Obbosí

...smá klúður.

Eða er Edwin Blackadder varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík? Svona hegðun er eiginlega með þeim ólíkindum að sá kostulegi karakter hefði varla getað látið sér detta þetta í hug, og reyndi hann þó allt til að sveigja reglur allar að eigin þörfum. Og hvað með lögreglumanninn eða -mennina sem hlýddu þessum fyrirmælum? Þeir virðast ekki mikið skárri í heilabúinu en þeir undirsátar Blackadders, Baldrick og George, sem eru satt að segja með vitgrennstu persónum gervallrar sjónvarpssögunnar. Eða er það barasta þannig að lögreglumenn verða að hlýða skipunum varðstjóra síns, jafnvel þó hann sé kominn í ferðagallann og augsýnilega í fríi?

Ég vona bara að þetta eigi sér ofureðlilegar skýringar, eins og t.d. að varðstjórinn hafi verið í leyniferð til Interpol eða FBI sem hann mátti alls ekki missa af og ekki nokkur sála vita af!

Svona í lokin, fyrir þá sem ekki vita hver Blackadder og co eru: http://en.wikipedia.org/wiki/Blackadder


mbl.is Varðstjóri ákærður fyrir brot í opinberu starfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þetta er alveg með ólíkindum. Ég ímynda mér að undirtyllur hans hafi ekki þorað að neita.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.8.2007 kl. 20:36

2 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Þorað að neita? Það er nú eitthvað að mönnum ef þeir þora ekki að neita varðstjóra á frívakt. Varla er maðurinn svo skerí...

Brynja Hjaltadóttir, 2.8.2007 kl. 00:21

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hvað er varðstjóri á frívakt. Öllu heldur, hvað er frívakt?

Jóna Á. Gísladóttir, 2.8.2007 kl. 01:48

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Frívakt er þegar þú ert ekki á vakt. Og Á Frívaktinni hét óskalagaþáttur sjómanna á Gufunni í gamla daga. Eða var það óskalagaþáttur varðstjóra?

Markús frá Djúpalæk, 2.8.2007 kl. 08:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband