Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Myndband dagsins

Um daginn var ég hér með textann við hið frábæra lag Happy Hour með The Housemartins. Hér kemur myndbandið. Njótið og skemmtið ykkur.

http://www.youtube.com/watch?v=7_TMUJIWwyI


Grillmatur

Er góður. Nú orðið grilla ég mikið kjúkling og þá aðallega bringur. Grísakjöt er líka mjög gott, lundir og annað í þeim dúr. En ég hef aldrei náð þeirri list almennilega að grilla naut.

Vona að ég læri það áður en ég fer á elliheimilið.


mbl.is Segja nýliðinn júlí besta grillmánuð Íslandssögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mögnuð

eivoreivor_4Söngkonan Eivör Pálsdóttir var gestur í síðdegisútvarpinu í dag. Þessi unga kona hefur allt sem prýða má góða manneskju, hefur góða nærveru og er auðvitað alveg frábær söngkona.

Hún er búin að vera í bransanum í 7 ár og sagði okkur frá hvernig hún hefði í raun alltaf ætlað sér að verða söngkona og lagasmiður. Hún hætti í skóla strax að loknum 10. bekk til að láta drauminn rætast. Hún talaði um stuðning foreldra sinna og hversu mikilvægt það væri að hafa hann og finna fólk trú á sér.

Við heyrðum nokkur lög af plötunum hennar, þ.á.m. fallegt lag sem hún syngur um systur sínar yngri.

Hún talaði um hve gott það væri að vera á Íslandi og henni finnist hún alltaf vera komin heim þegar hingað kemur, um hversu tónlistin hefur verið að blómstra í Færeyjum og hvernig líf tónlistarmannsins er.

Ég minni á endurtekningar á Útvarpi Sögu í kvöld og um næstu helgi.


Skottís - Skotís eða Skotvís?

Skiptir kannski ekki öllu máli - en gott að skotveiðimenn skuli hafa áhuga á að viðhalda stofninum. Það má nefnilega aldrei gleyma því að maðurinn er hluti af fæðukeðjunni.
mbl.is Dregið úr innsendum vængjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo er bara spurning

Hvort maður ætti ekki að fara að lesa Harry Potter? Ég ákvað að geyma mér bækurnar þar til þær væru allar komnar, nú er sá tímapunktur kominn. Hlakka til að grípa bók eitt og byrja. Og klára þær í snarhasti. Vinsældirnar benda til þess að þarna sé ágætis lesning á ferðum.

Er það ekki


mbl.is J.K. Rowling skrifar glæpasögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkanir

Eða lækkanir - eða hvað? Ætli seljendur vöru og þjónustu viti nokkuð í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Ætli niðurstaðan verði ekki að hækka hvort eð því það segir enginn neitt.
mbl.is Hlutabréf og krónan hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndband dagsins

Er með einni af þessum ódauðlegu hljómsveitum sem neita að gefast upp. Þetta er af plötunni Time frá 1981, sem var einhverskonar þemaplata um mann sem ferðast fram í tímann og kemst að því að allt var nú betra í þá gömlu góðu daga. Electric light orchestra og lagið Hold on tight.

http://www.youtube.com/watch?v=8TLmpL2AzLs


Hvað viljið þið heyra?

radioHvers konar fólk viljið þið fá í viðtöl í útvarpi? Það væri gaman að fá uppástungur að einhverju fólki sem þið teljið að sé það áhugavert að hægt væri að eyða með því heilum klukkutíma.

Látið allt vaða!


Seigir

Í dag eru þeir Kópvíkingar hetjur mínar. Mínir menn eiga þá enn séns! Ekkert að gera nema girða sig í brók og taka næstu leiki með trompi. Það er alveg hægt að vinna upp 3 stiga forskot! Og jafnvel komast í forystu.


mbl.is Tryggvi tryggði FH stig gegn nýliðum HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndband dagsins

Þetta rifjar upp gamlar og góðar minningar. Hjá mér allavega. Veit ekki með aðra.

http://www.youtube.com/watch?v=uWixPLuvDr8


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband