Allt að verða vitlaust
20.5.2008 | 11:53
Nú styttist óðum í að þau Regína Ósk og Friðrik Ómar fái gamlan draum uppfylltan og fá að stíga á svið í Eurovision keppni. Þau verða fyrst keppenda á svið á fimmtudagskvöld, og öll íslenzka þjóðin mun standa á öndinni og með þeim um leið.
Við Sverrir Júlíusson verðum með Eurovison upphitun í dag á Útvarpi Sögu milli kl. 16 til 18, þar sem við veltum fyrir okkur möguleikum íslenska lagsins, ásamt Þórði Helga Þórðarsyni. Við spilum gömul og ný Eurovision lög, og að sjálfsögðu verður opið fyrir símann og hlustendur endilega beðnir að taka þátt í þessu með okkur.
Eurovision upphitun á Útvarpi Sögu milli kl. 16 og 18 í dag.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Vel lukkuð veisla Eurobandsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Verður Sigmund þá bannaður?
20.5.2008 | 10:46
Maður spyr sig. Ætli Sigmund fái einhvers konar svona bréf í tölvupósti
''Ágæti teiknari.
Vegna endurtekinna kvartana og gagnrýni hefur verið tekið fyrir að þú getir teiknað um fréttir í mogganum.
Kveðja,
Mogginn"
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Myndasaga Sigmunds gagnrýnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |