Færsluflokkur: Bloggar
Örugglega skemmtilegra
5.9.2007 | 12:33
![]() |
Afdrifarík stafsetningarvilla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvernig er mælt?
5.9.2007 | 11:41
Og hvað er mælt? Fjöldi flatskjáa, nýrra bíla, leðursófasetta og græja af öllum gerðum? Er spurt um ytri, veraldleg gæði eingöngu? Eða er mælt hve miklum tíma við getum varið með börnum okkar og öðrum ástvinum? Hve oft við getum farið í göngutúr í góðu veðri og hve oft er hægt að sitja í sólinni og drekka morgunkaffið? Er mælt hve vel er búið að öldruðum og öryrkjum, veikum börnum og fullorðnum? Er mælt hve oft við getum farið í söfn og kirkjur og bíó og leikhús og á tónleika og hve mikið eða lítið það kostar okkur að fara á slíka staði? Er mælt hve löngum tíma við verjum í vinnunni á hverjum degi og hve mikla eða litla gleði vinnan veitir okkur?
Eða er kannski bara spurt, telurðu lífsgæði þín vera mikil, já eða nei? Og látið þar við sitja.
![]() |
Ísland í öðru sæti á efnahags- og lífsgæðalista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
A selur B sem selur C
5.9.2007 | 11:28
![]() |
Glitnir kaupir 39,8% í TM á 20 milljarða króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Umfjöllun morgunsins
5.9.2007 | 10:25
Í morgunútvarpinu tók ég fyrir málefni aldraðra og öryrkja, einkum í framhaldi af frétt frá í gær um öryrkja sem missir bæturnar sínar í heilt ár vegna of langrar vistunar á sjúkrahúsi. Einnig fjallaði ég um dreifibréfið til heilbrigðis- og félagsmálaráðherra sem bloggarar gengust fyrir að senda í gær. Ég las upp úr bloggfærslunni hennar Þórdísar Tinnu frá 31.ágúst þar sem hún vandaði ráðamönnum ekki kveðjurnar og varð kveikjan að fyrrnefndum dreifipósti. Einnig talaði ég við Sigurstein Másson formann Öryrkjabandalagsins sem var bjartsýnn á úrbætur í meðförum nýrra ráðherra.
Þessi umfjöllun vakti það mikla athygli að í símatíma í þætti Sigurðar G. Tómassonar kl. 9 hringdi fólk og tjáði sig um þetta og vildi gera sitt til að aðstoða Þórdísii Tinnu í veikindum hennar.
Það er mikið af góðu fólki þarna úti, meira um það síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Guði sé lof
4.9.2007 | 18:58
að við getum haft húmor fyrir honum, en spurningin er auðvitað sú hvort það sé við hæfi að grínast með þennan þátt sögu Krists, upphaf píslarsögunnar? Það hefði kannski mátt velja einhverja aðra kafla úr Nýja testamentinu úr því að það þurfti að velja þá góðu bók sem grundvöll nýrrar auglýsingaherferðarinnar hjá Símanum.
T.d. með Jesú röltandi á vatninu og hann hringir í fiskimennina og segir þeim í rólegheitum að hann sé nú bara rétt ókominn til þeirra. Hann hafi bara aðeins tafist og því þurft að hlaupa til þeirra.
Eða Jesú að klára að lækna Lasarus og um leið og hann stendur upp grípur Jesú símann og hringir eitthvað og segir: Jú búinn að lækna strákinn, hann skýst bara til ykkar.
Eða eitthvað. Guð er nefnilega góður og hefur húmor fyrir þessu. En ég er ekki alveg jafn viss um að hann hafi endilega húmor fyrir fólki sem sver af sér samþykki fyrir svona auglýsingum og segist ekki hafa vitað hvernig útkoman yrði þó svo búið væri að segja þeim hugmyndina.
Samt sér Guð kannski líka í gegnum fingur með það.
![]() |
Miklar umræður á meðal bloggara um nýja auglýsingu Símans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Munurinn á körlum og konum
4.9.2007 | 12:11
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Helvítis grauturinn - saga um morgunverkin
4.9.2007 | 10:49

einn daginn.
Bangsi litli tölti inn í eldhús, settist við morgunverðarborðið, leit ofaní
litlu skálina sína og sá að hún var tóm. "Hver hefur borðað grautinn minn?"
spurði hann, ámátlegum rómi.
Bangsapabbi leit ofan í stóru skálina sína og sá að hún var líka tóm.
"Hver hefur borðað grautinn minn?" urraði hann.
Bangsamamma leit upp frá eldhúsbekknum og sagði:
"Ó mæ god, hvað oft þurfum við að fara í gegnum þetta?
Bangsamamma vaknaði fyrst allra.
Bangsamamma vakti ykkur hina.
Bangsamamma hitaði kaffið.
Bangsamamma tæmdi uppþvottavélina og raðaði upp í skápa. Bangsamamma lagði
á borðið. Bangsamamma hleypti kettinum út, tæmdi kattabakkann og gaf kisu
að éta og drekka.
Bangsamamma fór út og sótti blaðið.
Og nú, þegar þið drattist loksins á fætur og parkerið ykkar súru trýnum við
morgunverðarborðið...
hlustið vel, þetta segi ég bara eitt skipti í viðbót:
""ÉG ER EKKI BÚIN AÐ BÚA TIL HELVÍTIS GRAUTINN ENNÞÁ!!!!""
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ótti
4.9.2007 | 10:29
Það er auðvitað deginum ljósara að menn eru ekki handteknir og hnepptir í gæsluvarðhald að ósekju í tengslum við hryðjuverkamál. Að baki er löng og ítarleg rannsókn sem leitt hefur til þeirrar stöðu sem nú er komin upp.
Þegar svona atburðir verða í næsta nágrenni, eins og í okkar gömlu höfuðborg, spyr maður sig er hætta á að staða sem þessi komi upp á Íslandi? Auðvitað vonar maður ekki og því má ekki gleyma að Danmörk er virkari þátttakandi í hernaði eða friðargæslu víða um heim, en við Íslendingar. Heldur má ekki gleyma skopmyndunum sem fór svo mjög fyrir brjóstið á sómakærum áhangendum íslams.
Óneitanlega fer um mann óhugur samt að fá svona tíðindi.
![]() |
Átta handteknir í lögregluaðgerðunum í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hefði ekki mátt lauma karlinum eitthvað annað?
3.9.2007 | 14:29
![]() |
Bush laumað út úr Hvíta húsinu í skjóli nætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Seinheppinn alltaf
2.9.2007 | 20:01
Mér tekst alltaf að klúðra því að skunda á völlinn þegar Valsmenn sýna stórleik eins og þeir óhikað gerðu í kvöld. Ja, segi nú kannski ekki alltaf, en alltof oft.
Nú getum við átt von á gríðarlega spennandi lokaumferðum Íslandsmótsins og allt getur gerst. Fimleikafélag Hafnarfjarðar náði reyndar góðum sigri í bikarkeppninni fyrr í dag þegar þeir sigruðu baráttuglaða Blika. Nú er spurning hvernig Hafnfirðingarnir mæta til næstu leikja, bandbrjálaðir með sigurviljann að vopni eða þreyttir eftir slaginn við Blikana.
Við vitum allavega að Valsmenn hafa tvíeflst eftir gott gengi að undanförnu og mæta bandbrjálaðir í næstu leiki.
Að minnsta kosti er ekkert öruggt ennþá í Íslandsmótinu, hvorki hverjir falla, né hverjir verða Íslandsmeistarar. Það eru spennandi vikur framundan fyrir fótboltaáhugamenn!
![]() |
Valsmenn unnu stórsigur á Víkingi, 5:1, og metið féll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)