Þyrnir í augum ráðherrans?

Frétt af dv.is: 

Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir þau skilaboð sem hann fái frá Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra ekki vera mjög hvetjandi. Þetta kom fram í spjalli við Jóhann á Útvarpi Sögu í dag en ráðherra tilkynnti Jóhanni nýlega að starf hans yrði auglýst laust til umsóknar.

Jóhann var maður vikunnar í þættinum Vikulokin hjá þeim Markúsi Þórhallssyni og Halldóri E. á Sögu í dag. Þar sagðist Jóhann ekki hafa áhyggjur af framtíð sinni en öllu meiri áhyggjur af starfsemi embættisins. Jóhann sagði að hann myndi fara að gera “eitthvað skemmtilegt” og að þegar væri búið að leita til hans með áhugavert verkefni.

Markús og Halldór báru frétt dv.is þess efnis að Björn væri að losa sig við óhlýðinn lögreglustjóra undir Jóhann sem kannaðist ekki við að vera óhlýðinn. Hann sagði þó að vel mætti vera að einhverjum fyndist svo. Jóhann sagðist hins vegar vera svolítið þver en hann reyndi að vera sanngjarn þótt hann væri harður. Hann sagði ákveðið andrúmsloft hafa myndast og í því hafi hann ekki verið tilbúinn til að “vera hluti af já-hópi” þannig að vel má vera að hann sé í raun þyrnir í augum ráðherrans.

Jóhann fór ekki leynt með að fari svo að hann missi starfið sé honum talsverð eftirsjá að því. Hann hafi óbilandi áhuga á verkefninu og bætti við að ef auglýsingin á starfi hans eigi að vera fordæmsigefandi þá væri óskandi að fleiri stöður yrðu auglýstar í kjölfarið.

Þegar Jóhann var spurður hvort sú staða gæti mögulega komið upp að hann héldi áfram í embætti sínu sagði hann þessa stöðu svo nýuppkomna að að hann viti í raun ekkert hvað verða vill. Hann gæti því ekkert sagt um það að svo stöddu.

Lögreglan á Suðurnesjum þykir hafa náð ákaflega góðum árangri undanfarið, ekki síst í baráttunni við eiturlyfjasmyglara og Jóhann sagðist þakklátur og auðmjúkur yfir viðbrögðum almennings við starfi sínu og hans fólks. Skilaboðin sem hann hefði fengið frá dómsmálaráðherra væru hins vegar ekki hvetjandi.

 

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur gert grein fyrir ákvörðun sinni um að auglýsa stöðuna á heimasíðu sinni, www.bjorn.is, og segir meðal annars að embættið sé “allt annað nú en fyrir fimm árum og því skýr efnisleg rök fyrir því, að það sé auglýst.“ Björn lætur þess einnig getið að launakjör lögreglustjóra hafi auk þess tekið stakkaskiptum, þegar sýslumannsembættið á Keflavíkurflugvelli var aflagt.

“Með vísan til alls þessa þótti mér einsýnt, að auglýsa ætti embættið til að lögreglustjóri væri ekki í neinum vafa um kjör sín og ábyrgð. Lögum samkvæmt var þessi ákvörðun tilkynnt Jóhanni R. Benediktssyni með þeim fyrirvara, sem segir í lögum", skrifar Björn.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Skipt um lögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

GMTA. 

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 20.9.2008 kl. 19:58

2 Smámynd: Beturvitringur

framhjá:má sækja bökuna þegar mér batnar (*_*)

Beturvitringur, 20.9.2008 kl. 23:18

3 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Það virðist ekki ALLTAF borga sig að vinna vinnuna sína, alltént er það mín skoðun á ÖLLU er snertir þetta mál. Man ekki betur en að í vor hafi átt að 3-skipta lögreglunni þarna suðurfrá. Síðan er samgönguráðherrann að hóta einhverri hel...... sveitarfélagasameininglöggjöf, HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ GERAST.

Eiríkur Harðarson, 21.9.2008 kl. 00:07

4 Smámynd: Vignir Arnarson

Krúsi minn,þetta er skíta mál eins og ALLT annað sem þessi ráðherra 1/2viti hefur komið nálægt á ferlinum því miður og ég trúi ekki að hann fái að sitja út tímabilið ......

Vignir Arnarson, 22.9.2008 kl. 09:14

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Helga, svo sannarlega Vignir og Eiríkur, spyrjum að leikslokum. Beturvitringur, verði þér bara rosalega að góðu ...

Markús frá Djúpalæk, 22.9.2008 kl. 09:57

6 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ef ég man rétt er Jóhann framsóknarmaður eða var stimplaður það þegar hann fékk embættið í öndverðu, sem gerir stöðu hans nú jafnvel enn verri. Ef ég man rétt varð hvellur út af embættisveitingu hans þá af því einhverjum kvenmanni þótti fram hjá sér gengið og vísaði til jafnréttis kynjanna, sem kveður svo á að ef tveir umsækjendur séu jafnir en annar sé kona skuli hún valin.

Jóhann hefur hins vegar, eins og fram kemur hér að ofan, unnið sína vinnu og ekki látið á sig fá þó ráðuneytið hafi sent honum línu um að hann sé kominn fram út fjárveitingum og skuli því gíra niður það sem eftir er ársins. Hins vegar er ég hissa á ráðherra í þessu máli, sem mér hefur í það heila virst drengur góður, hreinn og beinn. Sama þó höfundar hér að ofan og ugglaust einhverjir sem hér eiga eftir að koma kjósi að ausa hann auri. Það segir meira um þá heldur en ráðherrann.

Sigurður Hreiðar, 22.9.2008 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband