Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
Sver í Mark laugardaginn 17.maí
17.5.2008 | 18:24
Það var gestkvæmt í þættinum Sver í Mark í dag, laugardaginn 17.maí. Jakob Frímann Magnússon kíkti til okkar og spjallaði um daginn og veginn, starfið í miðborginni og Stuðmenn. Félagarnir Stefán og Davíð, dúett.is, mættu og sögðu skemmtisögur af ferlinum. Pétur Jensen úr hinni ungu og efnilegu hljómsveit Óðs manns æði, besti bassaleikari landsins, kom til okkar og leyfði hlustendum að heyra nýja lagið sitt Sverrir var með uppskrift dagsins, fylltar kjúklingabringur. Við gáfum þremur heppnum hlustendum hnallþórur miklar frá Þórsbakaríi, og má búast við mikilli kökuveislu á þeirra heimilum. Við kíktum aðeins á fótboltann, og glöddumst yfir því að loksins hefði íslendingur orðið Englandsbikarmeistari í fótbolta. Sver í Mark á hverjum laugardegi kl. 13-16 á Útvarpi Sögu.
Ó misskilningur
17.5.2008 | 10:02
Ég hélt þetta væri frétt um íslenzku þjóðarskútuna. Afsakið.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Skipstjórinn fullur í brúnni og skipið strandaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ein 2
17.5.2008 | 09:59
Hún hafði ekki alltaf verið svona. Ein.
Líf hennar hafði eitt sinn breyst á örskotsstundu. Ótrúlega hratt. Hún gat ekki nákvæmlega tímasett hvenær, en hún vissi vel hvers vegna. Og hvernig. Ákvörðunin!
Stundum var hún viss um lífið hefði getað orðið allt öðruvísi. Þó var hún alls ekki óhamingjusöm. Langt í frá. Sátt, var orðið sem skaut sér inn í hugskot hennar þegar hún velti fyrir sér stöðu sinni. Sátt. Þessi eilífa sátt.
Samt...
Ákvörðunin sem olli breytingunum á lífi hennar gargaði stundum á hana í svefnrofunum. Á þessum augnablikum þegar hún var hvað varnarlausust. Á þessum augnablikum milli svefns og vöku, draums og veruleika, sannfærðist hún um að hún væri ekki raunverulega sátt. Hún yrði að gera eitthvað.
Eitthvað. Þó ekki fyrr en að vel íhuguðu máli. Eins og alltaf.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ljóð geta verið góð þó þau séu vond
16.5.2008 | 14:40
Bloggfærslan er alfarið
á ábyrgð skrifanda
en endurspeglar ekki á neinn hátt
skoðanir eða afstöðu mbl.is
og Morgunblaðsins.
![]() |
Verstu ljóð í heimi á uppboði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aftur til Noregs? Örlítil hræódýr söguskýring
16.5.2008 | 14:18
Einu sinni tók hópur af heimskustu sonum Noregs sig til og ákvað að yfirgefa landið sem síðar átti eftir að verða eitt auðugasta ríki veraldar. Þeir skást gefnu ákváðu að verða eftir í Færeyjum, og komu sér ágætlega fyrir það. Hópur af örlítið heimskari Norðmönnum sigldi áfram og tók land þar sem tvö prik rak að ströndu og hokraði þar í kulda og vosbúð í ellefu aldir, alltaf nær dauða en lífi úr skyrbjúg og beinkröm. Örfáum vesalingum leist nú ekki betur en svo á þetta land að þeir ákváðu að sigla áfram í vestur, þar sem þeir fundu hið gjöfula Vínland. Land þar sem smjörið draup af hverju strái og ávextir uxu á hverju tré. Þeir voru þó ekki betur gefnir en svo að þeim tókst öllum að drepast þar hver um annan þveran, hvernig sem þeir nú fóru að því. Samt eru þeir sem urðu eftir í miðlandinu enn að monta sig af vesturförunum.
Nú stendur til, eftir aldalangan aðskilnað að sameinast Noregi á ný og tengjast föðurlandinu forna tryggðarböndum.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Fyrsti þáttur í lengra ferli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ljóð dagsins
15.5.2008 | 20:05
I walk the line
I keep a close watch on this heart of mine.
I keep my eyes wide open all the time.
I keep the ends out for the tie that binds.
Because youre mine,
I walk the line.
Mm-mm-mm-mm
I find it very, very easy to be true.
I find myself alone when each day is through.
Yes, Ill admit that Im a fool for you.
Because youre mine,
I walk the line.
Mm-mm-mm-mm
As sure as night is dark and day is light,
I keep you on my mind both day and night.
And happiness Ive known proves that its right.
Because youre mine,
I walk the line.
Mm-mm-mm-mm
Youve got a way to keep me on your side.
You give me cause for love that I cant hide.
For you, I know Id even try to turn the tide.
Because youre mine,
I walk the line.
Mm-mm-mm-mm
I keep a close watch on this heart of mine.
I keep my eyes wide open all the time.
I keep the ends out for the tie that binds.
Because youre mine,
I walk the line.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Kynlífsgjörningar Dr. Ruth |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mótmæli
15.5.2008 | 12:48
Ég var staddur fyrir hönd Útvarps Sögu á Austurvelli í morgun. Þar var lítill hópur fólks sem varð aldrei mikið fjölmennari en kannski rúmlega 200 manns. Þegar ákvörðun var tekin um að fara á þingpalla fylgdi ég hópnum sem var stöðvaður af þingverði sem sagði að eingöngu 25 mættu fara á pallana. Svo mikil takmörkun aðgengis að þingpöllum er að sögn fróðra manna í raun ekki réttlætanleg en var samt viðhöfð við þetta tækifæri.
Á þingpöllum var fólk rólegt og spakt og engin ólæti höfð uppi. Þegar einn þinggesta hengdi á handrið er snýr að þingsal lítið gult blað með áletruninni GASGAS fjarlægði þingvörður blaðið með þjósti við hlátrasköll og klapp viðstaddra. Eftir svar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur við fyrirspurn þingmanns um mögulega aðstoð íslendinga við Kínverja og Pakistani reis Sturla Jónsson á fætur og kallaði yfir þingheim að menn ættu að skammast sín og huga að ástandinu heima fyrir og bætti við að hann hvetti þingmenn og ráðherra til afsagnar. Að því búnu var haldið út á Austurvöll aftur og mótmælunum þar lauk eftir að stórir vörubílar höfðu ekið hjá og þeytt lúðra sína með mikilli háreysti.
Sturla og félagar hans segjast ekki hættir, en þátttaka almennings er nú ekki mikil í þessum aðgerðum. Sturla taldi ástæður þess að ekki væri meiri þátttöku þá að fólk þyrði ekki að yfirgefa vinnustaði sína í þessum tilgangi og hann hvatti fólk til að gerast ein þjóð og taka þátt í að leiðrétta það sem miður fer á Íslandi
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Mótmælt á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nastí bankaskrímsli
14.5.2008 | 17:54
Nú ætla ég að spyrja einnar einfaldrar spurningar, hversu mikið hefði þurft að skera niður í mannahaldi nú, ef bankinn hefði ekki dreift peningum í allar áttir eins hann ætti prentvél í kjallaranum á liðnum árum? Aðhald og sparnaður lendir bara á litla starfsmanninum þegar illa árar en milljörðunum er dreift á toppana þegar vel gengur.
Asnar Guðjón!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
88 sagt upp hjá Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð dagsins
14.5.2008 | 13:23
So many destination faces going to so many places
Where the weather is much better
And the food is so much cheaper.
Well I help her with her baggage for her baggage is so heavy
I hear the plane is ready by the gateway to take my love away.
And I can't believe that she really wants to leave me and it's getting me so,
It's getting me so.
Airport -
Airport, you've got a smiling face,
you took the one I love so far away
Fly her away - fly her away - airport.
Airport, you've got a smiling face
You took my lady to another place
Fly her away - fly her away.
The plane is on the move,
And the traces of the love we had in places
Are turning in my mind - how I wish I'd been much stronger
For the wheels are turning faster as I hear the winds are blowing
and I know that she is leaving
On the jet plane way down the runaway.
And I can't believe that she really wants to leave me - and it's
getting me so,
It's getting me so.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Gleymdu barninu á flugvellinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Breskir fjölmiðlar eru illyrmislegir
14.5.2008 | 12:33
Það hefur tíðkast lengi hjá bresku pressunni að taka svona á fólki, gera grín að útliti þess, atferli eða hegðun. Það er litlu eirt í því sambandi hjá þeim bretum. Okkur íslendingum brygði við ef íslenskir fjölmiðlar hegðuðu sér eins og þeir bresku hafa gert, en að sumu leyti virðist umfjöllun vera að færast á svipað stig hér og er þar.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Beatrice hædd í breskum blöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)