Gæti það verið??

rollaMaður á besta aldri, rauðgóandi af reiði, með nýsteikt lambalæri í hendinni vindur sér inn í
Nóatúnsverslun, stormar beint að kjötborðinu og þrumar að unga
afgreiðslumanninnum:
"ÉG VAR AÐ STEIKJA ÞETTA LÆRI SEM ÉG KEYPTI HÉR Í DAG OG ÞAÐ VARÐ EKKI AÐ NEINU,
ÉG ER MEÐ MATARBOÐ OG ÞETTA DUGAR EKKI!"

Afgreiðslumaðurinn ungi horfði skelkaður á þann reiða og sagði svo með hægð:
"Jááá, veistu hvað ? ég keypti mér lopapeysu um daginn, svo varð hún skítug, ég
henti henni í þvottavél og síðan í þurrkara og hún bara hvarf !!"
...bætti svo við rólyndislega  "heldur þú að þetta gæti verið af sömu rollunni ?? "


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meeheeheheheee!!

Úlla (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband