Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Eurovison getraun

Nú ætla ég að missa mig alveg í Eurovisonið og smella hér inn nokkrum spurningum um þessa furðulegu keppni. Þið megið dunda ykkur við að svara þessu í rólegheitunum. Rétt svör birtast svo eftir helgina, þegar allir verða aftur búnir að gleyma því að þessi keppni sé til.

1. Hvaða ár var Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva haldin í fyrsta skipti?

2. Hve oft hafa frakkar sigrað í Söngvakeppninni?

3. Hvaða ár enduðu fjórar þjóðir jafnar og efstar í Söngvakeppninni?

4. Hver er besti árangur Íslands hingað til?

5. Hvaða þjóð hefur oftast sigrað?

6. Hver keppti fyrir hönd sinnar þjóðar með lagið Power to All Our Friends?

Látum þetta duga. Og koma svo!

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

mbl.is Frakkar bálreiðir út af enskunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn meira af Eurovision

Í Eurovision þættinum á Útvarpi Sögu á þriðjudaginn var, spáðum við Sverrir Júlíusson ásamt gesti þáttarins Þórði Helga Þórðarsyni um röð efstu þjóða í úrslitum á Laugardag. Þetta var auðvitað til gamans gert og menn völdu þetta frekar eftir smekk en út frá pólitík eða landafræði.  Listarnir voru svona:

Sverrir: Svíþjóð, Ísland, Úkraína, Ísrael, Armenía.

Þórður:Bretland, Frakkland, Búlgaría (ekki með), Belgía (ekki með), Ísland.

Markús:Búlgaría (ekki með), Portúgal, Lettland, Frakkland, Belgía (ekki með), Ísland.

Svo er bara að sjá hvernig fer annað kvöld.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

mbl.is Ísland komst loks í úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínt alveg

Niðurstaða skoðanakönnunar um hvort Ísland kæmist upp úr undanúrslitum Eurovision:

Nei sögðu 43%

Já sögðu 57%

Svo vil ég hvetja alla til að taka þátt í smákönnun um mögulegt gengi á laugardaginn.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

mbl.is „Kom skemmtilega á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóð dagsins

The closest thing to crazy

How can I think I'm standing strong,
Yet feel the air beneath my feet?
How can happiness feel so wrong?
How can misery feel so sweet?
How can you let me watch you sleep,
Then break my dreams the way you do?
How can I have got in so deep?
Why did I fall in love with you?

This is the closest thing to crazy I have ever been
Feeling twenty-two, acting seventeen,
This is the nearest thing to crazy I have ever known,
I was never crazy on my own…
And now I know that there's a link between the two,
Being close to craziness and being close to you.

How can you make me fall apart
Then break my fall with loving lies?
It's so easy to break a heart;
It's so easy to close your eyes.
How can you treat me like a child
Yet like a child I yearn for you?
How can anyone feel so wild?
How can anyone feel so blue?

...and being close to you
...and being close to you.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

Spæling

..að Búlgaría, sem ég var búinn að veðja á að sigraði skyldi ekki komast áfram. Jafn ánægður er ég með frammistöðu Portúgala og Barbiestráksins og mömmu hans. Svo er bara að fylgjast spenntur með á laugardag.

Þau 25 lönd sem keppa á laugardaginn eru Ísrael, Aserbadjan, Noregur, Pólland, Bosnía & Herzegovina, Armenía, Finnland, Rúmenía, Rússland, Grikkland, Ísland, Svíþjóð, Tyrkland, Úkraína, Albanía, Lettland, Króatía, Danmörk, Georgía, og Portúgal. Örugg á undanúrslitakvöldið eru svo England, Spánn, Frakkland, Þýskaland og gestgjafarnir Serbar. Öll Norðurlöndin eru þarna á blaði, austanblokkin á nokkur lög, en á heildina litið er þetta bara nokkuð eðlileg og skemmtileg blanda. Satt að segja finnst mér sumt af þessu algert rusl, en annað ágætt og eitt og eitt stórgott.

Nú verður spennandi að fylgjast með hverjir slá í gegn á laugardaginn, en nú ætla ég að veðja, þó ég sé langt í frá getspakur, á Portúgal, Úkraínu eða Frakkland.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

mbl.is Ísland áfram í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórhættulegt

Dáleiðsla getur valdið ruglingi á heilastarfsemi og getur valdið ruglu hjá fljasæi öerjass 789fa aæjaæfa gbr brrrrr 

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

mbl.is „Dávaldur“ með í för
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein 3

Hún hafði ekki alltaf verið svona. Ein. 

Hún var ákveðin í að gera eitthvað. Eitthvað. Þó ekki fyrr en að vel íhuguðu máli. Eins og alltaf. Hvað það yrði var hún ekki eins viss um. Hún vissi bara að hún yrði að hrista þetta af sér. Örlög ákvörðunarinnar.

Ákvörðunin hafði verið erfið. Hún vissi samt alveg að hún hefði verið rétt. En mikið hrikalega tók hún á.

Hún hélt á símanum og það var eins og hann glóði í höndinni á henni. Þetta var samt eina leiðin til að losna undan álögum ákvörðunarinnar.

Hún varð að hringja í hann.

Um leið og hún heyrði röddina vissi hún það. Það yrði ekki aftur snúið.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

Ljóð dagsins

DJ, take me away

When the night falls down, I want you
DJ, please, take me away
And when the lights go down, I need you
DJ, please, take me away

When the night falls down, I want you
DJ, please, take me away
And when the lights go down, I need you
DJ, please, take me away

I’ll take you away
Take me away

mbl.is „Stressið er ekki komið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vertu bara enn skrýtnari

Sporðdreki: Að hluta til viltu reyna að þóknast öðrum því það er erfitt að vera ekki samþykktur. Gefðu heiminum tíma til að skilja þig. Vertu bara enn skrýtnari.

Þá veit ég það.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

Páll minn,

Ekki láta ljúga að þér. Það er ekki allt sem sýnist. Eina ástæðan fyrir öllu þessu jákvæða er hvað við höfum verið dugleg að markaðssetja okkur, eða kannski bara að ljúga að sjálfum okkur og veröldinni. Ég held frekar að Íslendingar ættu að tvöfalda íbúafjölda Coventry, það getur ekki orðið verra.

Annars bara kátur, góðar stundir.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

mbl.is Ættu allir að flytja til Íslands?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband