Valur flytur heim - Rauði herinn verður til
18.5.2008 | 20:05
Nú er komið að því, Valur er að flytja HEIM. Vodafonevöllurinn Hlíðarenda verður vígður 25.maí á 140 ára fæðingarári sr. Friðriks Friðrikssonar.
Vígslan fer fram klukkan 17:00 og í kjölfarið verður boðið upp á léttar veitingar áður en opnunarleikur milli VALS og FJÖLNIS í Landsbankadeildinni fer fram klukkan 19:15. Valsmenn langar til að lyfta grettistaki í félagslegu umhverfi Vals. Þeir ætla að kalla sjálfboðaliða Vals RAUÐA HERINN hóp stoltra Valsmanna. Hvað á Rauði herinn að gera? Það er von Valsmanna að fólk taki þátt á sínum forsendum. Það þarf að ná utan um þann hóp sem vill taka þátt í starfinu þannig að hægt sé að deila störfum niður á fjöldann. Hverjir geta verið með? Allir Valsmenn og -meyjar eru að sjálfsögðu velkomin. Það eina sem þarf að gera er að skrá sig á skrifstofu Vals, 414 8000, eða senda tölvupóst á joilange@valur.is hvort sem það eru stjórnarmenn, foreldrar, gamlir leikmenn, stuðarar, leikmenn yngriflokka eða aðrir. Hvaða störf þarf að vinna? Afgreiða kaffi, grilla pylsur, annast dyravörslu, uppsetningu á auglýsingakerfi, kynna leikmenn, sjá um tónlist, skrifa fréttir, taka myndir, annast þrif, stjórna bílaumferð, afgreiða miða, fylgjast með yngri flokkum og margt fleira.
Það eru óþrjótandi möguleikar á að gera umgjörðina á Hlíðarenda þá glæsilegustu á landinu!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Pepsi-deildin, Trúmál og siðferði, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:09 | Facebook
Athugasemdir
piff!
Hrönn Sigurðardóttir, 18.5.2008 kl. 20:49
...þú heyrir að ég er afar langrækin....
...en ókey - til hamingju með nýja völlinn - sagði konan með semingi!
Hrönn Sigurðardóttir, 18.5.2008 kl. 20:50
Markús frá Djúpalæk, 18.5.2008 kl. 21:00
Kaldur hattur? Er ekki agalega erfitt að vera með svona kaldan hatt?
Hrönn Sigurðardóttir, 18.5.2008 kl. 21:01
En þetta er ekki kúluhattur sko...
Markús frá Djúpalæk, 18.5.2008 kl. 21:07
Alveg vissi ég að það þætti þetta fleirum vera svalt átfitt. Og sammála Dúunni; fótbolti hvað? Það er pottþétt ekkert sem klæðir þig, auk þess sem Valur er ránfugl og rauði herinn... well, never mind.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.5.2008 kl. 21:19
Markús frá Djúpalæk, 18.5.2008 kl. 21:33
Amm.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.5.2008 kl. 22:44
Áfram Valur!
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.5.2008 kl. 01:40
Áfram Valur!
Ég hef öskrað mig hása oftar en einu sinni á leik með þeim!
Sporðdrekinn, 19.5.2008 kl. 02:07
Áfram Njarðvík!
Þórður Helgi Þórðarson, 19.5.2008 kl. 09:40
Koma svo, Forrest!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.5.2008 kl. 12:58
Helga, Gump? Doddi, Njarðvík.. Njörður P. þá?
Markús frá Djúpalæk, 19.5.2008 kl. 13:02
Eða bara Nottingham Forest.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.5.2008 kl. 14:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.