Eurovision lokafærsla - í bili
24.2.2008 | 15:44
Eigum við að gamni að fara yfir þau lög og flytjendur sem við Íslendingar höfum sent í Eurovision keppnina og hvernig okkur hefur gengið hingað til? Skoðum þetta aftur á bak:
2008 - This is my life - Eurobandið - keppir í síðari undanúrslitaþætti 22.maí næstkomandi.
2007 - Valentine Lost - Eiríkur Hauksson - 13.sæti undanúrslita með 77 stig.
2006 - Congratulations - Silvia Night - 13. sæti undanúrslita með 62 stig.
2005 - If I had your love - Selma Björns - 16.sæti undanúrslita með 52 stig.
2004 - Heaven - Jónsi - 19. sæti með 16 stig.
2003 - Open your heart - Birgitta Haukdal - 8. sæti með 81 stig.
2002 - Vorum við ekki með.
2001 - Angel - Two Tricky - 22. sæti með 3 stig.
2000 - Tell me - Einar Ágúst & Telma - 12. sæti með 45 stig.
1999 - All out of luck - Selma Björns - 2. sæti með 146 stig.
1998 - Vorum við ekki með.
1997 - Minn hinsti dans - Páll Óskar - 20. sæti með 18 stig (öll fengin frá þjóðum sem kusu með símakosningu).
1996 - Sjúbídú - Anna Mjöll Ólafsdóttir - 13. sæti með 51 stig.
1995 - Núna - Björgvin Halldórsson - 15. sæti með 31 stig.
1994 - Nætur - Sigga Beinteins - 12. sæti með 49 stig.
1993 - Þá veistu svarið - Ingibjörg Stefánsdóttir - 13. sæti með 42 stig.
1992 - Nei eða Já - Sigga Beinteins & Sigrún Eva - 7. sæti með 80 stig.
1991 - Draumur um Nínu - Stebbi & Eyvi - 15. sæti með 26 stig.
1990 - Eitt Lag enn - Stjórnin - 4. sæti með 124 stig.
1989 - Það sem enginn sér - Daníel Ágúst - 22. sæti með ekkert stig.
1988 - Þú og Þeir (Sókrates) - Sverrir Stormsker & Stefán Hilmarsson - 16. sæti með 20 stig.
1987 - Hægt og Hljótt - Halla Margrét - 16. sæti með 28 stig.
1986 - Gleðibankinn - ICY - 16. sæti með 19 stig.
Og eigum við ekki að láta vangaveltum um Eurovision lokið fram í maí?
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Veðmálið
24.2.2008 | 11:34
Hann var nú alveg ágæt skemmtun, þessi löngu tímabæri lokaþáttur Laugardagslaganna. Gísli var ekkert alltof pínlegur og Ragnhildur Steinunn var í eftirtektarverðum kjól. Selma lék Silvíu Nótt ágætlega og Eyvi var ágætur Grétar Örvars. Annað kom nú ekki neitt verulega á óvart. Nema kannski Stefán Hilmarsson...
Eða hvað?
Málið er nefnilega það, að nú skuldum við Sverrir Stormsker Páli Óskari sinn hvorn konfektkassann nr. 5 frá Nóa Síríus. Hann var sá eini okkar sem hafði rétt fyrir sér um hver hefði sigur í þessarri umdeildu keppni eftir viðtalið í Síðdegisútvarpi Útvarps Sögu síðastliðinn föstudag. Það kom svosem ekki á óvart að þau þrjú lög sem tróndu á toppnum skyldu gera nákvæmlega það. Röðin á þeim kom afturámóti (hugsanlega) mörgum í opna skjöldu, ég held að flestir hefðu veðjað á sigur Merzedes Club og Hey-lagsins Hó, það gerði Sverrir allavega. Ég veðjaði á sigur Doktoranna tveggja, kannski meira af vilja en mætti. En Palli stóð með sínu fólki og uppskar eftir því. Nú á hann von á tveimur risastórum og rándýrum konfektkössum að launum fyrir það. Það verður að hrósa íslenzku þjóðinni fyrir að stuðla að því að Palli fengi konfektið sitt með svo afgerandi hætti sem raun ber vitni. Palli fær allavega slikkeríið í næstu viku. Kannski í beinni.
Nú verður bara að vona að Eurobandið standi sig í Serbíu og hverfi ekki innan um svipaða flytjendur með keimlík lög. Krossleggjum fingur og vonum það besta!
Ef illa gengur gætum við leitað til Stefáns Hilmarssonar í Vogunum að ári, hann virtist luma á ágætis lagi. Það þarf bara aðeins að vinna í textanum.
![]() |
Eurobandið fer til Serbíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)