Eins og vindurinn

Arnþrúður Karlsdóttir var að lesa upp í þætti sínum harðorða grein frá árinu 2006, eftir Kristján L. Möller þar sem honum sem óbreyttum þingmanni fannst nú ekki tiltökumál að lækka álögur ríkisins á eldsneyti tímabundið. En nú er annað hljóð í strokknum - samgönguráðherrann Kristján Möller sér enga leið til að breyta álögum ríkisins á eldsneyti.

Svona er að vera stjórnmálamaður - Það virðist vera í lagi snúast eins og vindáttin ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þetta er nú svo alvanalegt að manni finnst svona fljótt á litið að þessir ráðamenn, séu einungis á Alþingi til þess að hygla sér, sínum nú eða aðeins að nýta sér hið lagalega umboð til að gera eitthvað annað en það sem þeir eru kjörnir til að sinna þ.e.a.s. vinna OFTAST á skjön við almannaheill.

Eiríkur Harðarson, 10.4.2008 kl. 12:39

2 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Það væri nú gaman að sjá Steingrím "á móti" Sigfúss í stjór einhverntíma.

Allt þetta sem hann hefur vælt yfir þessi 1000 ár sem hann hefur setið fúll í stjórnar andstöðu er kannski erfitt að framkvæma.

Mig grunar nú að sama hver sé í stjórn þá eru menn oftast að reyna að gera sitt besta fyrir okkur almúgann nema kannski að Sjálfstæðisflokkurinn er full duglegir að klappa ríka fólkinu á afturendann.

Annars er þetta allt prýðis fólk eða bara allt asnar, ég sé ekki hversu miklu máli það skiptir hver útdeilir krónunum okkar.

Ætli Steingrímur væri ekki búinn að koma þjóðarbúinu í jörðina með endalausum friðinum á járnsmiðum, kóngulóm og einhverjum polli við Hvannadalshnjúk?

Þórður Helgi Þórðarson, 10.4.2008 kl. 12:48

3 Smámynd: Beturvitringur

Fnykur lætur sér vindátt í léttu rúmi liggja.

Beturvitringur, 10.4.2008 kl. 22:35

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Það er skammvinnur vermir að míga upp í vindinn...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.4.2008 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband