Snemma beygist krókurinn

En það sem ekki kemur fram í fréttinni er hvernig þetta byrjaði allt. 

Það getur nefnilegaa gengið á ýmsu þegar reynt er að fá yngstu kynslóðina til að 
borða það sem er á boðstólnum og klára af disknum. Frakkinn sem hér er sagt frá var 
orðinn langþreyttur á stríðinu í kringum matarborðið og þrjósku 
sonarins sem vildi ekki klára matinn.

Hann sagði því við strákinn: “Ég kæri þig til lögreglunnar ef þú 
klárar ekki af disknum.” (á frönsku að sjálfsögðu)

Strákur lét ekki segjast en til að kanna alvöruna á bak við orð föður 
síns gekk hann niður á lögreglustöð og spurði: “Hefur pabbi verið 
hérna til að kæra mig fyrir að klára ekki af disknum?”

Lögreglumaðurinn á vakt var fljótur að fatta um hvað málið snérist og 
sagði: “Mais Oui, vinur minn, hann gerði það.”

Þá setti strákur í brýrnar og sagði hinn fúlasti: “Það var týpískt…………(le typical)

Hann kærir mig en svíkst sjálfur um að borga afnotagjaldið af 
sjónvarpinu, keyrir um á óskoðuðum bíl og eimar spíra í kjallaranum.”

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

 


mbl.is Eftirlýstur maður handtekinn hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

 ..ég meinti góður!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 12.6.2008 kl. 22:25

2 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þrælfyndið

Eiríkur Harðarson, 12.6.2008 kl. 23:28

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 12.6.2008 kl. 23:34

4 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

KRÓKURINN HÉR HVAR OG HVENÆR SEM ÉG KOMIN ER Í GAMLA GARGIÐ?

Þórður Helgi Þórðarson, 13.6.2008 kl. 14:31

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Garg, Þórður

Markús frá Djúpalæk, 13.6.2008 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband