Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007
Obbosí
1.8.2007 | 12:27
...smá klúður.
Eða er Edwin Blackadder varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík? Svona hegðun er eiginlega með þeim ólíkindum að sá kostulegi karakter hefði varla getað látið sér detta þetta í hug, og reyndi hann þó allt til að sveigja reglur allar að eigin þörfum. Og hvað með lögreglumanninn eða -mennina sem hlýddu þessum fyrirmælum? Þeir virðast ekki mikið skárri í heilabúinu en þeir undirsátar Blackadders, Baldrick og George, sem eru satt að segja með vitgrennstu persónum gervallrar sjónvarpssögunnar. Eða er það barasta þannig að lögreglumenn verða að hlýða skipunum varðstjóra síns, jafnvel þó hann sé kominn í ferðagallann og augsýnilega í fríi?
Ég vona bara að þetta eigi sér ofureðlilegar skýringar, eins og t.d. að varðstjórinn hafi verið í leyniferð til Interpol eða FBI sem hann mátti alls ekki missa af og ekki nokkur sála vita af!
Svona í lokin, fyrir þá sem ekki vita hver Blackadder og co eru: http://en.wikipedia.org/wiki/Blackadder
![]() |
Varðstjóri ákærður fyrir brot í opinberu starfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skrjillón Kazilljarðar
1.8.2007 | 09:26
![]() |
Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna 89,6 milljarðar króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)