Færsluflokkur: Bloggar
Hálf kærulaust
11.9.2007 | 14:04
![]() |
Lögregla segir ekki fullvíst að erfðaefni sé úr Madeleine |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sennilega kuldalegt að fá hana á brjóstið
11.9.2007 | 10:42
![]() |
Forseti Íslands sæmir tvo prófessora riddarakrossi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað í ósköpunum?
10.9.2007 | 20:39
![]() |
Portúgalska lögreglan segir DNA-sýni afdráttarlaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Forspá?
10.9.2007 | 15:30
![]() |
Gordon Brown leggst gegn því að hækka laun opinberra starfsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vá hvað rigningin er blaut
8.9.2007 | 19:48
Ég vona að þessi rosalega bleyta sem skellur á mönnum á Laugardalsvelli verði Íslendingum til framdráttar. Ekki veitir okkkur af. En ég er sannfærður um að strákarnir gera sitt besta og ná vonandi að kreista út eitt stig. Jafnvel þrjú. Nú ef við töpum má ekki gleyma því að spánverjar eiga nú barasta eitt bezta fótboltalið veraldarinnar. Það er svosum engin skömm af að tapa fyrir svoleiðis liði.
Go boys!!!
![]() |
Íslendingar og Spánverjar skildu jafnir, 1:1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 9.9.2007 kl. 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Pirringur er þetta...
8.9.2007 | 16:04
..bæði í nágrannanum sem amast við tónlist í bíl, og Foxy sem slær hann utanundir með farsímanum sínum. Vonum bara að þetta hafi ekki verið gamall Motorola hlunkur frá 1997. Þá hefði nágranninn stórslasast.
![]() |
Foxy Brown dæmd í árs fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er þetta ekki ástæðan?
8.9.2007 | 09:08
Alltaf tekst okkur íslendingum að haga okkur eins og villimenn. Það er eins og sumum okkar takist til dæmis aldrei að standast freistinguna að svindla á kerfinu með einum eða öðrum hætti. Um leið og finnst smuga þá er það gert. Kannski er það að sumu leyti vegna þess að ýmis kerfi virðast hygla einum en ekki öðrum og þeir sem ekki fá hyglinguna (er það orð, annars?) reyna allt til að komast í hópinn. Þetta leiðir smám saman til þess að hyglingin verður aflögð eða gerð fáránleg, eins og að þurfa að hafa sérstaka eftirlitsmenn í strætó. Kommon!
Eðlilegast væri að allir fengju frítt í strætó, eða að gjaldtaka fyrir notkun þessarra gulu vina okkar væri þannig að efnahagnum stæði ekki stórhætta af henni.
![]() |
Svindl með strætókort stóreykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fljúgum hærra
5.9.2007 | 21:35
Ég er einn af mörgum sem fæ alltaf smá beyg fyrir flug og meira að segja stundum flughræðslu og af og til flugskelfingu. Stundum hef ég verið hroðalega illa haldinn og allt að því skelfingu lostinn áður en kemur að því að stíga upp í flugvél. Svo slæm hefur líðanin endrum og eins orðið að ég hef átt mjög erfitt með að einbeita mér að því sem svo mörgum finnst svo undursamlega skemmtilegt, það er að versla í fríhöfninni fyrir flug. Það skrýtna er að þetta gerist ekki alltaf, bara stundum. En alltaf er smábeygur undirliggjandi.
Ég veit ekki alveg hvað veldur þessu, það er allavega engin staðföst rök að baki þessarri líðan, hún bara sprettur upp, eins og svitinn á enninu á mér. Og hverfur svo um leið og flugvélin sleppir flugbrautinni. Hvað gerist þá? Jú, við tekur flugleiði, skemmtilegt orð. Já það er ekkert voðalega gaman að sitja í þrengslunum í flugvélinni kannski tímunum saman, fylgjast með rápinu á hinum farþegunum, það er eins og allir um borð þurfi að fara á klósettið eða þekki einhvern aftast í vélinni sem nauðsynlega þarf að heimsækja eða öfugt. Síðan koma flugliðarnir í heimsókn sem eru iðulega að reyna að selja manni eitthvað sem á að vera á alveg stórkostlega fínu verði. Svo sér maður yfirleitt ekkert út.
Stundum reyni ég að lesa eitthvað, eða sofna. Svo þegar nálgast lendingu og ég hrekk upp af svefninum eða dett upp úr bókinni tekur beygurinn, hræðslan eða skelfingin völdin aftur og sleppir ekki klónum fyrr en allir eru búnir að klappa fyrir því hvað flugstjórinn er flinkur að lenda. Þá naga ég mig í handarkrikana fyrir að vera svona mikill asni að njóta ekki flugtaks og lendingar betur og heiti mér því að þetta verði öðruvísi næst. Og stundum tekst það því flughræðslan er mismikil.
En ég er ekkert viss um að ég yrði neitt sérlega hress ef ég kæmist að því að flugstjórinn væri á sneplunum.
![]() |
Drukkinn flugstjóri millilenti farþegaþotu á Arlanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gestir í síðdegisútvarpi
5.9.2007 | 21:02
Í dag fékk ég Katrínu Hall, listrænan stjórnanda Íslenska Dansflokksins í heimsókn. Hún sagði okkur undan og ofan af sögu flokksins, starfinu í vetur og þeirri miklu grósku sem er í starfi Íslenska Dansflokksins. Hún sagði frá þeim verkum sem sýnd verða sunnudaginn 9. september næstkomandi og greinilegt að það er mikið um að vera hjá Íslenska dansflokknum sem hefur starfað í 34 ár.
Síðara viðtalið var við hana Þórdísi Tinnu sem hefur vakið mikla athygli fyrir bloggið sitt. Hún hefur þar sagt tæpitungulaust frá veikindum sínum, en hún er að berjast við lungnakrabbamein. Í gær var sendur tölvupóstur á félagsmála- og heilbrigðisráðherra að áeggjan Þórdísar Tinnu og Gíslínu sem líka er bloggari.
Þórdís sagði okkur sögu sína og hversu erfitt það getur verið að berjast við kerfið og blankheitin um leið og berjast þarf við vágestinn sem barið hefur að dyrum, veikindin. Hún segist samt sjálf vera afskaplega lánsöm enda að eigin sögn umvafin öryggisneti góðra vina og fjölskyldu en finnur greinilega til með þeim sem ekki hafa þess konar bakhjarla.
Við sögðum henni frá höfðinglegri gjöf sem henni barst frá einum hlustenda Útvarps Sögu, sem sýnir og sannar hve margt gott fólk er þarna úti sem vill láta gott af sér leiða. Það er frábært að vita til þess.
http://thordistinna.blog.is/blog/thordistinna/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gamall en ágætur
5.9.2007 | 20:30

The woman rushed down to the man, and immediately began to apologize, 'Please allow me to help. I'm a physical therapist and I know I could relieve your pain if you'd allow me,' she told him.
'Oh, no, I'll be all right. I'll be fine in a few minutes' the man replied.
He was in obvious agony, lying in the foetal position, still clasping his hands together at his groin.
artful massage for several long moments and asked, 'How does that feel?'
He replied, 'It feels great .....but my thumb still hurts like hell!'
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)