Höfum við það svo skítt?

Ég fékk þessa frásögn, eins og svo margt annað, senda með tölvupósti og finnst hún þurfa að komast á framfæri.  

Íslensk kona hefur verið að styrkja námsmann í Uganda sem "óvænt varð á vegi hennar" eins og hún orðaði það. Hann var búinn að lofa að senda henni einkunnirnar sínar sem hann og gerði þegar þar að kom. Þar kom fram að hann hafði fengið A í öllum fögum og góða umsögn að auki. Það var nefnilega búið að gera honum ljóst að góður árangur væri lykillinn
að því að hann fengi áframhaldandi styrk.

Hún var að velta því fyrir sér hvort rétt væri að reyna að segja honum frá gangi mála hér á landi, og að það gæti því miður reynst nauðsynlegt að skera eitthvað niður styrkinn vegna hins breytta ástands hérna megin.
En ef reynt væri að útskýra hið Íslenskakreppuástand fyrir honum gæti það samtal orðið áeftirfarandi nótum.

*Heyrðu félagi, það er úr vöndu að ráða. Íslenska þjóðin er gjaldþrota!

Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra, eigið þið þá ekki fyrir baunum og maís?

*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og enginn vöruskortur.

Hvað segirðu, þið eigið þá mat. Það er gott. En eigið þið þá ekki þak yfir höfuðið lengur!

*Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir og það eru fáirheimilislausir á Íslandi.

En hvað segirðu mér þá? Gengur plága yfir landið, eru allir veikir og heilbrigðiskerfið lamað?

*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum með ágætt heilbrigðiskerfi.

Nú jæja. Það var gott að heyra. En eru þá skólarnir að loka og fá kannski ekki allir tækifæri til að læra að lesa lengur og sérstaklega þá ekki konur.

*Jú reyndar er 99,9% læsi á Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður og konur ekki síður en karlar.

Það er nú gott, en þið verðið þá að passa er að lenda ekki í stríði við nágrannaþjóðir ykkar.

*Uuuu við erum reyndar ekki með her og teljumst nú frekar friðsæl þjóð. En við þurfum bara að hlusta á bullið og stríðsyfirlýsingarnar í fíflinu honum Gordon Brown. Það er það sem við munum líklega komst næst því að fara í stríð.

Ok. Segðu mér nú samt ekki að þið komist ekki í hreint vatn.

*Við eigum reyndar besta vatn í heimi.

Nú, er vegakerfið þá ónýtt? Hérna í Afríku ganga allir eða nota asna og stundum reiðhjól. Það eru líka til strætisvagnar hérna, en þeir eru alltaf yfirfullir.
Eru kannski strætóarnir hjá ykkur hættir að ganga?

*Neeee... Það er verið að ræða um hvort almenningssamgöngur hér eigi að vera ókeypis, en það eru flestallir vegir malbikaðir og næstum allir eru
á nýlegum bílum.

Eigið þið þá enga peninga til að gera ykkur glaðan dag? Ég meina, þú sagðir að þjóðin væri gjaldþrota.

*Flestir eiga reyndar einhvern sparnað á bókum þó sumir hafi tapað honum eða hluta hans síðustu daga. Það verður alla vega erfitt að kaupa stærri flatskjái og utanlandsferðunum verður að fækka.

Já, ég á kannski einhvern tíma eftir að fara til útlanda, en ég er nú líka frá Uganda. Hefur kannski enginn vinnu og þurfið þið núna öll að betla?

*Neiiij...! Atvinnuleysið er um 2% en við verðum að flytja Pólverjana aftur heim og fara sjálf að vinna vinnuna sem þeir unnu.

Hmmm... Svo þið hafið peninga, mat, húsaskjól, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, búið við frið, eigið nóg hreint vatn og samgöngur eru góðar.

Segðu mér, hvert var vandamálið aftur?

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Klanið burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tær snilld, tær snilld!!!

Yngvi Rafn Yngvason (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 14:42

2 identicon

Hehe, helvíti gott.

Jón Arason (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 15:00

3 identicon

Bloggfærsla ársins!

Reyndar verður fróðlegt að vita hvernig staðan verður eftir hálft ár og eftir eitt ár. En hreina vatni fer aldrei og við eigum nóg af bílum.  Spurning hvort að það verði hægt að kaupa bensín á þá eftir eitt ár.

Guðmundur Pálsson (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 15:13

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Yngvi, Jón og Guðmundur: ég vil nú ekki hreykja mér af einhverju sem ég ekki bjó til sjálfur, en boðskapur sögunnar er góður. Einar, takk fyrir ábendinguna, en ég fékk þennan texta sendan með tölvupósti og hafði aldrei séð þessa bloggfærzlu sem þú vísar í. Ég vona að Sigrún verði bara ánægð með að sem flestir sjái það sem í hennar færzlu er.

Markús frá Djúpalæk, 7.11.2008 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband