Þurfti umhverfisráðherra og hinir sex að vera þarna?

isbjornÖll verðum við að laga okkur að hinum breyttu utanaðkomandi aðstæðum, jafnt fyrirtæki sem einstaklingar og opinberir aðilar. Sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í tyllidagsávarpi sínu sautjánda júní síðastliðinn og bætti við: Eina leiðin í því efni, sem skilar varanlegum árangri, er að draga úr notkuninni með minni akstri og betri nýtingu, notkun sparneytnari ökutækja, tilflutningi yfir í aðra orkugjafa o.s.frv.  en einnig ...að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Nú spyr ég, hvaða gagn var að stjórnmálafræðingi frá Háskóla Íslands og Johns Hopkins University, Paul H. Nitze School of Advanced International Studies ásamt sex manna fylgdarliði, við að fanga hvítabjörn? Hefði ekki verið nær að spara þær krónur sem þetta kostaði, þó ekki væri nema til að sýna gott fordæmi? Eða erum það bara við sem eigum að herða ólina og spara og spara og spara.... ?

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Ráðuneytið greiðir fyrir leiguflug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spá dagsins

Sporðdreki: Fólk sem hringir úr lausu lofti vekur mikla gleði og forvitni hjá þér. Þú veltir fyrir þér hvað fyrir því vakir. Hafðu eins gaman og mögulegt er af samskiptunum.

Hollustan í fyrrirúmi

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Leikskólabörn gæða sér á snúðum og kókómjólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sælan, sandurinn og sólin

Sungið við lagið Top of the world. Gunnar Ásgeir Ásgeirsson á textann.

Sumarið er komið enn á ný

Já ég hlakka ávalt til að far´ í frí

Fljúga til útlanda

Liggja sólbaði í

Já það verður ekki mikið betra en það 

Það sem að ég þarf að hafa með

Það er sundskýlan og vegabréfið mitt

Kannski smá gjaldeyrir

Einnig sólarkremið

Og þá flyt ég eflaust aldrei aftur heim 

Sælan, sandurinn og sólin

Þetta er næstum eins og jólin

Því að ég þreyttur er á klakanum um sinn

Fara vinnuna í, ligg´í þunglyndi hví?

Borga bensínið og nefskattinn minn 

Mig langar ekk´að flytja aftur heim

Já í útlandinu finn svo góðan keim

Góði maturinn hér

Sæta stúlkan með mér

Já er lífið ekki yndislegt í dag? 

Á íslandi ég seldi húsið mitt

Einnig gæti hjólhýsið nú orðið þitt

Já ég ástfanginn er

Á heitri sólarstönd hér

Það er brúðkaup hér á benídorm í haust 

Sælan, sandurinn og sólin

Þetta er næstum eins og jólin

Því að ég þreyttur er á klakanum um sinn

Fara vinnuna í, ligg´í þunglyndi hví?

Borga bensínið og nefskattinn minn 

Sælan, sandurinn og sólin

Þetta er næstum eins og jólin

Því að ég þreyttur er á klakanum um sinn

Fara vinnuna í, ligg´í þunglyndi hví?

Borga bensínið og nefskattinn minn.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Hillur verslana á Spáni að fyllast á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbrögð manns sem sem hefur engin svör

Geir H. Haarde forsætisráðherra sakaði fréttamann Markaðarins um dónaskap þegar hann innti ráðherra eftir aðgerðum í efnahagsmálum, í morgun, föstudaginn 13. júní 2008.

Hlutabréf halda áfram að lækka, krónan veikist, skuldatryggingaálag á bankana er farið að stíga á ný og sífellt verður dýrara fyrir fyrirtæki sem og ríkið að taka lán.

Eftir skellinn um páskana batnaði ástandið og forsætisráðherra státaði sig af því að ríkið hefði sparað peninga með því að fresta lántöku, líklega var beðið enn betri tíma. Þeir hafa hins vegar versnað sem og kjörin. Fjölmargir sem Markaðurinn hefur haft samband við hafa sagt að ríkið þurfi að ráðast í lántöku, þó svo kjör séu slæm, og það áður en þjóðfélagið fer á hliðina.

Sindri Sindrason, fréttamaður Markaðarins, beið eftir forsætisráðherra við Stjórnarráðið í morgun og hugðist spyrja hann um hugsanlegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Hér á eftir fara samskipti þeirra.

Sindri: „Jæja, hvar eru peningarnir sem eiga að komast inn í landið?"

Geir: „Á þetta að vera viðtal?

Sindri: „Já, ég myndi vilja heyra aðeins um þetta..."

Geir: „Þú verður að hafa samband fyrir fram."

Sindri: Geir, þjóðin náttúrlega bíður eftir einhverjum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Geturðu ekki gefið okkur smá komment?"

Geir: „Ég vildi gjarnan gera það, Sindri, ef þú hagaðir þér ekki svona dónalega."

Síðan skellti Geir hurð á nefið á Sindra. (visir.is)

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Minna um óhöpp á föstudaginn 13. en aðra föstudaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snemma beygist krókurinn

En það sem ekki kemur fram í fréttinni er hvernig þetta byrjaði allt. 

Það getur nefnilegaa gengið á ýmsu þegar reynt er að fá yngstu kynslóðina til að 
borða það sem er á boðstólnum og klára af disknum. Frakkinn sem hér er sagt frá var 
orðinn langþreyttur á stríðinu í kringum matarborðið og þrjósku 
sonarins sem vildi ekki klára matinn.

Hann sagði því við strákinn: “Ég kæri þig til lögreglunnar ef þú 
klárar ekki af disknum.” (á frönsku að sjálfsögðu)

Strákur lét ekki segjast en til að kanna alvöruna á bak við orð föður 
síns gekk hann niður á lögreglustöð og spurði: “Hefur pabbi verið 
hérna til að kæra mig fyrir að klára ekki af disknum?”

Lögreglumaðurinn á vakt var fljótur að fatta um hvað málið snérist og 
sagði: “Mais Oui, vinur minn, hann gerði það.”

Þá setti strákur í brýrnar og sagði hinn fúlasti: “Það var týpískt…………(le typical)

Hann kærir mig en svíkst sjálfur um að borga afnotagjaldið af 
sjónvarpinu, keyrir um á óskoðuðum bíl og eimar spíra í kjallaranum.”

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

 


mbl.is Eftirlýstur maður handtekinn hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndbirtingar

Nú hafa birst myndir af sakborningi þessa máls í nokkrum fjölmiðlum. Það er búið að kveða upp dóm og konan sannanlega sek, en ég held að almenningi stafi ekki mikil hætta af henni. Ég sé ekki alveg tilganginn með því að birta af henni þessar myndir, þegar aðrir eru látnir óáreittir.

 Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins


mbl.is 13 sakfelldir í Tryggingastofnunarmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hugsaði einmitt...

...þegar ég sá fyrirsögnina: "Ekki láta þessa frétt vera um Madonnu". Mér finnst hún of ung til að vitnað sé í hana með svona fyrirsögn. Ég spyr bara næstum eins og hún: Á maður bara að fá sér pípu og flókaskó og bíða eftir að deyja, þegar maður verður fertugur?

Garg í sólskini.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Ekki of gömul til að vera kynvera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður ekki allt vitlaust?

Nú er viðbúið að einhverjum þyki þetta guðlast, þó það hafi ekki verið guðir sem þarna marseruðu í einni bunu. Að minnsta kosti myndu sum trúfélög missa sig og krefjast hefndar yfir hinum guðlausu!

Er það ekki annars?

P.s. Flottur búningur hjá þeim vantrúuðu.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gætið ykkar

Úr frumvarpi til laga um meðferð sakamála.
XIII. KAFLI
Handtaka.
90. gr.

    Lögreglu er rétt að handtaka mann ef rökstuddur grunur leikur á að hann hafi framið brot sem sætt getur ákæru, enda sé handtaka nauðsynleg til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot, til að tryggja návist hans eða öryggi hans eða annarra ellegar til að koma í veg fyrir að hann spilli sönnunargögnum.
    Nú verður uppþot eða fjölmennar óeirðir brjótast út sem hafa haft eða gætu haft í för með sér líkamsmeiðingar eða stórfelld eignaspjöll og ekki verður með vissu bent á hinn seka eða hina seku og er þá lögreglu heimilt að handtaka hvern þann sem nærstaddur er og ástæða er til að gruna um refsiverða háttsemi.
    Auk þess sem kveðið er á um í öðrum lögum er lögreglu enn fremur heimilt að handtaka mann:
    a.      ef hann neitar að segja til nafns og deili á sér að öðru leyti, enda sé það nauðsynlegt í þágu rannsóknar,
    b.      ef hann hefur verið kvaddur til að gefa skýrslu hjá lögreglu sem sakborningur en ekki sinnt kvaðningu,
    c.      ef hann hefur ekki að forfallalausu sinnt fyrirkalli eða mætt til að gefa skýrslu í sakamáli,
    d.      ef hann hefur leyfislaust horfið úr gæsluvarðhaldi eða rofið bann skv. 1. mgr. 100. gr.


Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Mótmæli gegn eldsneytisverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband