Færsluflokkur: Dægurmál

Ekki fréttir

Ég verð alltaf jafn undrandi þegar ég sé hið mikla magn ekki frétta sem fjölmiðlar hamast við að dæla í okkur. Manni dettur stundum í hug að það þurfi að fylla upp í ákveðið magn af megabætum á netmiðlunum og dálksentimetra í prentmiðlunum. Að ógleymdum þögnunum sem þarf að yfirgnæfa á ljósvakanum. Þá er greinilega talið betra að fylla viðkomandi tómarúm með stórkostlegum ekki fréttum. Eða fréttaleysum.

Ein fréttaleysan sem ég rak augun í, í einhverjum fréttamiðlinum voru þau stórkostlegu tíðindi að einn keppanda í "raunveruleikaþættinum" Hæðinni væri bróðir útvarpsmannsins Þrastar 3000!!!! Who the fuck? Þröstur 3000 for crying out loud. Hverjum er ekki sama hvort hann á bróður og enn meira sama um að hann sé að dunda sér við að innrétta eitthvað hús í beinni?

Ja, mér stendur allavega nákvæmlega á sama.


mbl.is Er ekki kærasta Ivica Kostelic!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað skyldi hún hafa sagt...

...sem var svona skelfilegt?

The current charge against Bardot was lodged by the Movement Against Racism and for Friendship between Peoples (MRAP), citing a letter Bardot wrote to French officials in 2004 in which she alluded to Muslims as "this population that leads us around by the nose, [and] which destroys our country." The former actress-turned-animal rights crusader had written that letter to protest the ritual slaughter of sheep during the Muslim festival of Eid-al-Kabir. Her missive, whose contents were later leaked to the media, had been sent to then-Interior Minister Nicolas Sarkozy, whose rising popularity was based in part on his hard line on immigration and tough stand against troublesome youths from immigrant backgrounds.


mbl.is Brigitte Bardot kærð fyrir kynþáttahatur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað...

... og forvitnilegt að könnun yrði gerð á þessu hér. Mér skilst þó að bretar hafi betra eftirlit en við, með því hverjir koma inn í landið og geta þá hugsanlega vísað meintum glæpamönnum frá við hliðið.

Ég veit það af samtölum mínum við pólverja að þeim líkar ekki að sjá eftirlýsta pólska glæpamenn á vappinu í miðborg Reykjavíkur, og auðvitað viljum við ekki hafa neina glæpamenn hér. 


mbl.is Pólska glæpaaldan er goðsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkileg nýjung - en spurning um gagnsemi

holmesLögregluembætti víða um heim hafa tekið upp þá nýlundu er kallast fingrafaraskoðun. Með þeim hætti munu menn telja að hægt verði að greina hver skilur eftir sig húðfitu á hlutum sem finnast eða eru skildir eftir á glæpavettvangi. Vísindamenn telja að engin tvö fingraför séu eins og því muni þessa nýja tækni reynast bylting við að hafa uppi á brotamönnum. Ég verð að segja að ég er efins um þessa nýju tækni, ekkert mun reynast þeim sem eltast við glæpamenn jafn haldgott við lausn glæpamála og gamla góða hyggjuvitið og innsæið. Allt raup um aðferðir vísindanna er oftast nær bóla sem engu skilar til lengri tíma litið.

Góðar stundir.


mbl.is Fingrafarið kom upp um þjófinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera boðið...

donaldivana...heim til sín í brúðkaup fyrrverandi konu sinnar getur hvergi gerst nema í sýndarveröld hinna frægu og ríku í Ameríku. Ég verð þó að kalla Donald lánsaman að vera boðið heim til sín, vonandi fær hann snittur og appelsín, ég held allavega að hann megi ekki drekka neitt sterkara.

Skyldi þessi ítalski athafnamaður vera svipaður og sumir starfsbræðra hans á Íslandi, svona wannabe? Hvað um það, Ivana virðist vera voða ánægð með ráðahaginn, en ég held að það verði annað hvort ægilega sorglegt eða hrikalega fyndið að sjá þau saman eftir 20 ár, en hún er 23 árum eldri en nýi eiginmaðurinn. Ef hjónabandið heldur svo lengi. En, krakkar, til hamingju samt...


mbl.is Ivana Trump á leið í hnapphelduna í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig í ósköpunum er...

..lauslætissvipur?

Einstein

Svona einhvern veginn?

tony_funny_face

Eða svona?

Geir_H

Jafnvel svona?

Þetta er rannsóknarefni.


mbl.is Andlitið ákvarðar samböndin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppruni eldsins

0olympiaHinir samtvinnuðu hringir og kyndillinn sem borinn er milli landa, eru einhverjar sterkustu táknmyndir Ólympíuleikanna. Uppruna ólympíueldsins má rekja aftur til hinna fornu Ólympíuleika í Aþenu þar sem heilagur eldur var kveiktur með sólarljósinu og látinn brenna við altari Seifs á meðan á leikunum stóð.

Það var svo fyrir Ólympíuleikana í Amsterdam árið 1928 sem eldurinn var kveiktur á ný, þrátt fyrir að fyrstu leikar nútímans hafi verið haldnir í Grikklandi árið 1896. Fyrir leikana í Berlín árið 1936 var svo tekin sú ákvörðun að hlaupa með eldinn um víða veröld eins og gert er í dag. Sagan segir að þessi siður að hlaupa með eldinn um borgir hinna ýmsu landa hafi verið fundinn upp af nasistum í áróðursskyni. Eldurinn er kveiktur með aðstoð spegils og sólar, við hátíðlega athöfn í Olympíu og þaðan er hlaupið með hann vítt og breytt um heiminn þar til hann nær landi í þeirri borg sem heldur leikana það árið. Loginn fær svo að brenna uns Olympíuleikunum lýkur.

Núna, árið 2008 gerðist það í fyrsta sinn í sögunni að eldurinn var slökktur á leið sinni frá Olympíu vegna mótmæla gegn gestgjafanum þetta árið, Kína. Í kjölfarið er tekin sú ákvörðun að því er virðist, að gera þetta sameiningartákn leikanna ósýnilegt almenningi.


mbl.is Ólympíueldurinn í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir láta ekki að sér hæða - embættismennirnir

...og þetta er ábyggilega ekki fyrsti kyndillinn sem þeim hefur tekist að slökkva í. Og sennilega ekki sá síðasti. Þó þeir hafi oftar beitt málþófi, töfum og málalengingum frekar en kertaslökkvara...
mbl.is Slökkt á ólympíueldi í París
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkun um næstum heila bíóferð

Það rann upp fyrir mér ljós rétt áðan. Svona bíóljós. Ég fattaði allt í einu að ég fer rosalega sjaldan í bíó. Alltof sjaldan því bíóferð getur verið ágætis skemmtun ef frá eru taldar 20 mínúturnar sem notaðar eru til að auglýsa flatbökur og fjallareiðhjól á undan bíómyndinni. Aftur á móti pirra sýnishorn úr væntanlegum myndum mig eiginlega ekki neitt, nema ef sýnishornapakkinn er alveg úr takti við myndina sem berja á augum, til dæmis ef maður er á barnamynd og það er sýndur fjöldi búta úr þeim ofbeldis- og spennumyndum sem bíóið hyggst sýna á næstunni. Eins og hefur gerst.

En svo sjaldan fer ég í bíó, og þá oftast í boði kvikmyndahússins starfs míns vegna, að ég veit eiginlega varla lengur hvað það kostar stunda þessa hollu skemmtun. Nema stundum um helgar hafa kvikmyndahúsin auglýst það sem þau hafa kallað Sparbíó. Ekki sparibíó, neinei, Sparbíó. Það á semsagt að vera ódýrara fyrir heilu fjölskyldurnar að fara í bíó saman á þeim sýningum sem kallaðar hafa verið Sparbíó. Um síðustu helgi kostaði hver miði á slíka sýningu 450 krónur. Sem þýddi að bíóferðin, fyrir utan popp og kók og allan þann pakka, kostaði 1800 krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Vel sloppið svona miðað við annað á Íslandi.

Í helgarblöðunum núna sýnist mér verið að auglýsa nákvæmlega sömu myndirnar og um síðustu helgi, en núna kostar 550 krónur í Sparbíóið. Sem gerir 2200 krónur fyrir sömu fjögurra manna fjölskylduna og áður var nefnd. Semsé hækkun um næstum heilan Sparbíómiða fyrir fjölskylduna, fyrir viku hefði verið hægt að taka Sigga frænda með fyrir sama pening. Þetta er hækkun um rúm 22%. Á að mestu sömu myndir og fyrir viku, maður hefði kannski skilið hækkun á nýinnkeyptar myndir. Nei, menn eru fljótir að hækka allt þegar krónan fellur, en einhvern veginn virðist alltaf vera meiri tregða til að lækka vörunar þegar kvikindið styrkist aftur.

Það er ekki mikið dýrara, og sennilega ódýrara ef fjölskyldan kaupir slikkerí í bíóinu, að kaupa bara myndina á DVD og horfa á hana í heimabíóinu.

Ég fékk í hendurnar í gær upplýsingar um mjög skuggalega hækkun láns hjá einu lánafyrirtækjanna sem ég ætla að skoða betur og blogga um eftir að ég hef skoðað það betur. Það virðist vera sem einhvers staðar, jafnvel víða, hafi fyrirtæki nýtt sér panikástandið í þjóðfélaginu og hækkað vörur og þjónustu mun meira en sem nemur því sem hægt er að skýra með gengisbreytingunni. Verum á verði gagnvart slíku, það er allt reynt.


Dansinn dunar

0filarNú er bara að senda "landsliðið" í dansþjálfun þannig að þau geti gert það sama fyrir atriðið og brottreknu dansararnir hefðu gert. Það verður nú ekki mikið mál að draga fram þokkafullar danshreyfingar hjá Heru Björk og Grétari Örvars. Guðrún Gunnars er náttúrulega dansfíkill og Jesú getur allt.

Málinu reddað.


mbl.is Landslið bakradda fylgir Eurobandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband