í þeim er til marks um áhuga almennings og ákall eftir breytingum, segir Geir H. Haarde forsætisráðherra í DV í dag.
Skyldi Geir ekki hafa dottið í hug að fólk annars staðar í veröldinni, til dæmis á Íslandi kallaði líka eftir breytingum? Pæling.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Svipmynd: Maðurinn frá Kogelo skekur heiminn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Glöggt er gests augað
29.10.2008 | 12:18
Why is he still running around as a Prime Minister of Iceland? There must be something wrong with the people of Iceland.
Must be some sort of Mugabe effect that keeps him and his idotic Government in power.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Þjóðin í gíslingu Sjálfstæðisflokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sagan endurtekur sig
21.10.2008 | 11:34
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Ríkisstjórnarfundi lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |