Óviðeigandi tenging við frétt

Svona verð égNú skil ég af hverju ég er alltaf svona blankur, það er útlitinu að kenna!!! Eina ráðið er að leggja til hliðar af lúsarlaununum (tilkomnum vegna ófríðleika) og safna fyrir fegrunaraðgerð. Fá goðumlíkt nef, kjálka, eyru, smella botoxi í varirnar og fara í hárígræðslu. Fitusog, brúnkumeðferð og brasilískt vax slær svo lokatóninn í þessarri fegrunarsinfóníu. Þarf pottþétt ekki í líkamsrækt, tæknin sér til þess. Upp úr öllu þessu veseni stendur svo nýendurhannaður Markús sem umsvifalaust fær 12% hærri laun en aðrir.

Rosalega hlakka ég til!


mbl.is Fallegt fólk þénar mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Bara setja fegrunaraðgerð inn í kröfugerð við næstu kjarasamninga!

Valgerður Halldórsdóttir, 21.8.2007 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband