Sæt frétt

Einu sinni langaði mig svona rosalega mikið í sælgæti. Ég varð bara gríðarlega illa haldinn og fann hvernig ég gat varla hamið mig. Fyrir hugskotssjónum dönsuðu lakkrísdraumar og hlaupkallar og ég varð að fá sætindi strax, núna, þegar í stað! Ég sá mig fyrir mér fylla alla vasa af gómsætu namminu og verja svo unaðsstundum í sófanum fyrir framan sjónvarpið gúffandi þessu himneska súkkulaði, konfekti og lakkrís í mig......

En....

Svo gekk framhjá mér afskaplega þybbinn maður með lakkríspoka í annarri og dietkók í hinni. Eftir því sem dansandi rasskinnarnar og skoppandi mjaðmaspikið fjarlægðist dró úr sælgætislönguninni og löngun til að smella mér í líkamsrækt og sund fór að gera vart við sig.

Sem betur fer hvarf hún líka.


mbl.is Yfirþyrmandi löngun í sætindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Æi hvað ég vildi að það þyrfti svona lítið hjá mér til að drepa löngunina.

Jóna Á. Gísladóttir, 7.8.2007 kl. 14:04

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Mikið rosalega er ég þá heppinn :)

Markús frá Djúpalæk, 7.8.2007 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband