Dalai Lama

Dalai_Lama Dalai Lama er heiti aðalleiðtoga lamasiðar, helstu gerðar búddisma í Tíbet. Dalai Lama voru einnig valdamestu stjórnmálaleiðtogar Tíbet frá því á 17. öld fram til ársins 1951 er Kínverjar hertóku Tíbet.

Núverandi Dalai Lama er Tenzin Gyatzo en hann er í útlegð. Hann fæddist 6.júlí 1935 í norð-austur Tíbet og er fjórtánda endurholdgun Dalai Lama,  þjóðhöfðingi og andlegur leiðtogi Tíbeta. Dalai Lama hefur búið á Indlandi síðan hann flúði þangað 1959. Árið 1989 hlaut Dalai Lama friðarverðlaun Nóbels fyrir að stuðla að friðsamlegri baráttu Tíbeta gegn hernámi Kína á landi þeirra, en Dalai Lama hefur ávallt neitað að beita ofbeldi í baráttunni fyrir bættum hag landa sinna og frelsun Tíbet.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Mig hefur alltaf langað til að hitta þennan mann.

Sporðdrekinn, 10.4.2008 kl. 13:08

2 identicon

Mig langar líka að hitta þennan snilling. Mæli með viðtalsbók við hann, minnir að hún heiti Leiðin til lífshamingju. Speki þeirra er Tíbetmanna er algjör snilld og ef ég mun taka upp einhverja trú þá verður það Búddatrú.

Úlla (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 23:36

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ætli Kínverjar kalli hann Lamadýrið...? 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.4.2008 kl. 08:26

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Eigum við ekki bara að vona að honum takist að lama kínverja?

Markús frá Djúpalæk, 11.4.2008 kl. 10:24

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Nú er Dalai Lama komin til USA kannski ég ætti bara að fara og leita að honum!

Sporðdrekinn, 11.4.2008 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband