Þið segið tíðindin!

parid 

Leikskólakennarinn Aðalheiður Steingrímsdóttir kölluð Heiða og bensínafgreiðslumaðurinn Pétur Vilhjálmsson, kallaður Pési, gengu í hjónaband á heimili foreldra hennar í Torfufellinu, í Reykjavík í gær. Faðir brúðarinnar Steingrímur Njálsson gaf brúðhjónin saman og var systir hennar Jófríður brúðarmeyja. Reyndar hefur Steingrímur ekki leyfi til hjónavígslna enda telja þau skötuhjúin Heiða og Pési að hjónabandið muni ekki endast lengi hvort eð er.

15 gestir munu hafa verið viðstaddir brúðkaupið sem var að sögn með skírskotunum í söguna um Mola flugustrák. Þá mun brúðurin hafa verið klædd brúðarkjól sem frænka hennar Dóra blinda hannaði og með hálsmen og eyrnalokka sem hún keypti í Kolaportinu.

Heiða, sem er 23 ára, og Pési, sem er 28 og afgreiðir bensín hjá Olís tóku saman haustið 2006 og opinberuðu trúlofun sína, kófdrukkin í partíi 12. apríl. Í kjölfar þess fóru á kreik sögusagnir í fjölskyldunni um að eina ástæða trúlofunarinnar hafi verið sú að Pési barnaði Heiðu, en þau hafa bæði neitað því, en segjast ætla að fá sér páfagauk. Pési greyið þykir með ófríðari mönnum, en Heiða er alveg ágæt þrátt fyrir skyldleika foreldra hennar.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Ashlee Simpson giftir sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 18.5.2008 kl. 14:49

2 Smámynd: Beturvitringur

Elska þig (stundum) t.d. NÚNA

Beturvitringur, 18.5.2008 kl. 15:15

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 18.5.2008 kl. 15:59

4 identicon

bill og hillary clinton í ungu árum??? hehe

sævar (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 21:06

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þarna voru þau ung og... sæt...

Markús frá Djúpalæk, 18.5.2008 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband