Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Hvað hefði íslenskur pólítíkus gert?
22.8.2007 | 15:40
Hann hefði mætt í nokkur viðtöl í fjölmiðlum, farið á fund formanns flokksins, hefði bullað í nokkrar hringi um málið og hefði litlu síðar verið orðinn varaformaður flokksins og sestur í bankaráð Seðlabankans auk borgarstjórastólsins.
Litlu síðar hefði hann fengið fálkaorðuna fyrir vel unnin störf á vinnutíma.
Eða hvað?
![]() |
Borgarstjóri Óslóar sagði af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vá svakalegt!
22.8.2007 | 11:48
![]() |
Kviknaði í bifreið eftir tvær veltur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndband dagsins
22.8.2007 | 09:10
Þýska hljómsveitin Alphaville hét upphaflega Forever young, en breytti nafninu árið 1984. Sama ár og stærstu smellir þeirra, Big in Japan og Forever young komu út. Big in Japan komst víða í efstu sæti vinsældalista enda ágætissmellur. Alphaville er enn starfandi en ekki hafa heyrst mikil tíðindi af afrekum þeirra á tónlistarsviðinu.
http://www.youtube.com/watch?v=mXPUkrz7Uow
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Elsku besti Bush
22.8.2007 | 09:01
![]() |
14 bandarískir hermenn fórust í þyrluslysi Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vonbrigðin
22.8.2007 | 08:03
Skólinn byrjar á morgun.
Litla stelpan, nýorðin sex ára hlakkaði ógurlega til síðasta leikskóladagsins. Hann verður svo skemmtilegur. Hann verður frábærlega skemmtilegur. Kveðjudagurinn.
Síðasti leikskóladagurinn er nefnilega alltaf svo sérstakur. Hún vissi nefnilega að börnin sem hætta í leikskóla fá alltaf góðan kveðjudag.
Hún var fyrir löngu búin að ákveða að gefa leikskólakennurunum sínum gjöf, blóm og konfekt. Mamma átti sko að hjálpa til við að velja og síðan myndu þær laumast inn með gjöfina í lok dags og koma öllum á leikskólanum á óvart.
Síðasta leikskóladaginn klæddi litla stelpan sig í aðeins fínni föt en vanalega því maður setur ekki á sig kórónu við gallabuxur og bol, það gengur ekki. Sætt pils og blússa varð fyrir valinu. Maður verður að vera fínn á svona sérstökum degi.
Skólinn byrjar nefnilega á morgun.
En síðasti dagurinn varð eitthvað skrýtinn, að minnsta kosti öðruvísi en hún hafði gert ráð fyrir. Hann var bara venjulegur. Það var gert það nákvæmlega það sama og vanalega, öll börnin fóru út að leika, matur á sínum tíma, hvíld á sínum tíma og enginn nefndi að litla stelpan væri að hætta á leikskólanum. Litla stelpan varð smám saman svolítið leið. Það var engin kóróna heldur. Engin kóróna.
Leikskólakennararnir fóru að tínast heim einn af öðrum, vinnudegi að ljúka en þeir skildu ekki af hverju litla stelpan sem alltaf var svo kát virtist eitthvað döpur. Vonandi var ekkert að heima. Það væri kannski allt í lagi að spyrja hana á morgun ef hún yrði ekki orðin kátari. Það þarf að komast að hvort allt sé ekki í lagi hjá litlu stelpunni.
En skólinn byrjar á morgun.
Þegar mamma kom að sækja litlu stelpuna eftir að hafa ekið um bæinn þveran og endilangan í leit að réttu gjöfunum var bara einn kennari eftir á deildinni. Litla stelpan fór út með mömmu sinni að sækja gjöfina. Þegar þær komu með hana inn varð kennarinn auðvitað alveg hissa og tók við gjöfinni. En þetta var samt allt einhvern veginn öðruvísi en litla stelpan hafði hugsað sér. Það voru næstum allir farnir.
Litla stelpan fór heim með mömmu sinni með pínulítinn sting í hjartanu sínu. Síðasti leikskóladagurinn kemur aldrei aftur.
Og skólinn byrjar á morgun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kannski gott
21.8.2007 | 20:16
Eru 2000 fm ekki of mikið byggingarmagn á þessum reit? Væri ekki nær að leysa málið eins og gert var í Austurstræti, að byggja hús sem falla að götumyndinni. Mér finnst að lítill og lágreistur miðbær eigi að vera þannig áfram því það er ekkert gaman að ganga um í skugga af steindauðum glerkumböldum. Hvað sem allri hagræðingu líður.
Ég verð samt að viðurkenna hvað sem hver segir, að nýja húsið á Stjörnubíóreitnum er fyrir minn smekk vel heppnað borgarhús sem passar ágætlega þar sem það er.
Það virðist gleymast að þau hús sem eru reist núna þurfa að öllum líkindum að standa fyrir augunum á okkur um langa framtíð, þannig að vandvirkni á því sviði er alger nauðsyn.
![]() |
Afgreiðslu umsóknar um niðurrif á Laugavegi frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gestur síðdegisútvarpsins
21.8.2007 | 17:39
Í dag fengum við Valgeir Guðjónsson tónlistarmann í heimsókn. Hann kom með hluta af plötusafninu sínu með sér og við fengum að heyra margar perlurnar. Við spjölluðum um Stuðmenn, tónlistarferilinn, áhrifavaldana og hvernig tónlist getur haft mikil áhrif á mann bæði til
Úr eigin smiðju Valgeirs heyrðum við lagið Gurme af Jolla og Kóla plötunni frá 1983 og lag af plötu Megasar Á bleikum náttkjólum frá 1977. Eitt besta popplag allra tíma fékk að fljóta með, Surf´s up af Smile plötu Brians Wilsons og mörg önnur góð lög sem eru í uppáhaldi Valgeirs.
Það var gaman að fá Valgeir í heimsókn, hann er nettur flippari og viðurkennir það sjálfur. Slíkir menn eru alltaf svo skemmtilegir og gefa lífinu lit.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er áhugavert
21.8.2007 | 13:29
Arkítektúr og byggingarlist er mjög spennandi, sérstaklega hér á norðurhjara þar sem þessu hefur nú ekki verið veitt of mikið rými á stundum. Allavega er oft eins og menn gleymi öllu eðlilegu samhengi á Íslandi. Reykjavík er ekki lengur sama lágreista borgin og hún var fyrir tuttugu árum. Nú þykja það varla tíðindi þó byggðar séu glerhallir sem ná tugi metra í loft upp. Ég vona líka að þeir sem einhverju ráða beri til þess gæfu að drepa ekki allt líf í miðbænum með hroðalegri háhýsabyggð sem gerir ekkert nema skyggja á miðbæjarmenninguna. Sem betur fer hafa menn líka verið að gera góða hluti í þessum efnum, eins og dæmin sanna. Slysin eru því miður mörg og við skulum endilega reyna að læra af þeim.
![]() |
Hafa allir vit á arkitektúr? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ný skoðanakönnun
21.8.2007 | 12:11
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óviðeigandi tenging við frétt
21.8.2007 | 11:21
Nú skil ég af hverju ég er alltaf svona blankur, það er útlitinu að kenna!!! Eina ráðið er að leggja til hliðar af lúsarlaununum (tilkomnum vegna ófríðleika) og safna fyrir fegrunaraðgerð. Fá goðumlíkt nef, kjálka, eyru, smella botoxi í varirnar og fara í hárígræðslu. Fitusog, brúnkumeðferð og brasilískt vax slær svo lokatóninn í þessarri fegrunarsinfóníu. Þarf pottþétt ekki í líkamsrækt, tæknin sér til þess. Upp úr öllu þessu veseni stendur svo nýendurhannaður Markús sem umsvifalaust fær 12% hærri laun en aðrir.
Rosalega hlakka ég til!
![]() |
Fallegt fólk þénar mest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)